Breiðfirðingur - 01.04.1989, Blaðsíða 11
BREIÐFIRÐINGUR
9
fitx ^tág^a°*)
'«9*j Q - - *- / w>«4 Áff
- - I r*-» ►T' T BWTWK^ r /'
^ TJ*^*** y >/*** 'S**4*t\X*X‘ (f** °
<*3™- \Xl-rfí+*S. ýjpÍyC? a£ ý* {?***þ>S<XK\
'§*• >^*v£* •;■ r-['e.\\tvl&*(*A:p*ozn^x'
$rj <r-x>y.m Yyk (fc* á'g±c* s<~*fr"P
or$-m*S+t9. fr Lanfi Étí*^ fy*é**rý
1j>vr ^íf />»r
_/ E' 1» /J M a^f> -*-tl
V -/>»*
Uy+rt+t -»**■' .
Mynd 2. Mynd úr handrítinu AM 114 fol., bl 253 v. Handritið skrifaði Jón
Gissurarson á Núpi í Dýrafirði um 1630 eftir skinnhandriti með
Sturlungasögu allri. Hér lýkur Sturlu þœtti með þessum orðum:
Sturía gjörði bú í Fagurey en fékk Snorra syni sínum Staðarhól til
ábúðar. Sat Sturla þá þar í góðri virðingu mörg ár í elli sinni þar
til Sturla andaðist í Fagurey einni nótt eftir Ólafsmessudag. Var
hann og oleaður messudaginn fyrri og svo hinn síðari. Hann var
þá nœr sjötugu. Fluttu frœndur hans og vinir lík hans á Staðarhól
og jörðuðu það þar í kirkju Péturs postula er hann hafði nœr
mesta elsku á haft aföllum helgum mönnum. Ljósmynd: Jóhanna
Ólafsdóttir.
bújörðum og fleira. Samkvæmt Jarðabókinni var einn ábú-
andi á eynni árið 1702, þó ekki landeigandi, og auk þess tvær
búðir (hjáleigur). Tvær aðrar voru í eyði, önnur nýlega
niðurfallin. Heimræði er sagt gott, þegar fisk gefur, og
sömuleiðis tún sem þó þarfnast mikillar ræktar. Helstu
hlunnindi voru selveiði, eggja-, dún-, lunda- og sölvatekja.
Bústofn ábúanda var sex kýr, sextán ær og sjö lömb. Enn-
fremur gerði hann út tvo báta. Hjáleigumenn höfðu hvor um
sig eina kú, en annar þar að auki tvær ær og þrjú lömb og
fiskaði á eigin báti og sonur hans á öðrum.9 Samtals 25 per-
sónur töldust til heimilis í Fagurey veturinn 1703, en þá fór
fram fyrsta almenna manntal á íslandi.10
Tveir ábúendur voru í Fagurey 1801 og þrír 1845, en það