Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
ÞORRINN
45-60 ml brennivín
15-20 ml ferskur sítrónusafi
100 ml af gæða engiferbjór
(óáfengum)
Sítrónusafanum hellt í Mos-
cow mule-könnu eða Collins-
glas.
2-3 ísmolum bætt við og
brennivíninu hellt yfir.
Loks er engiferbjórnum bætt
við.
Brenni-
víns-mule
Þorrinn er
fínn tími
fyrir kokkteil
Það er ekkert sem bannar að bregða á leik með góðum
kokkteil á þorra, og t.d. hægt að gera mjög skemmtilega
hluti með brennivín og kokkteilhristara við höndina
Tilraunir Jónas Heiðarr
segir hægt að skipta vodka
út fyrir brennivín í sumum
kokkteilum og getur gefið
drykkjunum meiri per-
sónuleika.
eilakeppninni World Class
Competition á Íslandi í fyrra, og ber
því með réttu titilinn besti barþjónn
Íslands 2017. Hann segir hefðirnar í
kringum þorramatinn góðar og gild-
ar, en að gaman geti verið að bregða
á leik með þorradrykkina og blanda
t.d. kokkteila sem sameina það
gamla og það nýja.
Þorri í Moskvu
„Moscow mule er mjög vinsæll
drykkur um þessar mundir og ætti
að geta farið vel með þorramat, með
Mörgum þykir ómissandi á þorra að
skola þjóðlegum íslenskum kræsing-
unum niður með þjóðlegum áfengum
drykkjum. Ekki er amalegt að klára
eins og eitt brennivínsskot með
sviðasultunni eða hrútspungunum
og bjór þykir fara ágætlega með
þorramatnum – og þá ekki síst
þorrabjórarnir sem brugghúsin hafa
tekið upp á að laga á þessum tíma
árs.
Jónas Heiðarr Guðnason, kokk-
teilbarþjónn á Apótekinu í Austur-
stræti varð hlutskarpastur í kokkt-
Klassískur kokkteill með íslenskum keim.
45 ml af Rúg whiskey (e. Rye whiskey)
15 ml af campari
15 ml af Börkur bitter frá Foss Distillery
15 ml af sætum vermút
Innihaldsefnin sett í hristara. Hristarinn er því næst fylltur að 2⁄3 af ís,
og blandan hrærð í 30 sekúndur á meðan hún kólnar.
Hellt í gegnum síu í glas og borið fram.
Birch Boulevardier
Þegar frost
er á fróni
Bóndadagsgjöfin í ár
OLYMPIA 100% Merino ullarnærföt
Stærðir: S–XXL
Sölustaðir:
• Hagkaup
• Fjarðarkaup
• Útilíf
• N1
• Vesturröst
• Verslun Guðsteins Eyjólfssonar
• Verslunin Bjarg, Akranesi
• JMJ, Akureyri
• Lífland, Blönduósi
• Verslunin Blossi, Grundafirði
• Efnalaug Vopnafjarðar
• Kaupfélag Skagfirðinga
• Smart, Vestmannaeyjum
• Kaupfélag V-Húnvetninga
• Borgarsport, Borgarnesi
• Verslun Bjarna Eiríkssonar, Bolungarvík
• Verslun Dóru, Höfn
• Þernan, Dalvík
• Siglósport, Siglufirði
• Skóbúð Húsavíkur
• Efnalaug Suðurlands, Selfossi Höfðabakka 9, 110 Reykjavík | Sími 561 9200 | run@run.is | www.run.is