Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 8
8 23. nóvember 2018FRÉTTIR
L
ögreglumenn sem DV hefur
rætt við segja að bílamálin
séu í miklum ólestri. Fyrir
komulagið er þannig að lög
regluembættin leigja bíla af Ríkis
lögreglustjóra. Þar er innheimt
bæði fast gjald og kílómetragjald.
Þetta sé hins vegar svo óhagstætt
að embættin séu í auknum mæli
farin að leigja af bílaleigum í
einkaeigu. Getur munurinn á leigu
á ómerktum lögreglubíl verið allt
að 200 þúsund krónur á mánuði.
Ríkislögreglustjóri vill losna við
reksturinn og stefnir á útboð.
Lögreglumenn undrandi á
bílamálum
Ríkislögreglustjóri hefur rekið
bílamiðstöð frá árinu 2000. Hún er
eigandi allra ökutækja lögreglunn
ar og ber ábyrgð á rekstri, viðhaldi
og endurnýjun þeirra. Miðstöð
in er stoðdeild og yfirlýst mark
mið hennar er hagræðing í rekstri,
samnýting ökutækja og búnaðar
og almenn þjónusta við lögreglu
stjórana.
Lögreglumenn sem DV hefur
rætt við segja hins vegar að í dag
séu nær allir ómerktir lögreglubíl
ar á höfuðborgarsvæðinu teknir á
leigu hjá Bílaleigu Akureyrar. Það
sé miklu hagstæðara fyrir emb
ættið en að leigja af systurstofn
un embættisins. Hafa þeir spurt
sig hvort ekki sé eitthvað bogið við
þetta fyrirkomulag. Auk þess hafi
meint okur Ríkislögreglustjóra
bein áhrif á störf þeirra þar sem
búið sé að setja þak á hversu mik
ið megi aka á hverjum sólarhring.
Leigja bílaleigubíla og leigubíla
DV hafði samband við yfirmenn
hjá lögreglunni á höfuðborgar
svæðinu og fékk staðfest að þetta
væri raunin. Halldór Halldórs
son, framkvæmdastjóri fjármála
deildar hjá embættinu, segir að
þónokkrir ómerktir bílaleigubíl
ar væru teknir á leigu á hverju ári.
Fjöldi þeirra réðist af verkefna
stöðu embættisins hverju sinni.
Einnig sagði hann að lögreglan
keypti auk þess þjónustu hjá leigu
bifreiðastöðvum. Hann segir:
„Fjöldi slíkra ökutækja, sem
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur til afnota, er mismunandi
hverju sinni. Bílaleigubílar og
leigubílar nýtast til að mæta sveifl
um í álagi innan dagsins, vikunn
ar, milli mánaða og árstíða. Það
er hagkvæmara en að eiga stærri
bílaflota. Þá geta veðuraðstæður
kallað á að leigðir séu bílar sem
ráða betur við til dæmis ófærð. Í
sumum tilvikum getur verið gott
að skipta ört út bílum.“
Þessi kostnaður nam tæpum 35
milljónum samkvæmt síðasta árs
reikningi. Að auki bætist við elds
neytiskostnaður upp á tæpar sex
milljónir og ein til tvær milljónir
í annan kostnað. Ómerktir bílar
eru aðeins hluti af kostnaðinum.
Heildarkostnaður embættisins
vegna rekstrar ökutækja var rúm
lega 260 milljónir á síðasta ári.
Halldór staðfestir að munurinn
á verði ómerktra bíla sé umtals
verður.
„Munurinn í þeim tilvikum sem
lögreglan á höfuðborgarsvæðinu
hefur skoðað hefur verið um 50 til
200 þúsund krónur á ómerktan bíl
á mánuði eftir akstri og bílaleigu.
En í gjaldi Bílamiðstöðvarinnar
er falin ýmis þjónusta hennar við
embættið sem ekki er um að ræða
í tilfelli bílaleigubíla en þá þarf
embættið sjálft að sinna bílun
um. Að auki geta farið saman and
stæðir álagstímar hjá bílaleigum
og lögreglu sem geri þennan kost
hagkvæman fyrir báða aðila frem
ur en að lögreglan eignist bíl.“
Nefnir hann að tækin sem emb
ættið leigi af Bílamiðstöðinni séu
mjög mismunandi, allt frá hjólum
upp í sendibíla.
Lægri kostnaður
bílaleigufyrirtækja
Bílamiðstöðin rukkar fast árgjald af
hverju ökutæki. Það er 18 prósent
af stofnverði nýrra ökutækja og 10
til 12 prósent af sex ára og eldri. Þá
er kílómetragjaldið frá 100 til 381
krónu og fer eftir gerð ökutækis. Inni
í því er allur rekstrarkostnaður, svo
sem eldsneyti, viðhald, tryggingar
og fleira.
Jónas Ingi Pétursson, fram
kvæmdastjóri rekstrar hjá Ríkislög
reglustjóra, bendir á að bílaleigur
séu undanþegnar vörugjöldum.
Þess vegna sé stofnverð bílaleigu
bíla lægra en þeirra sem lögreglan
og allur almenningur kaupir. Þá sé
tryggingakostnaður bílaleigufyrir
tækja lægri en þau kjör sem lög
reglunni bauðst í útboði Ríkiskaupa.
Af hverju eru þið ekki með ódýr-
ari valkosti fyrir embættin sem klár-
lega er þörf á?
„Af þeim sökum hefur Ríkis
lögreglustjóri ekki boðið ómerktar
lögreglubifreiðar til afnota frá Bíla
miðstöð um nokkurt skeið. Áhersla
hefur verið lögð á sérbúnar, merktar
lögreglubifreiðar þar sem slíkar bif
reiðar eru ekki í boði á almennum
markaði.“
Var ekki takmark Bílamiðstöðv-
arinnar að stuðla að hagræðingu í
rekstri fyrir lögregluna?
„Bílamiðstöð hefur stuðlað að
hagræðingu og hagkvæmum rekstri
í ökutækjamálum lögreglunnar.
Fyrirkomulagið er í sífelldri endur
skoðun og tekur mið af síbreytileg
um ytri aðstæðum. Af hálfu Ríkis
lögreglustjóra hefur lengi legið fyrir
ósk embættisins um að samrekstur
lögreglunnar á ökutækjum verði
aðskilinn frá rekstri Ríkislögreglu
stjóra.“
Hallarekstur í mörg ár
Bílamiðstöðin er stærsta eins
taka verkefni Ríkislögreglustjóra
og útgjöldin vegna þess hafa jafn
an verið á bilinu 25 til 35 prósent
af heildarútgjöldum. Rekstur Bíla
miðstöðvarinnar hefur verið frem
ur ótryggur allt frá stofnun og hef
ur þurft að mæta taprekstrinum
með öðru rekstrarfé. Ríkisendur
skoðun hefur bent á að rekstur
Bílamiðstöðvarinnar sé eitt af
þeim atriðum sem betur mætti
fara í rekstri lögreglunnar. Einnig
hafa lengi verið skiptar skoðanir
um fjárhagslega hagkvæmni þessa
fyrirkomulags fyrir lögregluemb
ættin sjálf. Sérstaklega fyrir minni
embætti á landsbyggðinni.
Árið 2004 var aðstoðaryfirlög
regluþjóni vikið frá störfum vegna
spillingar tengdri stofnuninni.
Hann átti langan feril að baki inn
an lögreglunnar og hafði tekið við
yfirumsjón Bílamiðstöðvarinnar
þegar hún var sett á laggirnar árið
2000. Grunur lék á að hann hefði
ráðstafað tveimur lögreglujeppum
í eigin þágu og hafi um mitt ár
2001 skráð annan þeirra á eigin
konu sína.
Til að mæta hallarekstrinum
hefur Bílamiðstöðin reglulega
endurskoðað gjaldskrár sínar og
hækkað leiguverðið til embætt
anna. Athygli vakti að verðið var
hækkað um allt að 18 prósent
snemma árs 2012. Þá hafði halla
reksturinn verið um 40 milljónir
seinni hluta ársins 2011.
Vilja losna við reksturinn
Árið 2008 vildi ríkið losna við
reksturinn og var hann boðinn út.
Útboðið var auglýst vorið 2009 og
í því fólst meðal annars yfirtaka á
öllum lögreglubifreiðunum. Alls
bárust sex tilboð í reksturinn, öll
frá innlendum aðilum. Það lægsta
var um 80 milljónum króna hærra
á ári en rekstrarkostnaðurinn var
þá þegar.
Dómsmálaráðuneytið hafnaði
öllum tilboðunum og Ríkislög
reglustjóri sá áfram um rekstur
inn. Jónas segir:
„Af hálfu ríkislögreglustjóra er
unnið að endurskoðun á starfsemi
Bílamiðstöðvar þar sem meðal
annars er horft til þess að bjóða út
rekstur ökutækja lögreglu á ný.“ n
ÞÚ FÆRÐ MYNDVARPANN
HJÁ OKKUR
325”
4K
LÖGREGLAN LEIGIR BÍLALEIGUBÍLA
OG LEIGUBÍLA Í AUKNUM MÆLI
n Allt að 200 þúsund krónum ódýrara n Ríkislögreglustjóri vill losna við
rekstur Bílamiðstöðvar„Fyrirkomu-
lagið er í
sífeldri endur-
skoðun og tekur
mið að síbreyti-
legum ytri að-
stæðum
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Ríkislögreglustjóri Vill losna við rekstur
lögreglubíla.