Breiðfirðingur - 01.04.1989, Page 62
60
BREIÐFIRÐINGUR
við þeim. Húsbændur hennar töldu þess þó ekki þörf. En að
stundu liðinni kemur Sigurður læknir að Harrastöðum.
Hann var þá á heimleið frá sjúkravitjun. Bóndinn á Harra-
stöðum, Hildiþór Hjálmtýsson, tók á móti lækninum, bauð
honum til stofu og tóku þeir þar tal saman. Var nú ákveðið
að reyna að koma í veg fyrir að Manga fengi að vita um
komu læknisins. Það tókst þó ekki og fór hún sem skjótast
niður í stofuna. Sýnir hún Sigurði lækni sár sín, segir honum
hvernig þau eru til komin og biður hann að láta sig hafa
meðöl sem við eigi. Sigurður verður við bón kerlingar,
skoðar sár hennar og segir að því loknu: „Jæja, Margrét
mín, þessi sár yðar munu fljótt gróa og þér þurfið engin
meðöl. En þér verðið bara að standa yður betur næst.“
Andlát Sigurðar læknis bar að með þeim hætti að hann var
að koma heim úr ferð með strandferðaskipi sem lá á höfn-
inni í Búðardal. Uppskipunarbátur lá við skipshlið. Skip-
verjar höfðu sett stiga út á skipshliðina niður að bátnum.
Þegar Sigurður var að feta sig niður eftir stiganum féll hann
í sjóinn. Hann náðist þó fljótlega en var þá örendur. Árni
Árnason héraðslæknir taldi þó óvíst að Sigurður hefði
drukknað, heldur hefði hann fengið aðsvif á leiðinni niður
stigann. Úr því verður nú aldrei skorið.
10. vísa:
Jón vill byrja öllu á
Einar hirðir kornin smá
járn Guðmundur jafna má
Jónas baslar, hana þá.
Jón Guðmundsson. Hann fæddist 9. maí 1870 og dó 25.
janúar 1944. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmunds-
son bóndi í Ljárskógum og kona hans Solveig Jónsdóttir
Bergþórssonar í Ljárskógum. Kona Jóns var Anna Guðrún
Hallgrímsdóttir frá Laxárdal í Bæjarhreppi. Þau eignuðust
eftirtalin börn:
1. Guðmundur. Kona hans var Ástríður Hansdóttir norsk
að ætt. Þau eignuðust þrjú börn, Guðmund, Jón og Önnu.