Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
Velkomin í okkar hóp!
Innritun og nánari upplýsingar
í síma 581 3730 og á jsb.is
Markviss, fjölbreytileg og öflug líkamsrækt
fyrir konur og stelpur sem tekur mið
af þörfum ólíkra hópa og skilar auknum krafti,
hreysti og vellíðan.
E
F
L
IR
/
H
N
O
T
S
K
Ó
G
U
R
LÍTILL TÍMI FYRIR
RÆKTINA?
Komdu þér í fantaform
með 1-2-3 æfingakerfinu okkar
Taktu einn krefjandi 30 mínútna tíma, ef þú
ert á hlaupum. Svo geturðu bætt við öðrum
og þeim þriðja eftir því sem hentar þér best.
BAKSVIÐ
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Það eru ekki allir sammála um
ágæti bjórs og hvað þá mikils
magns af honum. Þaðan af síður er
algengt að bjór sé nefndur í sömu
andrá og talað er um að breyta lífi
fólks til hins betra. Þetta á þó ágæt-
lega við um danska brugghúsið
People like us sem rekið er af ein-
hverfu fólki. Markmiðið með rekstri
þess er að bæta líf einhverfra.
Starfsfólk People like us heimsækir
Ísland um helgina og býðst fólki að
kynnast hugmyndafræðinni þarna
að baki – og vitaskuld vörunni.
People like us var stofnað af
bræðrunum Lars og Jesper Carlsen
í ágúst árið 2016. Lars er kennari
að mennt en Jesper er sálfræð-
ingur. Þeir hafa lengi unnið með
einhverfu fólki og síðan 2009 hafa
þeir rekið LeVas sem hefur það að
markmiði að mennta og fræða ein-
hverft fólk, fólk með ADHD og
fleiri greiningar. Um tíma ráku þeir
kaffihús þar sem starfaði einhverft
fólk og í gegnum það áttu þeir fund
með Mikkel Borg Bjergsø, stofn-
anda Mikkeller-brugghússins.
Hugmyndin var að brugga bjór
til að selja á kaffihúsinu en á þess-
um fundi vatt hugmyndin upp á sig.
Úr varð að ákveðið var að stofna
brugghús sem rekið væri af ein-
hverfu fólki. Þannig fæddist People
like us en framtak þetta hefur á
skömmum tíma vakið mikla athygli
í heimalandinu.
Samfélagsbylting með bjór
Þrjú markmið eru með rekstri
People like us; að brugga hágæða
handverksbjór sem seldur verði um
allan heim, að tryggja fjölmörg
störf fyrir einhverfa, fólk með
ADHD og úr öðrum hópum sem
eiga erfitt með að fóta sig í sam-
félaginu, og að ýta við ríkjandi gild-
um um það hvað telst hefðbundið.
Þetta síðastnefnda er ekki síst
mikilvægast, að mati Alberte Jann-
icke, samskiptastjóra People like
us. „Við höfum sett okkur það
markmið í ár að hrinda af stað sam-
félagsbyltingu í gegnum bjór. Það
felur í sér að skapa nýja tegund
samfélaga, að deila reynslu okkar af
því hvernig hægt er að skapa störf
með því að vinna gegn ríkjandi gild-
um á vinnumarkaði, fordómum og
með því að þora að hugsa út fyrir
kassann þegar kemur að því að
finna samstarfsaðila. Aðalatriðið er
að færa fókusinn frá erfiðleikum yf-
ir á möguleika; að hætta að ræða
um það sem er ekki að virka en í
staðinn vinna að því að breyta hlut-
unum til batnaðar,“ segir Alberte
við Morgunblaðið.
En hvað hefur gerst á þessu eina
og hálfa ári síðan brugghúsið var
stofnað? Á þeim tíma hefur People
like us sent frá sér fjöldann allan af
gæðabjórum sem bruggaðir hafa
verið í samstarfi við Mikkeller.
Bjórarnir fást á yfir 30 börum í
Danmörku. Heimahöfn þeirra á Ís-
landi er Mikkeller-barinn við Hverf-
isgötu. Bjórar People like us eru
bruggaðir í brugghúsi Flying Couch
í Kaupmannahöfn, en það er einmitt
líka rekið af Íslandsvinum sem
bruggað hafa í Borg-brugghúsi.
75% starfsmanna einhverfir
Stefna fyrirtækisins er að minnst
75% starfsmanna þess séu greindir
einhverfir, með ADHD eða tilheyri
öðrum hópum sem eiga erfitt upp-
dráttar á vinnumarkaði. Þeir vinna
á þeim sviðum sem hverjum henta,
við framleiðslu á bjór, við við-
skiptaþróun eða einfaldlega þar
sem hæfileikar þeirra nýtast best.
„Við viljum sýna öðrum fyr-
irtækjum að það gæti grætt á því
að ráða meira af fólki eins og okk-
ur,“ segir í stefnuskrá People like
us.
Einstakt tækifæri fyrir einhverfa
Danska brugghúsið People like us er rekið af einhverfum Starfsmenn þess kynna hugmynda-
fræðina og bjórinn á Mikkeller-barnum á Hverfisgötu um helgina Vilja breyta ríkjandi viðhorfum
Upphafsmenn Bræðurnir Lars og Jesper Carlsen stofnuðu People like us árið 2016. Brugghúsið hefur framleitt
fjölda áhugaverðra bjóra sem eru seldir á börum og í verslunum í Danmörku. Starfsmenn eru flestir einhverfir.
UN Women á Íslandi hafa afhent
griðastöðum UN Women í Zaatari
flóttamannabúðunum í Jórdaníu
rúmar 18 milljónir króna, sem söfn-
uðust í neyðarsöfnun og jólagjafa-
sölu landsnefndar samtakanna. Fyr-
ir þetta fé verður þrjátíu konum í
búðunum veitt atvinna og laun í heilt
ár og að auki verður rúmlega 1.250
nýbökuðum mæðrum í Zaatari af-
hentur Mömmupakki UN Women
sem inniheldur ungbarnaföt, burðar-
rúm og ullarsjal fyrir mömmuna.
Í tilkynningu frá UN Women seg-
ir að á bilinu 60-80 börn fæðist á viku
í Zaatari búðunum.
Síðastliðið haust heimsótti UN
Women á Íslandi ásamt Elizu Reid
forsetafrú Íslands, Evu Maríu Jóns-
dóttur verndara UN Women á Ís-
landi, og tökuteymi griðastaði UN
Women í Zaatari búðunum, sem eru í
eyðimörk í Jórdaníu, skammt frá
landamærum Sýrlands. Þar halda til
um 82 þúsund Sýrlendingar sem flú-
ið hafa heimahagana og eru atvinnu-
tækifæri fyrir konur í búðunum af
skornum skammti.
„Það var magnað að sjá með eigin
augum hvernig griðastaðirnir hafa
breytt lífi kvenna í Zaatari,“ er haft
eftir Stellu Samúelsdóttur, fram-
kvæmdastýru UN Women á Íslandi,
í tilkynningunni.
Ljósmynd/UN Women
Takk! Amira er 53 ára og flúði Sýrland fyrir tæpum sex árum. Eiginmaður
hennar er týndur og hún starfar á griðastað UN Women í Zaatari-búðunum.
Gefa griðastöðum í
Zaatari 18 milljónir
Laun fyrir 30 konur og Mömmupakki
Hægt er að kynna sér bjóra frá
People like us á Mikkeller & fri-
ends-barnum við Hverfisgötu
frá fimmtudegi til laugardags. Í
dag verður kynning á brugghús-
inu, á föstudag segja starfs-
menn þess sögur úr reynslu-
heimi sínum og á laugardag er
lokahóf.
Alla dagana verður á nafn-
lausa pítsastaðnum á neðri
hæðinni hægt að fá People like
us-pítsu en ágóði af sölu hennar
og ágóði af sölunni á barnum
mun renna til Specialisterne á
Íslandi. Einhverfusamtökin eru
einnig sérstakur velunnari
heimsóknarinnar. Nánari upp-
lýsingar um viðburðinn og tíma-
setningar má finna á Facebook.
Veisla á
Hverfisgötu
Í HEIMSÓKN Á ÍSLANDI
Útrás Myndin er tekin þegar bjór People like us var í fyrsta sinn seldur utan
Danmerkur, á Brewdog-barnum í Shoreditch-hverfinu í London.