Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 63
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
LITLA LOPASJOPPAN:
Allt sem hægt er að gera úr ull
Þegar ég opnaði þetta sum-arið 2014 þá var það hugs-að sem tilraunaverkefni. Ég
þekkti margar konur sem voru að
reyna að selja lopapeysurnar sínar
en áttu erfitt með að koma þeim á
framfæri, voru kannski að auglýsa
á Facebook og þess háttar. Ég bjóst
ekki við miklu en hér er ég enn í dag
og það er brjálað að gera,“ segir
Berglind Kristinsdóttir sem rekur Litlu
lopasjoppuna á Hellu, en það er ullar-
markaður með vörur í umboðssölu.
Fjölbreytnin er gífurleg, til dæmis
jólaskraut og alls konar flíkur, peysu,
húfur, vettlingar, legghlífar og margt
fleira. Allar vörur í versluninni eru úr
íslenskri ull og engu öðru. Árið 2016
fékk Litla lopasjoppan skjöld frá Fé-
lagi sauðfjárbænda til viðurkenningar
um upprunavottorð vörunnar.
Litla lopasjoppan nýtur mikilla
vinsælda en Berglind hefur aldrei
áður auglýst verslunina: „Þetta hefur
spurst út, ég reyni að halda verðinu
skynsamlegu og er ekki að hlaupa
með það upp í hæstu hæðir. Slíkt
spyrst út. Hótelin og gistiheimilin hér
í grenndinni, sem og margir farar-
stjórar, eru aðilar sem hafa reynst
rosalega hjálplegir með því að vísa
erlendum gestum hingað,“ segir
Berglind.
Fastir prjónarar sem selja af-
urðir sínar í Litlu lopasjoppunni eru
um 30 talsins, þ.e.a.s. það fólk sem
prjónar reglulega, en á lista eru vel
fyrir 100 manns. Sem nærri má geta
er fjölbreytnin gífurleg. „Fólki sem
verslar hérna finnst frábær tilhugsun
að einhver einstaklingur hafi búið til
vöruna sína heima hjá sér en þetta
sé ekki einu sinni nálægt því að vera
verksmiðjuframleitt,“ segir Berglind.
Það er mikil upplifun að koma í Litlu
lopasjoppuna og sjá alla ullardýrðina
og fjölbreytnina. „Þetta er engin
tískubúð og húsgögnin eru gömul og
héðan og þaðan. Við sitjum oft tvær
eða þrjár hér og prjónum þegar við-
skiptavinir koma inn, þannig að þetta
er mjög frjálslegt,“ segir Berglind.
Litla
lopasjoppan
er til húsa að
Dynskálum 26 á
Hellu, eða aust-
ast í þorpinu, við
þjóðveginn. Opið
er virka daga frá 10 til 17 og laugar-
daga frá 10 til 16. Það er velkomið að
hringja í Berglindi í síma 699-3839 ef
fólk vill komast í verslunina utan hins
auglýsta afgreiðslutíma.
Sjá nánar á Facebook-síðunni Litla
lopasjoppan og vefsíðunni lopasjopp-
an.net.n