Morgunblaðið - 18.01.2018, Blaðsíða 1
Taka á nýjan meðferðarkjarna
Landspítalans við Hringbraut í
notkun árið 2023. SPITAL-hópur-
Lítil áhrif bílaleigubíla
» Þorsteinn R. Hermannsson
segir talningu við snið þrjú,
vestan Kringlumýrarbrautar,
sýna litla aukningu bíla-
umferðar á síðustu árum þótt
ferðamönnum hafi fjölgað
gríðarlega síðustu ár.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Við hönnun umferðarmannvirkja við
nýjan Landspítala er gert ráð fyrir
að mun hærra hlutfall starfsmanna
muni ferðast með strætó en nú er.
Þyrfti hlutfallið að margfaldast.
Þorsteinn R. Hermannsson, sam-
göngustjóri Reykjavíkur, segir
þetta ríma við þá stefnu borgar-
yfirvalda að árið 2030 verði 58%
allra ferða í borginni farin með
einkabíl, borið saman við um 75%
hlutfall slíkra ferða nú.
Kristinn Jón Eysteinsson, skipu-
lagsfræðingur hjá Reykjavíkurborg,
hefur áætlað að bílastæði verði fyrir
40% starfsmanna nýja spítalans yfir
daginn. Til samanburðar sögðust
75% starfsmanna spítalans oftast
ferðast með bíl vorið 2014. Um 6%
þeirra notuðu þá oftast strætó.
inn hefur áætlað að þá muni 5-6
þúsund manns starfa á svæðinu.
Fram kom í greinargerð SPITAL
vorið 2012 að vegna mikillar nýt-
ingar bílastæða við sjúkrahúsið yfir
daginn þyrftu starfsmenn þess að
nota bílastæði utan við deiliskipu-
lagssvæðið.
Taki strætó á spítalann
Ný stefna mótuð í umferðarmálum á svæði nýja Landspítalans
Meirihluti 5-6 þúsund starfsmanna komi ekki akandi til vinnu
MNotkun strætó … »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Hringbraut Mikil bílaumferð er
flesta daga við lóð Landspítalans.
F I M M T U D A G U R 1 8. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 15. tölublað 106. árgangur
Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500
Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504
LANDSINS
MESTA ÚRVAL
AF RIEDELGLÖSUM
KVIKMYND MARÍU
SÓLRÚNAR Á
BERLINALE
DAVÍÐ
ODDSSON
70 ÁRA
REIÐA SIG Á
MÆLINGAR Á
ÁSTANDI HAFS
MÓTTAKA Í HÁDEGISMÓUM 4 VIÐSKIPTAMOGGINNÁTÖK HJÁ ADAM 12
Icelandair
flýgur nú á 23
áfangastaði í
Bandaríkjunum
og Kanada. Ný-
lega tilkynnti
fyrirtækið að það
hygðist fljúga til
Baltimore, San
Francisco og
Kansas. Með nýj-
ustu viðbótinni
hefur fyrirtækið skipað sér í hóp
þeirra félaga sem fljúga á flesta
áfangastaði vestanhafs. Raunar er
það nú aðeins British Airways sem
býður upp á fleiri áfangastaði í
Bandaríkjunum og Kanada. Þá býð-
ur Lufthansa upp á 23 áfangastaði,
jafnmarga og Icelandair.
Björgólfur Jóhannsson, forstjóri
Icelandair Group, segir í viðtali við
ViðskiptaMoggann í dag að félagið
leiti enn nýrra áfangastaða og m.a.
sé litið til þess að sækja dýpra inn á
Evrópumarkað og jafnvel til Asíu
einnig.
Aðeins British Air-
ways með fleiri
áfangastaði vestra
Björgólfur
Jóhannsson
Stúlkur úr 6. bekk MR nýta sér góða veðrið og spila fótbolta
við ágætis aðstæður á Reykjavíkurtjörn. Snjór yfir ísilagðri
Tjörninni gerir hana að nothæfum fótboltavelli. Veðurstofan
spáir því að áframhaldandi frost verði næstu daga; veður
verði meinlítið með smáéljum og jafnvel smásnjókomu. Á
föstudag er spáð að bæti í ofankomuna á Norður- og Austur-
landi. Á sunnudaginn er búist við lægðum og einhverri ofan-
komu á austanverðu landinu. Eftir helgi verði óróleiki í veðr-
inu og lægðagangur.
Líf og fjör í vetrarsól á Tjörninni í Reykjavík í stilltu en köldu veðri
Morgunblaðið/Hari
Náttúrulegur fótboltavöllur
Vegagerðin kynnti í haust tillög-
ur til úrbóta á Hafnarfjarðarvegi í
gegnum Garðabæ. Þær fólu í sér
talsverðar breytingar á samgöngu-
mannvirkjum og átti að ráðast í
framkvæmdir í vor. Bæjaryfirvöld í
Garðabæ hafa nú óskað eftir því við
Vegagerðina að skoðaðar verði
endurbætur sem séu umfangsminni
en fyrri tillögur og fram fari grein-
ing á öðrum lausnum og kostnaði.
Gunnar Einarsson bæjarstjóri
segir að samkvæmt aðalskipulagi
Garðabæjar frá 2006 sé miðað við
að Hafnarfjarðarvegur verði lagð-
ur í stokk milli Vífilsstaðavegar og
Lyngáss og þar verði mislæg gatna-
mót. Stokkalausn sé enn helsta
krafa bæjaryfirvalda en tillögurnar
séu ekki í samræmi við aðal-
skipulag. „Við óttumst að verði far-
ið í tillögur Vegagerðarinnar eins
og þær voru upphaflega kynntar sé
það svo mikil framkvæmd að enn
lengra verði í stokkalausnina. Því
viljum við skoða einfaldari lausnir,“
segir Gunnar. »24-25
Bíða stokkalausnar
og vilja minni fram-
kvæmdir á meðan