Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 20
20 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
Prófaðu bökuðu kjúklingabringurnar, fylltar
með ferskum kryddjurtum og rjómaosti, ásamt
fylltum paprikum. Bragðlaukarnir verða ekki
sviknir af þessari hollustu.
gottimatinn.is. Uppskriftavefurinn er jafn
aðgengilegur í tölvunni, spjaldtölvunni og
snjallsímanum.
bakaðar
kjúklingabringur
Hollustan hefst á gottimatinn.is
BAKSVIÐ
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Undanfarna mánuði hafa staðið yfir
viðgerðir og viðhald á húsinu
Laugavegi 13. Jafnframt var húsið
lýst upp og þessi glæsibygging nýt-
ur sín mjög vel upplýst í skammdeg-
inu.
Gullkúnst Helgu er eigandi jarð-
hæðar hússins en Hjalti Geir Krist-
jánsson húsgagnahönnuður á efri
hæðirnar. Hjalti
Geir segir í sam-
tali við Morg-
unblaðið að hann
hafi látið vinna
endurbætur inn-
anhúss í áföng-
um. Kominn hafði
verið tími á end-
urnýjun utan-
húss. Fenginn
var góður og
vandvirkur verk-
taki, Múr og mál, sem hafi skilað
góðu verki, en eftirlit með fram-
kvæmdinni var í höndum Verkís.
Húsið er steinað eins og mörg
önnur hús í miðbænum, svo sem
Þjóðleikhúsið og Arnarhvoll, og var
það endurnýjað í upprunalegri
mynd. Arkitekt hússins var Gunn-
laugur Pálsson arkitekt, og bygg-
ingameistarar voru Haraldur
Bjarnason og Guðbjörn Guðmunds-
son. Þá segir Hjalti Geir að ákveðið
hafi verið að lýsa húsið upp með nýj-
ustu tækni, LED-ljósum frá Jóhanni
Ólafssyni og Co, svo það nyti sín
sem best.
Fyrirtæki og stofnanir eru leigj-
endur í húsinu. Já viðmótsprófanir
og auglýsingastofan 13 Félaga-
samtök eru 2. hæð, Loftmyndir ehf.
á 3. hæð og Stofnun Árna Magn-
ússonar í íslenskum fræðum leigir 4.
og 5. hæð. Allt eru þetta fyrirtaks
leigutakar, segir Hjalti Geir.
Það var Kristján Siggeirsson, fað-
ir Hjalta Geirs, sem reisti húsið ár-
unum 1953-55. Kristján var fæddur
árið 1894, sonur Siggeirs Torfason-
ar, kaupmanns í Reykjavík, og konu
hans Helgu Vigfúsdóttur. Að loknu
námi í Verslunarskóla Íslands nam
Kristján húsgagnasmíði hjá Jóni
Halldórssyni & Co. og lauk þar
sveinsprófi. Síðan stundaði Kristján
framhaldsnámskeið í iðngrein sinni í
Þýskalandi. Hann lauk meistara-
prófi í húsgagnasmíði árið 1913.
Tuttugu og fimm ára að aldri, eða
nánar tiltekið 14. ágúst 1919, stofn-
setti Kristján húsgagnaverslun, en
hún var allt frá byrjun staðsett að
Laugavegi 13, í húsnæði sem var í
eigu föður Kristjáns. Á næsta ári
verður því liðin öld frá stofnun
verslunarinnar, sem setti svip sinn á
Laugaveginn í áratugi og eldri
Reykvíkingar muna vel eftir.
Fyrst í stað hafði verslunin Krist-
ján Siggeirsson hf. eingöngu á boð-
stólum húsgögn, sem Kristján flutti
sjálfur inn erlendis frá, en á þeim
árum var innflutningur húsgagna
frjáls. Þetta kemur fram á vefnum
101reykjavik.is, þar sem saga versl-
unarinnar er rakin. Mest var keypt
inn frá Danmörku, Svíþjóð og
Þýskalandi, en í tengslum við versl-
unina var lítið verkstæði til að setja
saman húsgögn sem voru ósamsett.
Strax á fyrstu árum fyrirtækisins
var þó hafin framleiðsla á hús-
gögnum, en verkstæðið var í bak-
húsum að Laugavegi 13. Þar unnu
um tíu til fimmtán menn við fram-
leiðslu. Þá voru einkum framleiddar
ýmsar tegundir af stofuskápum,
kommóðum, grindum fyrir sófasett
og fleira, því að bólstrun var einn
þáttur starfseminnar. Einnig var
um skeið rekin málaravinnustofa,
þar sem húsgögn voru máluð.
Árið 1922 keypti Kristján hús-
eignina að Laugavegi 13 af föður
sínum, sem hafði rekið þar matvöru-
verslun. Kristján reisti steinsteypt
hús austan við það sex árum síðar. Á
neðstu hæð þess húss var húsgagn-
verslunin. Á þeim árum seldi versl-
unin um þrjú þúsund stóla á ári, sem
var gríðarlega mikið á þeirra tíma
mælikvarða. Árið 1937 var byggt
hús að Smiðjustíg 6 fyrir framleiðsl-
una og aftur var byggt við húsið
1942. Í þessu húsi voru síðar veit-
ingastaðir, m.a. Grand Rokk. Húsið
var rifið og á lóðinni stendur nú ný-
bygging hótelsins Canopy by Hilton.
Byrjað á nýbyggingu árið 1953
Jafnframt þessum auknu um-
svifum fjölgaði starfsmönnum fyrir-
tækisins og það hafði meira umleikis
en áður. Árið 1953 var hornhúsið að
Laugavegi 13 flutt í heilu lagi að
Efstasundi 100 og byggt á lóðinni
verslunar- og skrifstofuhús, sem var
eitt hið stærsta í miðbænum. Fram
kom í frétt Vísis á þessum tíma að
Kristján Siggeirsson hafi upp-
haflega fengið fjárfestingarleyfi fyr-
ir kjallara og einni hæð „og má vafa-
laust vænta þess, að framhalds-
fjárfestingarleyfi fáist til þess að
unnt verði að halda áfram smíði
hússins.“ Kristján stýrði fyrirtæki
sínu allt þar til hann lést 1975. Síð-
ustu árin naut hann þó dyggrar að-
stoðar sonar síns, Hjalta Geirs, við
stjórnun fyrirtækisins. Árið 1983
opnaði fyrirtækið húsgagnaversl-
unina Habitat að Laugavegi 13 í
samstarfi við Habitat-fyrirtækið í
Bretlandi. Húsgagnaverslanirnar
eru horfnar á braut, en að Lauga-
vegi 13 er nú meðal annars rekin
Gullkúnst Helgu.
Kristján Siggeirsson hf. samein-
aðist Gamla kompaníinu hf. árið
1990 og stofnað var nýtt stórfyrir-
tæki í íslenskum húsgagnaiðnaði,
GKS, sem enn starfar með miklum
myndarbrag.
Glæsihús við Laugaveg lýst upp
Lokið er endurbótum á Laugavegi 13 Húsið var endurnýjað í upprunalegri mynd Það er nú
upplýst með nýjustu ljósatækni Kristján Siggeirsson reisti húsið 1953 og rak þar húsgagnaverslun
Morgunblaðið/RAX
Laugavegur 13 Glæsilegt hús sem setur mikinn svip á götuna. Húsið nýtur sín enn betur eftir að það var lýst upp.
Morgunblaðið/RAX
Eigandinn Hjalti Geir Kristjánsson
á skrifstofu sinni á Laugavegi 13.
Kristján
Siggeirsson
Gamla húsið Það var flutt í heilu lagi í Efstasund 100 og stendur þar enn.