Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 6
6 FRÉTTIR 23. nóvember 2018 Á dögunum féllu þrír dóm- ar í Héraðsdómi Reykja- víkur þar sem fram kom að Samtökum aldraðra væri óheimilt að taka eitt prósent af söluvirði íbúða og skylda eigend- ur til að selja þær á öðru verði en markaðsverði nema að fyrir lægi skýrt samþykki eigenda. Lögmað- ur þeirra sem höfðuðu málið seg- ir að þrátt fyrir niðurstöðu dóms- ins hafi Magnús B. Brynjólfsson, formaður Samtaka aldraðra, ekki látið segjast og reyni að koma í veg fyrir að eignirnar séu seldar á markaðsverði. Magnús segist vera í fullum rétti til þess og að mál- staður félagsins sé göfugur. Ógagnsætt kerfi sem virkar ekki sem skyldi Samtök aldraðra hafa undanfarna áratugi staðið fyrir byggingu yfir þrjú hundruð íbúða víða á höf- uðborgarsvæðinu. Íbúðirnar eru í einkaeigu en samtökin hafa haldið þannig utan um sölu þeirra að aðeins félagsmenn fá að kaupa íbúðirnar auk þess sem samtökin hafa krafist þess að þær séu í öll- um tilvikum seldar á verði sem á að endurspegla uppreiknað- an byggingarkostnað eignanna. Þannig hafa samtökin hafnað því að eigendur fái að selja eignirnar á markaðsverði. Þetta hafa sam- tökin gert þrátt fyrir að árið 2003 hafi gengið dómur í Hæstarétti þar sem viðurkennt var að tiltekið dánarbú mætti selja slíka fasteign á markaðsverði og að matsverð samtakanna væri ekki skuldbind- andi fyrir dánarbúið. „Þetta fyrirkomulag hjá Samtökum aldraðra væri auðvitað í góðu lagi ef eigendur hefðu samþykkt skýrlega þessar kvaðir um matsverðið sem og um 1% þóknun samtakanna af endursölu eignanna. Raunin er hins vegar sú að eigendur hafa í mörgum tilvikum ekki samþykkt þessar kvaðir og dómstól- ar hafa ítrekað staðfest að samtökin geta ekki þvingað þær einhliða upp á eigend- ur. Hér er oft um að ræða fólk sem hefur keypt eignirnar á fullu verði á frjálsum markaði og án nokkurra slíkra kvaða. Auk þessa þá er ferlið hjá samtökunum mjög ógagnsætt þannig að félagsmenn hafa litla hugmynd um hvar þeir standa í röðinni til þess að fá að kaupa eignir,“ segir Jóhannes S. Ólafsson, lögmaður þeirra sem höfðuðu málin nú. Þá segir hann að forsvarsmenn samtakanna hafi gengið afar langt í að verja þetta fyrirkomulag og freistað þess að brjóta á eignarrétti fólks og það í andstöðu við fyrirliggj- andi dómafordæmi. Þannig hafi sam- tökin ítrekað hafnað inngöngubeiðnum fólks í samtökin sem hafi viljað kaupa eignir á markaðs- verði og fælt þannig væntanlega kaup- endur frá. „Þrátt fyrir hina nýföllnu dóma þá hefur for- maður Samtaka aldraðra, Magn- ús B. Brynjólfsson, ekki látið sér segj- ast og heldur áfram að herja á fasteigna- sala og væntanlega kaupendur með hin- ar ólögmætu kvað- ir. Það gerir hann þrátt fyrir að vera full kunnugt um að eigendur umræddra eigna hafi ekki sam- þykkt þessar kvaðir og þrátt fyrir það, að nú liggi fyrir dómar sem mæla beinlínis fyrir um að eignirn- ar séu ekki bundnar þessum kvöðum,“ segir Jóhannes. Þá segir hann að sam- tökin hafi hafnað inngöngubeiðn- um fólks í samtökin sem hafi viljað festa kaup á eignunum nema þá að kaup- andinn undirriti sérstakt skjal þar sem viðkomandi sé gert að undir- gangast kvaðirnar til framtíðar. Telur dómstólinn hafa komist að rangri niðurstöðu Í samtali við DV segir Magn- ús ástæða þess að hann geri athugasemdir við fyrirhugað- ar sölur umræddra eigna sé sú að málinu hafi verið vísað til Landsréttar og því ekki útséð með hver endanleg niðurstaða verði. „Við hjá Samtökum aldraðra erum mjög ósátt við þennan dóm og teljum hann rangan. Fyrir mitt leyti vil ég segja að ég mun verja þetta kerfi fram í rauðan dauð- ann. Það hefur gefið góða raun og gert félagsmönnum okkar kleift að kaupa eignir á sanngjörnu verði. Þegar eigendur falla síðan frá þá vill græðgin því miður láta á sér kræla og erfingjar fasteignanna vilja þá selja þær á markaðsvirði. Þá er alfarið litið framhjá því að eignirnar voru keyptar á mjög sanngjörnu verði innan kerfisins. Við erum að berjast gegn Mamm- on,“ segir Magnús. Hann segir að starfsemi samtakanna sé göfug og að mestu unnin í sjálf- boðastarfi. „Við rek- um skrifstofu og erum með einn launaðan starfsmann. Önn- ur störf eru eru unnin af sjálfboða- liðum, fyrir utan þóknanir vegna stjórnarfunda,“ seg- ir Magnús. Að hans sögn fær hann sem formaður 15.000 þús- und krónur greiddar fyrir hvern fund og oft- ast er einn stjórnarfund- ur í mánuði. n Nánar verður fjall- að um málið á vef blaðsins, DV.is. Karl Jeppesen FORNAR HAFNIR Ljósmyndir og frásagnir af 160 verstöðvum á Íslandi. Áningar staðirnir eiga það sam­ eiginlegt að þaðan reru forfeður okkar til fiskjar. Heillandi ferðalag um tímann og söguna – allt í kringum landið. Lilja Magnúsdóttir SVIKARINN Það er sjaldnast heppilegt að þrír séu í hjónabandi og þegar það eru orðnir fjórir hlýtur eitthvað að springa. Ung kona verð­ ur viðskila við ástmann sinn og hefur enga hugmynd um afdrif hans. Guðjón Ragnar Jónasson HIN HLIÐIN Örsögur úr menningarheimi sem mögrum er hulinn. Ljóslifandi, grátbroslegar svip ­ myndir úr leikhúsi næturlífsins í bland við minningarbrot sem opna lesandanum sýn á réttindabaráttu hins egin fólks. Jólabækurnar frá Sæmundi Alls konar bækur fyrir alls konar fólk Theódór Gunnlaugsson NÚ BROSIR NÓTTIN Rómuð ævisaga refaskyttunnar Guðmund­ ar Einarssonar sem var goðsögn í lifanda lífi. Hér er lýst samskiptum náttúrubarns 19. aldar við landið og lífríki þess. Finnbogi Hermannsson UNDIR HRAUNI Spennandi frásögn sem byggir á raunveru­ legum atburðum þegar tveir þýskir skip­ brotsmenn flúðu undan breska hernum upp í Hekluhraun og unnu þar í púlsvinnu fyrir Selsundsbónda. Meistaralega fléttað saman af landsþekktum sagnaþul. Edvard Radzinskij STALÍN Ítarlegust og merkust af þeim fjölda ævisagna sem komið hafa út um hinn goðum líka harðstjóra. Hér koma fram ýmis áður óþekkt atriði og að lokum frásagn­ ir af dularfullum dauða Stalíns. Haukur Jóhanns son þýddi úr rússnesku. Bjarni Harðarson Í GULLHREPPUM Hér segir af þjóðsagnapersónunni séra Þórði í Reykjadal og hinu mikla veldi Skál­ holtsstaðar á 18. öld. Listilega skrifuð bók þar sem saga þjóðarinnar birtist okkur með kröm sinni og skemmtan. Guðmundur Brynjólfsson EITRAÐA BARNIÐ Skelfilegur glæpur skekur Eyrarbakka sum­ arið 1899 og við tekur æsileg atburðarás. Inn í söguna dragast m.a. Einar Benedikts­ son og Eggert í Vogsósum en það er sýslu­ mannsfrúin Anna sem stendur upp úr. Barátta um sölu íbúða hjá Samtökum aldraðra „Við erum að berjast gegn Mammon Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Magnús B. Brynjólfsson, formaður Samtaka aldraðra. Jóhannes S. Ólafsson lögfræðingur.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.