Morgunblaðið - 26.04.2018, Qupperneq 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 26. APRÍL 2018
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Það er vítt til veggja og hátt til lofts
á heimili Vilborgar Gunnarsdóttur í
Perrysýslu í Pennsylvaníu. Raunar
minnir stofan á setustofu á sveita-
hóteli, svo rúmgóð er hún.
„Það er ekki auðvelt að þurrka af
loftbitunum,“ segir Vilborg og
brosir og bendir svo upp í rjáfur.
Rúm 35 ár eru síðan Vilborg flutti
til Bandaríkjanna. Hún og eigin-
maður hennar, Thomas Edward
Jablonski, áttu saman átta börn.
Hann starfaði alla ævi fyrir Banda-
ríkjaher og fylgdu því tíðir flutn-
ingar fyrir fjölskylduna. Nú er hann
á eftirlaunum og börnin flogin úr
hreiðri. Vilborg hellti upp á kaffi
þegar ferðalang bar að garði í vor.
Vilborg fæddist árið 1950 í
Reykjavík. Foreldrar hennar voru
Gunnar Mekkinósson og Erla Guð-
mundsdóttir. Bæði eru nú látin.
Fjölskyldan fluttist til Kanada árið
1958 þegar Vilborg var 8 ára.
Með verslun á Laugavegi
„Faðir minn var flinkur bólstrari.
Áður en við fluttum til Kanada var
hann með verslun á Laugavegi 66.
Það var fyrsta verslunin á Íslandi
sem seldi húsgögn á víxlum. Magnús
Jóhannsson í Skeifunni keypti
reksturinn af honum þegar við flutt-
um til Kanada. Pabbi var með verk-
stæði á Lindargötu. Var þar með
lærlinga og eigin framleiðslu.“
Eins og títt var um börn á Íslandi
á þessum árum byrjaði Vilborg
snemma að vinna fyrir sér.
„Ég vann sem unglingur á elli-
heimilinu Grund. Helmingurinn af
vistmönnum á Grund þekkti mína
fjölskyldu. Ég held að hinn helming-
urinn hafi verið skyldur mér,“ segir
Vilborg og hlær við.
Föðurbróðir Vilborgar flutti til
Kanada og fylgdi Gunnar í kjölfarið
með fjölskylduna til norðurhluta
Vancouver. Þar festi fjölskyldan
ekki rætur og eftir tvö ár fluttu
hjónin aftur heim. Þau skildu svo
eftir heimkomuna og ólust börnin
upp hjá föður sínum á Laugavegi 33.
Afi Vilborgar, Mekkinó Björnsson,
rak þar verslunina Viktor.
Vilborg á þrjú alsystkini og tvö
hálfsystkini. Þau heita Grétar Felix-
son og Gunnar Mekkinó Gunn-
arsson, sem búa báðir á Íslandi, og
Ferðaðist um heiminn með hernum
Vilborg Gunnarsdóttir fylgdi ástinni milli herstöðva Bandaríkjahers Börnin fóru líka í herinn
Hjónin kynntust hjá varnarliðinu á Íslandi Saman eiga þau átta börn og þrjú barnabörn
SJÁ SÍÐU 32
Morgunblaðið/Baldur
Á björtum vordegi Vilborg Gunnarsdóttir og eiginmaður hennar, Thomas Jablonski, búa í sveitinni í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum. Þau hafa á viðburðaríkri ævi búið víða um heim.
Þegar gengið er um heimili Vilborgar leynir sér ekki að hún er listræn.
Þar eru margir handgerðir munir, bollar og skálar, sem hún hefur gert í
frístundum. Vilborg var listhneigð á yngri árum og hafði sem barn gam-
an af því að teikna á renninga sem hún fékk í prentsmiðju á Vatnsstíg 4.
Aðstæður leyfðu ekki listnám.
Þegar börnin luku námi í menntaskóla fyrir nokkrum árum hafði hún
tíma til að rækta þetta áhugamál sitt á ný. Setja munirnir fallegan svip
á heimilið. Þá prýða heimilið teikningar eftir Barböru Árnason sem
listamaðurinn gerði af Vilborgu þegar hún var barn.
Sneri sér að listinni
GERIR LISTMUNI Í FRÍSTUNDUM
Úr leir Vilborg hefur á síðustu árum ræktað listhæfileika sína.
Laugavegi 103, við Hlemm | 105 Reykjavík | Sími 551 5814 | www.th.is
Ferðatöskutilboð
afsláttur af ferðatöskum í millistærð (67 x 4
20-30%
afsláttur