Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 68
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
REYKJAVÍK DIGITAL:
Sérfræðingar í vefsíðugerð.
Reykjavík Digital er ungt og fram-sækið fyrirtæki sem sérhæfir sig í WordPress-vefsíðugerð.
Okkur finnst afar spennandi að vinna
með WordPress fyrst og fremst vegna
þess að það er Open-Source og kostar
ekki neitt. Í dag keyrir WordPress u.þ.b.
30% af öllum vefsíðum á internetinu og
er því langstærsta vefumsjónarkerfi í
heiminum.
Á bak við Reykjavík Digital er öflugt
teymi sem hefur gífurlega mikla reynslu
í WordPress og vefsíðugerð. Gunn-
laugur Arnar Elíasson, sérfræðingur í
netmarkaðssetningu og einn eigenda
Reykjavík Digital, segir fyrirtækið smíða
fallega, leitarvélavæna og skilvirka vefi
sem virka hnökralaust í öllum tækjum
og eru hannaðir til að selja vörur eða
þjónustu. Reykjavík Digital vinnur með
smáum sem stórum viðskiptavinum og
er ávallt opið fyrir nýjum verkefnum.
Hvað þarf að hafa í huga þegar þú
kaupir vefsíðu ?
Það er margt sem þarf að hafa í huga
þegar farið er út í að versla nýja vefsíðu.
Vefsvæðið þitt er það mikilvægasta
sem þú hefur til að ná til þíns markhóps
og því skal vanda vel til verks áður en
farið er út í vefsíðugerð. Hér koma fjórir
einfaldir punktar sem geta aðstoðað
þig áður en þú kaupir þér nýja vefsíðu.
n Val á vefumsjónarkerfi
Þegar farið er út í nýja vefsíðu skiptir
val á vefumsjónarkerfi miklu máli. Hér
er mikilvægt kynna sér hvaða kerfi eru
í boði, hvaða kerfi hentar þínum vef svo
vefurinn uppfylli þínar kröfur og mark-
mið. Reykjavík Digital notar eingöngu
Open Source-vefumsjónarkerfi sem
þýðir að við læsum þig ekki inni í okkar
eigin kerfi. Þannig að ef þú „fílar“ ekki
eitthvað við okkur, þá ertu ekki bundinn
þjónustunni okkar.
n Leitarvélabestun/SEO
Það er ekki sjálfgefið að þótt þú greiðir
fyrir fallega vefsíðu að umferðin í gegn-
um hana aukist af sjálfri sér. Ef leitar-
vélarnar skilja ekki nýju vefsíðuna þína
er mjög ólíklegt að þú munir birtast
ofarlega á leitarvélum eins og Google.
Við hugsum til leitarvélanna, hvort þær
skilji vefina okkar og hvað þeim finnst
um þá. Við vitum hvernig leitarvélarnar
hugsa og hvað þær vilja sjá.
n Vefhýsing
Það finnst engum gaman að bíða. Ef
nýja vefsíðan þín er lengi að hlaða sig
þá hafa notendur ekki þolinmæði til
að skoða vefinn þinn nema af algjörri
nauðsyn. Leitarvélar verðlauna vef-
síður sem eru leiftursnöggar og því er
val á vefhýsingu einnig mjög mikilvæg-
ur liður í því að setja nýjan vef í loftið.
Við aðstoðum okkar kúnna með val á
vefhýsingu.
n Viðhald á vefsíðu
Get ég breytt efninu á vefnum eða þarf
ég að greiða fyrir hvert skipti sem ég
vill breyta einhverju? Þetta er enn ein
ástæða fyrir því að Reykjavík Digital
notar einungis WordPress. Vefum-
sjónarkerfið er einfalt og þægilegt í
notkun og okkur þykir einstaklega gam-
an að sjá hvað það kemur viðskiptavin-
um okkar sífellt á óvart hversu auðvelt
það er að stjórna innihaldi WordPress.
Vefsíður
Við viljum vita allt um fyrirtækið þitt
áður en við setjum upp nýja vefsíðu. Við
elskum að rýna í gögn, skoða heim-
sóknartölur og fylgjast með hvernig
notandinn hegðar sér á netinu. Gott
vefsvæði á að uppfylla væntingar not-
enda og birta viðeigandi upplýsingar á
réttum stað og réttum tíma. Við tryggj-
um að þetta verði að veruleika.
Netverslun
Lykilatriði í góðri netverslun er að það
sé einfalt að versla á netinu. Viðskipta-
vinir eiga að geta fundið vöruna sem
þeir leita að fljótt og örugglega. Ferða-
lagið frá vörulýsingunni yfir í að ljúka við
pöntun þarf að vera stutt og áreynslu-
laust. Ef þú ert að hugsa um að setja
vefverslun í loftið þá erum við rétta
fólkið til að tala við.
Viðbætur og tengingar
Ef lausnin sem þú leitar að krefst sér-
sniðinnar virkni getum við þróað hana
með þér. Forritarar okkar eru vanir að
byggja upp flókin verkefni frá grunni
og nota nýjustu staðla fyrir hönnun og
þróun í WordPress.
Ef fyrirtækið þitt hefur áhuga á að
fara yfir vefmálin þá er hægt að hafa
samband við okkur í gegnum síma 781-
2000 eða senda okkur póst á hallo@
reykjavikdigital.is
Einnig er hægt að kynna sér betur
þjónustu Reykjavík Digital á https://
reykjavikdigital.is n