Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
BOZZ SH2205-3
Sturtusett
m/hitastýrðu tæki
19.912
(rósettur fylgja)
Áður kr. 24.890
0%
LÁTTUR
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Alvöru útsalan
ENDAR!
BOZZ- LH2202-3
Hitastýrt sturtu
með niður eða
(rósettur fylgja
7.112
Áður kr. 8.89
tæk
)
0
uppstút
i
20%
AFSLÁTTUR
AVID SETT
kassi, hnappur
og hæglokandi seta.
Þýsk gæðavara
29.554
Áður kr. 37.890
Skál:
„Scandina
design“
3-6 lítra
hnappur
CER
WC -
25%
AFSLÁTTUR
Oulin Florens
eldhústæki
Verð nú
8.918
Áður 11.890 kr.
25%
AFSLÁTTUR
2
AFS
via
Oulin og Bolego
stálvaskar
Mikið úrval
Verð frá
4.893
20-30%
AFSLÁTTUR
20/1/2018
EIN
NIG
Á
VEF
NUM
!
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Davíð Oddsson, ritstjóri Morgun-
blaðsins, varð sjötugur í gær og
bauð Árvakur, útgefandi Morgun-
blaðsins, mbl.is og K100, til veg-
legrar veislu í Hádegismóum í til-
efni þess.
Margt var um manninn í veisl-
unni og heiðruðu vinir og velunn-
arar Davíðs hann með nærveru
sinni. Sigurbjörn Magnússon,
stjórnarformaður Árvakurs, og
Haraldur Johannessen, fram-
kvæmdastjóri og ritstjóri Morgun-
blaðsins, héldu tölu áður en Karla-
kórinn Fóstbræður söng fyrir
gesti.
Sigurbjörn vék m.a. í ræðu sinni
að því þegar stjórn Árvakurs réð
þá Davíð og Harald sem ritstjóra
á sínum tíma og sagðist ekki
muna eftir því að fjölmiðlar hefðu
sýnt ráðningu einkafyrirtækis á
tveimur starfsmönnum jafnmikinn
áhuga og þegar þeir voru ráðnir.
Sagði hann Davíð hafa slegið
mörg met hvað varðar starfsaldur
í ýmsum stöðum, meðal annars
sem forsætisráðherra, en erfitt
væri fyrir hann að sitja lengst
sem ritstjóri Morgunblaðsins þar
sem forverar hans í starfi störfuðu
margir hverjir á þriðja tug ára.
Tók Sigurbjörn þó fram að Davíð
væri við hestaheilsu og því væri
aldrei að vita.
Tók afmælisdaginn snemma
Davíð tók afmælisdaginn
snemma og mætti í morgun-
útvarpið hjá K100 í tilefni dagsins.
Í útvarpsviðtalinu var hann spurð-
ur út í áfangann og sagði hann
léttur í bragði að hann hefði stefnt
lengi að því að verða sjötugur. Að-
spurður segist hann langt því frá
á þeim buxunum að setjast í helg-
an stein og vitnaði til þess að
Morgunblaðið, sem orðið er 105
ára gamalt, hefði ekki hætt þegar
það varð 70 ára. „Því ætti ég að
gera það?“ sagði Davíð sem sló á
marga létta strengi.
Seinna um kvöldið hélt Davíð
afmælisveislu fyrir vini og vanda-
menn á Grand hóteli.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Karlakórinn Fóstbræður kom og söng af lífi og sál fyrir veislugesti. Kórsöngur-
inn hljómaði vel í Hádegismóum og vakti lukku meðal afmælisgestanna.
Morgunblaðið/Eggert
Þordís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir ráðherra og
Jón Bjarnasson fyrrv. ráðherra, voru meðal gesta.
Morgunblaðið/Eggert
Halldór Benjamín, Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir,
Sigurbjörn Magnússon og Haraldur Johannessen.
Heiðruðu sjötugan Davíð Oddsson
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Samstarfssveinar Ketill Larsen leikari heilsar upp á afmælisbarnið í veislunni í gærdag. Þeir Davíð léku saman jólasveina fyrir margt löngu, fyrst 1966.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Sigurbjörn Magnússon, stjórnformaður Árvákurs
og Guðni Ágústsson, fyrrverandi ráðherra.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Eyþór Arnalds, Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, Sigríður And-
ersen og Jón G. Zoëga létu sig ekki vanta í móttökuna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Bjarni Benediktsson, fjármálaráðherra og formaður
Sjálfstæðisflokksins heilsaði upp á forvera sinn.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Lillý Valgerður Oddsdóttir, systir Davíðs Oddssonar, lét
sig ekki vanta í afmælisveislu bróður síns í Hádegismóum.