Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 32
32 FÓLK - VIÐTAL 23. nóvember 2018
J
úlían J. K. Jóhannsson má
með réttu kalla mann með
mönnum. Hann er 25 ára
Reykvíkingur sem á dögun-
um sló heimsmet í réttstöðulyftu
á heimsmeistaramóti í kraftlyft-
ingum í Halmstad í Svíþjóð og
það í tvígang. Blaðamaður sett-
ist niður með Júlían og ræddi við
hann um heimsmetið, kraftlyft-
ingar og lífið.
Júlían er fæddur árið 1993.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur hann
stundað kraftlyftingar í tæpan ára-
tug og hefur á þeim tíma hlotið,
meðal annars, þrjá Íslandsmeist-
aratitla í kraftlyftingum og fjóra í
réttstöðulyftu, tvo heimsmeist-
aratitla í unglingaflokki, titilinn
Íþróttamaður ársins 2015 og svo
hefur hann slegið 210 met og á í
dag á þriðja tug af þeim metum.
Árið 2018 má með sanni kalla
hans besta ár til þessa, en á árinu
hefur hann slegið öll sín persónu-
legu met sem og heimsmet, ekki
einu sinni heldur tvisvar.
Júlían tók á móti blaðamanni á
hlýlegu heimili sínu þar sem hann
bauð upp á rjúkandi heitt kaffi úr
mokkakönnu með vænni slettu af
próteindrykk á meðan hvolpur-
inn Stormur fylgdist, af takmörk-
uðum áhuga, með frá gólfinu.
Fann köllunina
Júlían hefur verið stór og sterkur
frá því að hann man eftir sér. Áður
en hann lagði stund á kraftlyft-
ingar þá æfði hann körfubolta.
„Ég eignast þar mjög góða vini
sem ég á enn í dag og fæ þar nasa-
sjón af íþróttaiðkun,“ segir Júlían.
Þrátt fyrir að hafa ákaflega gam-
an af körfubolta og að hafa notið
þess góða anda sem ríkti í keppn-
isferðum og í búningsklefanum
þá fór hugur Júlíans um 15 ára
aldurinn að reika frá körfubolt-
anum. Hann fann á sér að hann
hefði ekki þann áhuga sem þarf
til að láta að sér kveða í körfunni
og leitaði þá inn á líkamsrækt-
arstöðvarnar þar sem hann fór
að lyfta og fann um leið að lyft-
ingar væru hans köllun og varð
þá ekki aftur snúið. „Ég held það
hafi alltaf blundað í mér löngun-
in til að verða mjög stór og sterk-
ur,“ segir hann. Kraftlyftingar
heilluðu hann upp úr skónum og
körfuboltinn varð að víkja.
Þótt kraftlyftingar teljist til
einstaklingsíþrótta þá er enginn
maður eyland. Það þarf teymi
til að ná árangri og margir sem
styðja við bakið á Júlían bæði á
æfingum og í keppnum. „Maður
gerir þetta með æfingarfélögun-
um sínum, fjölskyldu og vinum.“
Þegar Júlían byrjaði í kraftlyft-
ingum leit hann einkum upp til
Auðuns Jónssonar úr Breiðabliki.
Auðunn Jónsson var einn fremsti
kraftlyftingamaður Íslands um
áratuga skeið og þekkir Júlían til
fárra sem hafa keppt í íþróttinni
jafn lengi.
Trúir á lyfjapróf
Aflraunakeppnir á borð
Vestfjarðavíkinginn og Sterkasta
mann Íslands þekkja lands-
menn flestir vel og hefur Júlí-
an íhugað að taka þátt í þeim,
en hikar þó við því þar er engin
krafa sett fram um að keppend-
ur fari í lyfja próf. „Ég er þeirrar
skoðunar að íþróttamenn eigi að
vera lyfjaprófaðir og tók ákvörðun
snemma á mínum ferli um að ég
vildi keppa í íþróttum þar sem
slíkt tíðkast,“ segir Júlían en Kraft-
lyftingasamband Íslands er innan
Íþrótta- og Ólympíusambands Ís-
lands sem fer eftir skilyrðum Al-
þjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar,
WADA, um lyfjaeftirlit og - próf.
Allt er hægt
Ekki er hlaupið að því að gerast
atvinnumaður í kraftlyftingum þó
svo Júlían vilji gjarnan verða slík-
ur. Í dag þarf hann að sinna vinnu
samhliða lyftingunum til að hafa
í sig og sína. „Ég er samt rosalega
þakklátur að geta stundað það
sem mér þykir svona skemmti-
legt og að fá tækifæri til að keppa
á þessum stóru mótum.“ Hann
hefur verið lánsamur og hlotið
styrki frá Íþróttasambandinu,
Kraftlyftingafélaginu Ármanni
og Mjólkursamsölunni svo dæmi
séu tekin og fyrir það er Júlían
innilega þakklátur.
Hlaðborðin best
Til að ná árangri í kraftlyftingum
þarf að gæta vel að mataræðinu
til að hafa orku og úthald í lyft-
ingarnar sem og að gæta þess
að viðhalda vöðvamassa. Júlían
reynir að borða á bilinu fjögur
til fimm þúsund kaloríur á degi
hverjum og reiknast honum til að
hann neyti að meðaltali lítra af
FÖSTUDAGINN 30.
NÓV. OG 7. DESEMBER
LAUGARDAGANA
1. OG 8. DESEMBER
JÓLAHLAÐBORÐ
Jólagleði á Ránni í
Reykjanesbæ
Eyfi sér um jólastemminguna
BORÐAPANTANIR Í
SÍMA: 852 2083
PANTANIR@RAIN.IS
Erla Dóra
erladora@dv.is „Það felst
ekki fórn
í að stunda eitt-
hvað sem maður
elskar
210 met
og er bara
rétt að
byrja
n Koma svo HÚH! n Innbyrðir 4–5 þúsund kaloríur á dag n Hlynntur lyfjaprófi í íþróttum
Júlían heldur sig við kraftlyftingar
frekar en aflraunir.
MYNDIR: HANNA