Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 112
23. nóvember 2018
45. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Það er nú tíkar-
legt að hundsa
allar reglur!
Lítt þekkt
ættartengsl
Athafna-
maðurinn og
sjónvarpsstjórinn
Í
vikunni bárust fregnir af því
að veitingastaðurinn Þrasta-
lundur í Grímsnesi væri til
leigu eins og hann leggur sig.
Veitingamaðurinn Sverrir Ein-
ar Eiríksson hefur átt og rekið
staðinn síðastliðin ár og hefur
Þrastalundur sérstaklega vakið
athygli fyrir vel úti látinn bröns
og sveiflukennt verð á ýms-
um vörum. Sverrir Einar hefur
komið víða við en hann hefur
meðal annars selt gull, Herbali-
fe og pítsur auk þess að koma
með frumlegar lausnir á hús-
næðisvanda fjölda fólks. Fað-
ir Sverris Einars er Eiríkur Sig-
urbjörnsson, sjónvarpsstjóri
Omega, sem hefur básúnað
kristilegan boðskap yfir Ís-
lendinga um árabil.
Inga Sæland heldur nokkra hunda þrátt fyrir strangt bann
I
nga Sæland, alþingiskona og
formaður Flokk fólksins, held-
ur að minnsta kosti þrjá hunda
í íbúð sem hún leigir af Brynju
– hússjóði Öryrkjabandalags-
ins. Margítrekað er á heimasíðu
sjóðsins að stranglega bannað sé
að halda gæludýr í íbúðunum og
einnig er tekið fram að heimsókn-
ir gæludýra séu með öllu bann-
aðar. Inga hefur leigt íbúðina síð-
an árið 2011 en árið 2015 ítrekaði
framkvæmdastjóri Brynju í bréfi
til allra leigjenda að gæludýra-
eign væri með öllu óheimil. Hart
er tekið á sumum leigjendum
vegna bannsins en fyrir síðustu jól
greindi Fréttablaðið frá því
að öryrkja sem hélt hund
í íbúð í Hátúni hefði verið
sagt upp leigusamningi
sínum og gert að yfirgefa
íbúðina.
Gæludýrahald Ingu er að-
eins ein af mörgum reglum og skil-
yrðum fyrir leigu hjá Brynju sem
alþingiskonan uppfyllir ekki. Árs-
tekjur einstaklinga sem leigja hjá
hússjóðnum verða að vera und-
ir 5,1 milljón króna en tekjur Ingu
eru ríflega 20 milljónir króna á
sama tímabili. Þá geta fasteigna-
eigendur ekki leigt íbúðir hjá hús-
sjóðnum en í vikunni greindi DV
frá því að Inga hefði fjárfest í ein-
býlishúsi á Ólafsfirði. Gríðar-
legt eftirspurn er eftir íbúðum hjá
Brynju og geta öryrkjar gert ráð
fyrir því að bíða í meira en fjögur
ár eftir að fá úthlutað íbúð. Yfir sex
hundruð manns eru á biðlista eftir
húsaskjóli og hefur hússjóðurinn
brugðið á það ráð að loka fyrir um-
sóknir um eignir. Inga hefur rétt-
lætt veru sína í íbúðinni með því
að benda á að atvinna hennar sé
ótrygg og hefur kallað fréttaflutn-
ing af stöðu hennar „viðbjóð“. n
Hundurinn
Lopi er einn af
hundum Ingu
Hart barist um
hlaupbangsa
Sólveigar
L
istakonan Sólveig Einars-
dóttir gegndi lykilhlut-
verki í nýjasta þætti í
bresku útgáfunni af The
Apprentice, sem sýndur var
í Bretlandi síðasta miðviku-
dagskvöld. Í þættinum kepptu-
st tvö lið um að selja eins mik-
ið af listaverkum og þau gátu í
höfuð borg Skotlands, Glasgow.
Liðin gátu valið á milli
þriggja listamanna til að selja
list fyrir og var einn af þeim
hin íslenska Sólveig Einars-
dóttir. Það má með sanni segja
að skúlptúrar Sólveigar séu
einstakir en meðal verka sem
hún vildi að keppendur seldu
fyrir sig var verk úr gúmmí-
böngsum þar sem hún var búin
að skrifa Home Sweet Home,
eða Heima er best, úr hlaupinu.
Svo fór að eitt liðið tók að
sér að selja verk Sólveigar, en
hart var barist um fyrrnefnt
gúmmílistaverk. Vakti það svo
mikla athygli að tveir kaupend-
ur vildu verkið. Íslendingurinn
færði liðinu þó ekki sykursæta
heppni því svo fór að það tap-
aði.