Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 26.04.2018, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 6. A P R Í L 2 0 1 8 Stofnað 1913  97. tölublað  106. árgangur  Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 LANDSINS MESTA ÚRVAL AF RIEDELGLÖSUM EINN VINSÆLASTI HÖFUNDUR SAMTÍMANS UPPBYGGING INNVIÐA ER LYKILLINN MYND- OG HLJÓÐDISKAR FRÁ ÁRNA VIÐSKIPTAMOGGINN SÖNGVASKÁLD 28DAN BROWN 78 Morgunblaðið/Eggert Vestfirðir Maður nýtur þess að taka sér pásu í sólskini við Ísafjarðarhöfn.  „Ef samgöngur, raforka og net- tengingar eru á pari við aðra lands- hluta þá getur svæðið plumað sig,“ segir Sigríður Ólöf Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Vestfjarðastofu, m.a. í samtali við Morgunblaðið en fjallað er í dag um Vestfirði í að- draganda sveitarstjórnarkosninga í vor. Sveitarfélögin á Vestfjörðum eyða mikilli orku í að berjast fyrir málum sem sveitarfélögin í flestum öðrum landshlutum telja sjálfsögð. Samgöngumál, orkumál og at- vinnumál eru ofarlega í hugum íbúa sem rætt er við. »38-39 Vestfirðir verði á pari við aðra Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Ef dráttur verður á framkvæmdum við endurbætur á hluta Þingvalla- vegar mun þurfa að gera hann að einstefnuvegi og veginn við vatnið að einstefnuvegi á móti. Við það fær- ist stærri hluti umferðarinnar en nú er að Þingvallavatni. Þingvallavegur er orðinn svo veikburða að Vega- gerðin treystir honum ekki til að bera umferð í báðar áttir, hann sé hættulegur eins og slys og óhöpp sýni. Eftir tveggja ára undirbúning bauð Vegagerðin vegarkaflann út og fékk hagstæð tilboð. Skipulagsstofn- un hafði samþykkt að framkvæmdin þyrfti ekki að fara í umhverfismat. Halda að sér höndum Landvernd kærði þá ákvörðun í síðasta mánuði til úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála. Telja samtökin að gefa þurfi landsmönn- um tækifæri til að segja álit sitt á svo stórri framkvæmd. Vegagerðin heldur að sér höndum með samn- inga á meðan málið er í vinnslu hjá úrskurðarnefndinni. Landvernd krafðist þess jafnframt að fyrirhug- aðar framkvæmdir yrðu stöðvaðar en úrskurðarnefndin hafnaði þeirri kröfu. Taldi ekki knýjandi nauðsyn bera til þess vegna þess að niður- staða Skipulagsstofnunar veitir ekki heimild til að hefja framkvæmdir. Umsókn Vegagerðarinnar um framkvæmdaleyfi er til umfjöllunar hjá sveitarfélaginu Bláskógabyggð og vonast Helgi Kjartansson oddviti til að það verði gefið út á næstunni. Þá gefst Landvernd og öðrum tæki- færi til að kæra aftur og reyna að stöðva framkvæmdina ef áhugi er á. Seinkun leiðir til einstefnu  Endurbætur á Þingvallavegi í biðstöðu  Landvernd kærði ákvörðun um að ekki þyrfti umhverfismat  Úrskurðarnefnd hafnar kröfu um stöðvun framkvæmda Framkvæmdin » Vegagerðin hyggst breikka veginn á 9 kílómetra kafla milli þjónustumiðstöðvar og syðri vegamóta við Vallaveg. » Umferðin hefur aukist úr 430 bílum á sólarhring árið 2010 í 1.500 bíla árið 2015. Vegagerðin spáir því að umferðin verði 4.000 bílar eftir 25 ár. MVegurinn ónýtur »18 Smábátaeigendur þurfa að halda bátum sínum við og láta skoða þá. Mörg handtök eru við það, sérstaklega ef bátarnir hafa staðið lengi ónot- aðir, eins og raunin er með Björgu Hallvarðs- dóttur á Akranesi. Eigendurnir voru að botn- hreinsa og mála bátinn. Gísli Hallbjörnsson pússaði skrúfuna og lakkaði. Óvíst er hvort bát- urinn verður gerður út á strandveiðar í sumar því eigendurnir hyggjast reyna að selja. Morgunblaðið/Hari Pússar skrúfuna fyrir skoðun Vorverkin eru drjúg hjá eigendum smábáta  Svonefndir fá- gætisferðamenn gera miklar kröf- ur til afþreying- ar og aðbúnaðar meðan á dvöl þeirra stendur hér á landi. Þeir eru líka reiðu- búnir að greiða vel fyrir veitta þjónustu og eru því eftirsóttir við- skiptavinir. Búið er að byggja upp innviði sem koma til móts við kröfur þessa hóps. Þar má nefna t.d. staði á borð við Deplar Farm, Eldar Lodge, The Retreat við Bláa lónið og hótelið Reykjavík Konsúlat. »34 Gera kröfur og borga vel fyrir Reykjavík Konsúlat.  Austurríska hugbúnaðarfyrir- tækið Novomatic Lottery Solutions, áður Betware, sem er með skrif- stofur í Holtasmára í Kópavogi, hef- ur sagt upp 18 starfsmönnum sínum hér á landi. Samkvæmt upplýs- ingum frá fyrirtækinu unnu starfs- mennirnir sem misstu störf sín við hugbúnaðargerð. Vinnumálastofn- un mun hafa verið greint frá ákvörðuninni. »ViðskiptaMogginn 18 missa vinnuna hjá Novomatic
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.