Breiðfirðingur - 01.04.1989, Page 14
12
BREIÐFIRÐINGUR
mannvistarleifar, s.s. þústir og hleðslur, kallaðar einu nafni
rústir. Með tóftum er hins vegar átt við vegg, sem ekki hefur
tekist að úrskurða sem hús, heystæði eða annað. Hús og
kofar með ókunnugt hlutverk flokkast sem hús.
Afgirt svæði klakahús
brunnur matjurtagarður
bryggja naust
bær nátthagi
bænhús rétt
fiskhjallur rúst
fjárhús skemma
fjós súrheysgryfja
garðlag tóftir
girðing traðir
hlaða útieldhús
hús útihús
hænsnakofi varða
Eins og sjá má á meðfylgjandi uppdrætti (3. mynd) er
dreifing rústa nokkuð misjöfn. Flestar eru þær um miðja og
sunnanverða eyna og þéttastar á bæjarhólnum. Leifar girð-
ingar, hænsnakofa og húss eru í Torfhólma.
Helstu minjar
Bryggjur (15, 46)
Tvær bryggjur eru í Fagurey, báðar hlaðnar úr grjóti og í
beinu framhaldi af nausti, hvor á sínum stað. Kallaðist
önnur Bryggjan (46) og var lent við hana um hálffallið í Vör-
inni,16 sem var aðallendingin í eynni uppúr 1930.17 Bryggjan
er um 30 m á lengd, 2 m á breidd og 1-1,5 m á hæð. Hin
bryggjan er vestast í Skipavík (11. mynd), um 15x1x0,5 m,
og ekki í notkun eftir 1930.18