Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRTækni
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
Guðmundur Sv. Hermannsson
gummi@mbl.is
Vélmenni, vélhundar, drónar, sjálf-
keyrðir rafbílar og mótorhjól, snjöll
heimilistæki, sjálfvirkar ferðatösk-
ur, blandveruleiki, snjallgæludýra-
rúm, líkamsvarahlutir. Allt var
þetta og margt fleira til sýnis á
mikilli raftækjaneytendasýningu í
Las Vegas í Bandaríkjunum í síð-
ustu viku.
Helstu tæknifyrirtæki heims
sýndu þarna nýjustu afurðir sínar
sem ætlaðar eru fyrir almennan
markað. Rafbílar, sumir sjálfkeyr-
andi, rafhjól, og drónar voru áber-
andi. Einnig sáust rafknúin hjóla-
bretti. Og framundan er greinilega
hörð barátta ferðatöskuframleið-
enda um kaupendur því ekki færri
en þrjú fyrirtæki sýndu sjálfkeyr-
andi ferðatöskur, sem fylgja eig-
endum sínum eftir í flugstöðvum.
Annað fyrirtæki sýndi einnig ferða-
tösku, sem hægt er að breyta í
einskonar hjólastól ef eigandi
hennar verður þreyttur á að
þramma um langa flugstöðvar-
ganga.
Mörg fyrirtæki eru að þróa
tækni sem tengist læknisfræði,
heilsugæslu og öldrunarþjónustu.
Á málþingum tengdum sýningunni
ræddu læknar um leiðir til að
stjórna eða draga úr sársauka, m.a.
með því að nota auðgaðan raun-
veruleika. Þannig hafa sýndarveru-
leikagleraugu nýst við sársauka-
stjórnun með því að endurskapa
róandi umhverfi og einnig til að
hjálpa fólki við að takast á við ann-
arskonar áföll.
Loftpúðaskór
Skynjarar, tölvuský og gervi-
greind verða æ algengari þáttur af
daglegu lífi fólks. Á sýningunni
mátti meðal annars sjá þessa tækni
notaða í hlutum, sem ætlaðir eru
öldruðum. börnum og gæludýrum.
Sem dæmi um það má nefna skó,
búna loftpúðum sem blása upp ef þeir, sem í þeim eru, missa jafn-
vægið, Einnig gæludýralúgur, sem
opnast sjálfkrafa þegar dýr nálg-
ast, og snjallrúm fyrir hunda og
ketti sem stillir hitastig sjálfkrafa.
Áberandi á sýningunni var bar-
átta stóru netfyrirtækjanna, Goog-
le og Amazon, um yfirráð á sviði
gervigreindartækni. Fyrirtækin
sýndu ýmsar lausnir fyrir „snjöll“
heimili og borgir þar sem hurða-
læsingum, öryggiskerfum og um-
ferð er stjórnað með aðstoð net-
tenginga og gervigreindar.
Skynvæddar vélar
Þá eru tæknifyrirtæki byrjuð að
þreifa fyrir sér með „skynvædda“
greind þar sem vélmenni þekkja
fólk og skynja tilfinningar þess og
eiga við það samskipti á „mann-
legum“ nótum.
En eins og í sýndarveruleika var
ekki allt sem sýndist á sýningunni.
Einn bás, sem vakti mikla athygli,
var merktur fyrirtæki að nafni
Psychasec og virtist sýna einskonar
líkamsvarahluti. Í ljós kom síðan að
básinn var á vegum sjónvarpsveit-
unnar Netflix sem notaði tækifærið
til að kynna væntanlega sjónvarps-
þætti sem nefnast Altered Carbon.
AFP
Varalíkamshlutar Það sem virtust vera varahlutir fyrir menn
reyndust vera auglýsingar fyrir nýja sjónvarpsþætti Netflix.
AFP
Rafhjól Tilraunagervigreindarhjól frá Yamaha. Hjólið þekkir
eiganda sinn og hægt er að stjórna því með bendingum.
AFP
Prentgripir Líkneski af Donald Trump var meðal sýningar-
gripa, sem búnir höfðu verið til með þrívíddarprentara.
Heimilin verða stöðugt snjallari
Helstu tæknifyrirtæki heims sýndu afurðir sínar í Las Vegas Gervigreind, tölvuský og sjálf-
virkni verða stöðugt stærri hluti af daglegu lífi fólks Gæludýrin njóta líka góðs af tækninni
Nokkrir áhugaverðir sýningargripir á CES sýningunni
Listaverk: yfirlýsing um eftirlit,
vald og gægjuþörf
Súludansvélmenni Hátækni og hátt verð í Las Vegas
Heimild: AFP Photos/
CES/companies
Sjálfkeyrandi ferðataska
UFO andlitsmaski
Tilfinninganæm vélmenni
Travelmate
Omron Automation
Stýrt með smáforriti
í snjallsíma
Getur sneitt hjá hindrunum
Kemst á allt að 11 km hraða
Rennur sjálf við hlið eiganda
Tilfinninganæmt
vélmenni sem getur
spilað borðtennis
Les í líkamstjáningu
til að meta hugarástand
og getu mótherja
Veitir ráð og hvatningu
Maskanum rennt
yfir andlitið
Fullkomin meðferð
á 90 sekúndum
Kostar 179-279 dali
um 18-28 þúsund kr.
Kostar allt að 1.100 dölum,
113 þúsund krónum
Aðeins framleiddur fyrir
sýninguna Kostar 199 dali, 20 þúsund kr.
Kostar 129.000 dali, um
13,3 milljónir króna
Þýðingartölva
Lúxusrafbíll
Travis
Breski listamaðurinn Giles Walker
Henrik Fisker
Getur þýtt samtöl
jafnóðum
Dýr og fullkominn
Rafhlaðan dugar til
644 km aksturs
Tengist tölvuskýi
Líkir eftir hreyfingum
súludansara
Búinn til úr notuðum
rafbúnaði
Knúinn áfram með gömlum
rúðuþurrkumótorum
Höfuðið er búið til úr
gamalli eftirlitsmyndavél
„Talar“ 80 tungumál
Foreo
Sjálfkeyrandi að hluta
AFP
Fatapressa Sjálfvirka fatapressan
FoldiMate brýtur saman fötum.
Félagsvélmenni Vélmenni frá Soft-
Bank Robotic sem skynjar tilfinn-
ingar og veitir fólki félagsskap.
AFP
Í húsverkunum Starfsmaður fyrirtækisins Aeolus sýnir hvað vélmenni fyr-
irtækisins er myndarlegt í húsverkunum enda leiðist því ekki að ryksuga.
AFP
Vélmennadans Lítil vélmenni dansa af mikilli list og fjöri fyrir sýningar-
gesti á raftækjasýningunni í Las Vegas í síðustu viku.
Hundalíf Vélhundurinn Aibo frá
Sony hefur þroskast mikið frá því
hann birtist fyrst árið 1998.
AFP
Lesari Vélmennið Luka frá fyrir-
tækinu Ling les bækur fyrir börn.
VISTVÆNAR
BARNAVÖRUR
Kíktu á netverslun okkar
bambus.is
Borgartún 3, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14