Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
TENERIFE
Bir
tm
eð
fyr
irv
ar
au
m
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
rr
étt
til
lei
ðr
étt
ing
aá
slí
ku
.A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fyr
irv
ar
a.
2FYRIR1
Frá kr.
69.995
ÁÐUR KR.
79.900
NÚ KR.
39.950FL
UG
SÆ
TI
24. janúar í 7 nætur
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Opinber heimsókn forsetahjónanna
Guðna Th. Jóhannessonar og Elizu
Reed til Svíþjóðar í gær fór vel af
stað.
Guðni ávarpaði gesti í sænsku
konungshöllinni á sænsku og lauk
ræðunni með þeirri ósk að við-
staddir hefðu skilið hvað hann
sagði. Guðni ræddi um norræna vel-
ferðarkerfið sem hann sagði blöndu
af einstaklingshyggju og félagslegri
ábyrgð með mismunandi straumum
og stefnum. Guðni ræddi einnig um
tengsl og samskipti Íslendinga og
Svía í listum, menningu og íþróttum.
Hann sagði að Ísland hefði notið
góðs af Lars Lagerbäck, fyrrver-
andi þjálfara karlalandsliðsins. Með
honum hefði komið rétt blanda af
sænsku skipulagi og íslenskri ein-
staklingshyggju.
Guðni mun kynna sér vistvænar
húsbyggingar í Stokkhólmi í dag en
opinberri heimsókn forseta-
hjónanna lýkur á morgun, föstudag,
í Uppsölum þar sem þau skoða m.a.
miðaldahandritið Uppsala-Eddu.
Opinber heimsókn í Svíþjóð
AFP
Þjóðhöfð-
ingjar skoða
heiðursvörð
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Fulltrúar Primera Air Nordic SIA
mættu ekki á sáttafund með Flug-
freyjufélagi Íslands, sem ríkissátta-
semjari boðaði til í gær vegna flug-
liða í áhöfnum véla sem gerðar eru
út frá Íslandi. Annar fundur er boð-
aður í byrjun febrúar.
Engin lagaleg úrræði
„Það hefur aldrei gerst í sögu
embættisins sem stofnað var 1980
að deiluaðili mæti ekki til boðaðs
sáttafundar,“ segir Elísabet S.
Ólafsdóttir, skrifstofustjóri hjá rík-
issáttasemjara.
Flugfreyjufélag Íslands hefur
fullt forræði yfir kjaradeilunni en
ASÍ kemur fram fyrir hönd félags-
ins að sögn Magnúsar M. Norðdahl,
deildarstjóra lögfræðideildar ASÍ.
Hann segir að Primera Air hafi
ekki mætt á fjóra boðaða sátta-
fundi.
„Ríkissáttasemjari hefur ekkert
lagalegt úrræði til þess að draga
Primera Air að samningaborðinu
þrátt fyrir að það sé lagaleg skylda
félagsins að mæta. Í sumum grann-
löndunum getur ríkissáttasemjari
gefið út eins konar handtökuskip-
un,“ segir Magnús og bætir við að
Primera Air hafi frá upphafi talið
að sér bæri engin skylda til þess að
semja við verkalýðsfélög hér á landi
varðandi flugliða. Lögheimilisfesti
launþega eigi að ráða hvaða kjara-
samningar gilda.
Kjaraumleitanir Flugfreyjufélags
Íslands hafa staðið yfir frá 2. júní
2016 eftir að óskað var eftir fundi
með Primera Air Nordic SIA um
gerð kjarasamninga 2. júní 2016 og
þess krafist að flugliðar félagsins
nytu lágmarkskjara og réttinda
kjarasamnings flugfreyjufélagsins.
Sex mánuðum síðar ítrekaði ASÍ
kröfu flugfreyjufélagsins um kjara-
samninga og gaf Primera Air frest
til 9. janúar, annars yrði málið sent
ríkissáttasemjara. Það gerði flug-
freyjufélagið 23. janúar 2017 en rík-
issáttasemjari taldi ekki ljóst hvort
embættið hefði valdheimild til þess
að koma að málinu.
Ólögmæt verkfallsboðun
Verkfall Flugfreyjufélags Íslands
vegna flugliða hjá Primera Air sem
hefjast átti 24. nóvember var dæmt
ólöglegt í félagsdómi þar sem rík-
issáttasemjari hafði ekki boðað til
sáttafunda fyrir verkfallsboðun.
Dómurinn klofnaði í afstöðu sinni.
Að sögn Magnúsar M. Norðdahl
vinna stjórn og trúnaðarráð flug-
freyjufélagsins að undirbúningi
allsherjaratkvæðagreiðslu um boð-
un nýrrar vinnustöðvunar.
Hörð deila flugliða og Primera
Í fyrsta sinn í 38 ára sögu ríkissáttasemjara sem deiluaðili mætir ekki á boðaðan sáttafund Ekki
heimilt líkt og í grannríkjum að beita handtökuskipun Undirbúa kosningu um vinnustöðvun
Morgunblaðið/Golli
Ríkissáttasemjari Erfitt að semja þegar deiluaðili mætir ekki á fund.
Agnes Bragadóttir
agnes@mbl.is
Skortur á legurými er helsta skýring þess að Landspít-
alinn þarf stundum að grípa til þeirra úrræða að fresta
fyrirfram skipulögðum og ákveðnum aðgerðum. Jafn-
framt getur spítalinn þurft að grípa til frestana þegar
bráðaaðgerðir eru fleiri en alla jafna.
Samkvæmt upplýsingum Margrétar Guðjónsdóttur,
verkefnisstjóra skurðlæknasviðs Landspítalans, getur
þurft að fresta skipulögðu prógrammi þegar bráða-
aðgerðir eru fleiri en spítalinn ræður við, svo sem vegna
slysa, hálku o.fl. „Skortur á rýmum er einnig tilkominn
þegar ekki er hægt að útskrifa sjúklinga í viðeigandi úr-
ræði þegar meðferð lýkur á spítalanum og einnig er um
að ræða færri opin sjúkrarúm vegna skorts á hjúkrunar-
fræðingum,“ segir m.a. í svari Landspítalans við fyrir-
spurn Morgunblaðsins.
Þar kemur fram að á fyrstu tveimur vikum þessa árs, 1.
til 15. janúar, hefur Landspítalinn frestað fimm bækl-
unarskurðaðgerðum, einni heila- og taugaskurðaðgerð
og tveimur lýtaaðgerðum. Öllum var frestað vegna skorts
á legurými. Þá var tveimur æðaskurðaðgerðum, níu
brjóstholsaðgerðum og fjórum kviðarholsaðgerðum
frestað á fyrstu tveimur vikum ársins, ýmist vegna skorts
á legurými á gjörgæslu eða skorts á legurými á deild.
Skortur á legurými er ein
helsta skýringin á frestun
Landspítalinn frestaði 24 aðgerðum 1. - 15. janúar
Morgunblaðið/Ómar
Landspítalinn Skortur á legurými bæði á gjörgæslu og
deildum er helsta skýringin á frestun aðgerða.