Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 28
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 18. JANÚAR 2018
ÚR BÆJARLÍFINU
Skapti Hallgrímsson
Akureyri
Nýr oddviti verður á lista eins
„gömlu“ flokkanna fyrir kosningar
til bæjarstjórnar á Akureyri, hið
minnsta. Einn núverandi oddviti
liggur undir feldi og íhugar hvort
hann gefi kost á sér aftur.
Dagbjört Pálsdóttir, bæjar-
fulltrúi Samfylkingarinnar, gefur
kost á sér í efsta sæti á lista flokks-
ins, sem á nú tvo bæjarfulltrúa og er
í meirihluta ásamt Framsóknar-
flokknum og L-lista fólksins.
Sigríður Huld Jónsdóttir, sem
var í öðru sæti hjá Samfylkingunni
fyrir fjórum árum, ætlar að hætta
og Logi Már Einarsson, oddviti í síð-
ustu kosningum, er orðinn formaður
flokksins og situr á Alþingi. Bjarki
Ármann Oddsson, sem var í þriðja
sæti, er fluttur úr bænum og Dag-
björt var í fjórða sæti listans 2014.
Guðmundur Baldvin Guð-
mundsson, oddviti Framsóknar-
flokksins og formaður bæjarráðs,
hefur tilkynnt að hann bjóði sig
fram á ný. Athygli vekur að fyrrver-
andi leiðtogi flokksins í bæjarstjórn,
Jóhannes Gunnar Bjarnason, býður
sig fram á ný en segist stefna á
þriðja til fimmta sæti.
Gunnar Gíslason vill leiða lista
Sjálfstæðisflokksins áfram og
kveðst munu leggja til að oddviti
flokksins verði bæjarstjóraefni.
„Það er ljóst af minni hálfu að ég
býð mig fram í fyrsta sæti til að
verða bæjarstjóri, en ekki er búið að
taka ákvörðun um það innan flokks-
ins,“ segir Gunnar við Morgunlaðið.
Sóley Björk Stefánsdóttir verð-
ur án nokkurs vafa í efsta sæti á lista
Vinstrihreyfingarinnar – græns
framboðs eins og fyrir fjórum árum
en Edward Huijbens, sem var í 2.
sæti síðast, er orðinn varaformaður
VG og verður mjög líklega neðar á
lista vegna anna í embætti varafor-
manns.
Matthías Rögnvaldsson, oddviti
L-lista fólksins og forseti bæjar-
stjórnar, liggur undir feldi. Hefur
ekki ákveðið hvort hann gefur
kost á sér aftur og ekki liggur ljóst
fyrir hvenær verður raðað á
listann.
Píratar munu bjóða fram á
Akureyri í fyrsta skipti og stefnir
Einar Brynjólfsson, fyrrverandi
þingmaður flokksins, að því að
skipa efsta sætið. Þá stefnir Mið-
flokkurinn á að bjóða fram í bæjar-
stjórnarkosningunum á Akureyri,
svo og Viðreisn. Ekki hefur verið
ákveðið hvort Dögun bjóði fram
aftur en það ætti að skýrast mjög
fljótlega.
Því er fagnað á árinu að aldar-
fjórðungur er frá stofnun Lista-
safnsins á Akureyri. „Það er einkar
viðeigandi að á þessum tímamótum
skuli gamalt og gott loforð verða
efnt og safnið fái á afmælisárinu
efstu hæð gamla Mjólkursamlags-
ins til afnota,“ segir í tilkynningu
sem send var frá safninu í gær.
Miklar breytingar standa yfir í
safninu. Sýningarsalir verða opn-
aðir á efstu hæðinni 17. júní og nú
er unnið að viðbyggingu sem tengir
Listasafnið og Ketilhúsið. Húsin
mynda því eina heild.
Nýr inngangur með aðgengi fyrir
hreyfihamlaða verður tekinn í notk-
un ásamt safnbúð og kaffihúsi. Í
nýju safni verður einnig stórbætt
aðstaða fyrir safnfræðslu og skap-
andi starf með börnum og full-
orðnum. Fræðsla, fyrirlestrar, leið-
sagnir og safnkennsla eru meðal
þess sem Listasafnið hefur lagt
aukna áherslu á undanfarin misseri
og verður engin breyting þar á.
Sýningaárið byrjar 24. febrúar
þegar tvær sýningar verða opn-
aðar; á miðhæð Ketilhússins verður
hin árlega samsýning starfandi
listamanna og skólabarna, Sköpun
bernskunnar, en á svölunum verður
Kyrrð, sýning Helgu Sigríðar
Valdemarsdóttur. Við taka sýn-
ingar á verkum Bergþórs Mort-
hens, Rof, nemenda listnáms- og
hönnunarbrautar VMA og útisýn-
ingin Fullveldið endurskoðað.
Listasafninu verður lokað í maí
og fram til 17. júní þegar nýtt safn
verður formlega tekið í notkun. Þá
verða opnaðar hvorki meira né
minna en sjö sýningar samdægurs:
Aðalheiður S. Eysteinsdóttir, Hug-
leiðing um orku; Sigurður Árni Sig-
urðsson, Hreyfðir fletir; Aníta Hir-
lekar, Bleikur og grænn; Svipir –
valin verk úr safneign Listasafns
ASÍ, Hjördís Frímann og Magnús
Helgason; Hugmyndir, Úrval – val-
in verk úr safneign Listasafnsins á
Akureyri og yfirlitssýningin Frá
Kaupfélagsgili til Listagils.
Haldið verður upp á 25 ára af-
mæli safnsins í lok ágúst en nánari
útlistun á því verður kynnt síðar.
Gjörningahátíðin A! er á sínum stað
í dagskránni og í ár verður Lista-
safnið í fyrsta sinn þátttakandi í
Iceland Airwaves á Akureyri.
Síðustu sýningar ársins verða
svo yfirlitssýningar á verkum Þor-
valdar Þorsteinssonar, Heima, og
Arnar Inga, Lífið er LEIK-fimi,
ásamt einkasýningu franska mynd-
listarmannsins Ange Leccia, Hafið.
Pólitík og myndlist í deiglunni
Ljósmynd/Ragnar Hólm
Breytingar Miklar framkvæmdir standa yfir í Listasafninu á Akureyri og hlutar hússins eru nánast óþekkjanlegir.
Ljósmynd/Ragnar Hólm
Öryggi Fjölmiðlamenn fengu að skoða framkvæmdir á Listasafninu í gær
þegar dagskrá ársins var kynnt og öryggið var að sjálfsögðu sett á oddinn.
Tveir sendifulltrúar Rauða krossins
eru komnir til Cox́s Bazaar í Bangla-
dess, þeir Ríkarður Már Pétursson
og Róbert Þorsteinsson. Þeir bætast
þannig í hóp Sigurjóns Arnar Stef-
ánssonar svæfingalæknis og Guð-
bjargar Sveinsdóttur geðhjúkrunar-
fræðings sem eru nú að störfum þar í
landi.
Þeir Ríkarður og Róbert eru
sautjándi og átjándi sendifulltrúinn
sem Rauði krossinn á Íslandi sendir
til starfa á tjaldsjúkrahús norska
Rauða krossins í Bangladess, að því
er fram kemur í frétt frá Rauða
krossinum.
Róbert fór í sína fyrstu sendiferð
fyrir Rauða krossins fyrir 23 árum,
en þá starfaði hann í Tansaníu. Sú
ferð reyndist honum örlagarík þar
sem þar kynntist hann núverandi
konu sinni. Í kjölfarið fluttu þau til
heimalands hennar, Japans, þar sem
þau hafa búið síðan. Róbert er við-
skipta- og hagfræðingur og starfaði
nú síðast í Hargeisa í Sómalíu fyrir
Alþjóðasamband Rauða krossins
(ICRC). Róbert mun starfa sem fjár-
málastjóri tjaldsjúkrahússins næstu
vikur.
Ríkarður sem er rafiðnaðarfræð-
ingur að mennt er margreyndur
sendifulltrúi. Árið 2015 kom hann
tjaldsjúkrahúsi upp í Nepal í kjölfar
jarðskjálfta þar í landi og tók það
niður og var þannig við störf allan
starfstíma þess. Ríkarður á að baki
fjölmagar sendiferðir fyrir Rauða
krossinn m.a. til Afganistans, Súd-
ans, Úganda og Kenía. Sl. ár hefur
Ríkarður starfað í Kenía og El
Salvador við uppbyggingu jarð-
varmavirkjana sem og á Erítreu.
Ríkarður mun starfa sem tæknimað-
ur á tjaldsjúkrahúsinu í Cox́s Baza-
ar, segir í frétt RKÍ.
Neyðarsöfnun enn í gangi
Rúmlega 600.000 manns hafa flúið
heimkynni sín í Mjanmar yfir landa-
mærin til Bangladess og aðhafast nú
í búðum þar í landi. Neyðarsöfnun
vegna ástandsins stendur enn yfir.
Fara til hjálpar-
starfa í Bangladess
Sendifulltrúar Rauða krossins nú 18
Ríkarður Már
Pétursson
Róbert
Þorsteinsson
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
Verið velkomin
ÚTSALAN ER HAFIN
30-70% afsláttur