Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Side 81
FÓLK - VIÐTAL 8123. nóvember 2018
íslensku skyri á dag. Margir hefðu
fljótt fengið leiða á að torga slíku
magni þetta oft en Júlían finnst
skyrið sitt alltaf bragðast jafn vel.
Ellen Ýr Jónsdóttir, sambýlis
kona Júlíans, er einnig afreks
kona í kraftlyftingum og því vænt
anlega vel gætt að mataræðinu
á heimilinu. Þegar farið er út að
borða segist Júlían helst reyna að
fara á hlaðborð enda yrði líklegast
kostnaðarsamt að reyna að full
nægja orkuþörf þeirra hjúa með
hefðbundnum matseðli. „Svo er
maður orðinn vanur því að fá sér
bara að borða áður en farið er
eitthvert út. Gríp eina skyr og fer
svo í afmæli eða eitthvað álíka.“
Talar ekki um fórnir
Aðspurður vill Júlían ekki kannast
við að hafa þurft að færa miklar
fórnir til að ná árangri í kraft
lyftingum og hefur illan bifur á
þeirri orðanotkun því merkingin
verði neikvæð í þessu samhengi.
Í rauninni sé ekki um eiginlega
fórn að ræða. „Það felst ekki fórn
í að stunda eitthvað sem maður
elskar.“
Allt skipulag Júlíans tekur mið
af því að æfingarnar komi fyrst
og annað á eftir. „Lykillinn er
að forgangsraða því sem maður
vill mest, setja það ofar því sem
maður vill núna,“ segir hann og
það verður að játast að í þessu
viðhorfi felst mikill speki sem
væri ekki úr vegi að fleiri, hvort
sem um íþróttaiðkun lífið sjálft er
að ræða, tileinkuðu sér.
Þetta viðhorf Júlíans endur
speglast í því hvernig hann tekst
á við þau mörgu verk sem hann
sinnir í daglegu lífi. Líkt og áður
segir, sinnir Júlían vinnu sam
hliða lyftingunum og í dag vinn
ur hann hlutastarf við með
ferðarheimilið á Stuðlum og er
jafnframt í háskólanámi í sagn
fræði þar sem hann hefur lokið
tveimur árum af þremur. Hann
setur kraftlyftingarnar efst, því
næst vinnuna og í kjölfarið há
skólanámið. Ástríðan, lifibrauðið
og námið.
Því er ljóst að Júlían er sér
lega upptekinn maður. Þó kemur
fyrir að hann fær að slaka á og
þykir honum þá gott að skella sér
í sund. Segir hann að þrátt fyrir að
á Íslandi megi líta fögur fjöll, fossa
og fleiri náttúruperlur þá séu það
almenningssundlaugarnar okkar
sem séu raunverulegu gullmol
arnir og mælir hann hiklaust með
þeim við ferðamenn.
Unglingur á þrítugsaldri
Flokkar í kraftlyftingum komu
blaðamanni spánskt fyrir sjón
ir. Þar eru 14–18 ára strákar
„drengir“ og 19–23 ára menn eru
„unglingar“. Það eru því aðeins
tvö ár síðan Júlían var unglingur
innan kraftlyftinganna. Ástæðuna
fyrir þessari undarlegu aldurs
skipan telur Júlían að megi rekja
annars vegar til þess hversu lang
ur líftími íþróttamanna er inn
an íþróttarinnar og hins vegar til
aldursskiptingar á milli banda
rískra skólastiga.
Þrátt fyrir að teljast til unglinga
til 23 ára aldurs þá lendir Júlían
stundum í því að vera talinn mun
eldri en hann er. Þegar hann var
19 ára gamall setti hann Íslands
met í unglingaflokki og af því til
efni var birt mynd af honum í
fréttum sem sýndi hann í miðri
hnébeygju, með 340 kíló á bak
inu, og eðli málsins samkvæmt
rauður í framan. Þá var skrifað
í athugasemd við fréttina „Ung
lingur? Þessi gæi er fimmtugur.“
Hafði Júlían þó bara gaman af
enda góð saga til að deila með
öðrum.
Átti meira inni
Hans mesta afrek til þessa
vann Júlían svo þann 10. nóv
ember þegar hann tvíbætti
heimsmetið í réttstöðulyftu,
fyrst með því að lyfta 398 kíló
um og því næst 405 kílóum.
Áður hafði Júlían náð að lyfta
400 kílóum á Evrópumóti í
maí, en fékk það ekki staðfest
vegna tæknigalla í hnébeygju
lið keppninnar. Þágildandi
heimsmet Bandaríkjamanns
ins Brads Gillingham var 397,5
kíló og ákvað Júlían því fyrst
að reyna við 398 kíló og slá
þar með heimsmetið, en þegar
sú lyfta gekk vonum framar
og hann orðinn heimsmets
hafinn, þá fann hann að hann
ætti meira inni og ákvað því
að nýta þá tilraun sem eftir var
í að gera gott um betur. Það
hafði verið markmið hjá hon
um að komast upp fyrir 400
kíló og í samráði við þjálfara
sinn ákvað Júlían að gera at
lögu að 405 kílóum, en þar með
gæti hann tryggt sér fjórða sæti
á mótinu. „Þetta var magnað,“
segir Júlían um þá ótrúlegu til
finningu sem greip hann þegar
hann tók um stöngina og gerði
sér grein fyrir að hann gæti rétt
fyllilega úr sér og bætt sitt eig
ið met, aðeins skömmum tíma
eftir að hann setti það.
Þótt Júlían reyni yfirleitt að
æsa sig upp fyrir lyftur til að
koma sér í gang hugsaði hann
þó: „Jæja Júlían, nú verður þú
að vera rólegur og vanda þig“,
áhorfendur í salnum fögnuðu
honum ákaft og hvöttu áfram
og er Júlían minnisstæð
ur þulurinn á keppninni,
gamall gráhærður Svíi með
þykkt yfirvaraskegg sem öskr
aði í hljóðnemann: „Koma svo
HÚH“. Síðan brutust út mikil
fagnaðarlæti þegar íslenski vík
ingurinn Júlían, reif upp heil
405 kílógrömm og bætti sam
tímis met Bandaríkjamannsins
upp um 7,5 kíló.
Á traustum fótum
Það er deginum ljósara að
Júlían er kominn til að vera í
kraftlyftingum og hann stend
ur traustum fótum innan
geirans, en hann stendur lík
lega oftast traustum fótum því
hann er svo fótastór að hann
notar hvorki meira né minna
skóstærð númer fimmtíu.
„Ég hef aldrei búið við þann
munað að þróa með mér ein
hvern skósmekk.“ Það eru ekki
margar búðir sem bjóða upp
á svo stóra skó, og þær búðir
sem það gera hafa þá ekki í
miklu úrvali. Júlían kaupir því
helst skó í gegnum vefsíður
eða að utan. Skósmekkurinn
er því „það sem er í boði“. Fyr
ir hefur komið þegar hann fal
ast eftir skóm í sinni stærð þá
bjóði afgreiðslufólk honum skó
sem jafnvel eru þremur stærð
um minni en hann þarf og
hann spurður hvort það gangi
ekki bara. Afgreiðslufólkið er
þá kannski óvant mönnum
með jafngóðar undirstöður og
Júlían hefur.
Þrátt fyrir tæplega ára
tuga reynslu af kraftlyfting
um þá er Júlían aðeins búinn
að keppa í tvö ár í fullorðins
flokki og árangur hans hingað
til að dáunarverður. Ekki er óal
gengt í þessum bransa að ná
sínum besta árangri eftir þrí
tugt og að sögn Júlíans þá voru
flestir þeir sem hann atti kappi
við á síðasta heimsmeistara
móti töluvert eldri en hann.
Fyrirmyndir Júlíans, sem einu
sinni virtust svo ósnertanlegar
og fjarri honum, finnst honum
nú færast honum sífellt nær, en
Júlían er hvergi nærri hættur og
ætlar sér langt. „Auðvitað veit
maður ekki hvað verður, en ég
stefni hærra. Ég er 25 ára núna
og á mörg ár eftir.“ Á þessum
orðum kveðjum við Júlían Jó
hann Karl Jóhannsson, sterkan
mann með langt og sterkt nafn,
sem á langan og farsælan feril
framundan. Hann er nefnilega
bara rétt að byrja. n
„Unglingur?
Þessi gæi er
fimmtugur
Bjóðum uppá frítt söluverðmat
Grensásvegi 13, 108 Reykjavík / S: 570 4800
Næsti kafli
hefst hjá okkur
Júlían og hvolpurinn Stormur á æfingu.