Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 39
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
SETTU GLEÐISTUND Í JÓLAPAKKANN:
Gjafakort í Þjóðleikhúsið er
tilvalin jólagjöf
Aðsókn að leiksýningum Þjóð-leikhússins hefur verið með eindæmum góð á leikárinu
og vinsælar sýningar verða áfram á
fjölunum eftir áramót, auk þess sem
nýjar og spennandi sýningar verða
frumsýndar á næstunni. Gjafakort í
Þjóðleikhúsið er því kærkomin jóla-
gjöf fyrir marga en kortið er hægt
að kaupa á vef Þjóðleikhússins,
leikhusid.is, eða í afgreiðslunni við
Hverfisgötu.
Hér er yfirlit yfir helstu verkefni
leikhússins í vetur: n
Ronja ræningjadóttir – Uppselt út
2018
Stórskemmtilegur og
æsispennandi söngleikur fyrir alla
fjölskylduna!
Ronja ræningjadóttir er einstök
saga um óvenjulega vináttu, heitar
tilfinningar, hættuleg ævintýri, sorg
og gleði. Salka Sól fer með hlutverk
Ronju og Sigurður Þór Óskars-
son leikur vin hennar, Birki. Meðal
annarra leikara eru Örn Árnason,
Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Edda
Björgvinsdóttir, en stór hópur
leikara, dansara, barna og tónlist-
arfólks tekur þátt í þessari fjörugu
og fallegu sýningu. Sýningin hefur
hlotið einróma lof áhorfenda og
gagnrýnenda enda er aðsókn með
því mesta sem sést hefur í leikhús-
inu. Ronja ræningjadóttir verður
áfram á fjölunum eftir áramót.
Samþykki – Spennuþrungið leik-
rit um völundarhús sannleikans.
Kristín Jóhannesdóttir, sem leik-
stýrði hinni geysivinsælu sýningu
Föðurnum, snýr aftur með magn-
aða leiksýningu.
Kraftmikið, splunkunýtt verk
sem sló í gegn í Breska þjóðleik-
húsinu á liðnu leikári, og hefur nú
verið flutt yfir á West End.
Hvers vegna er réttlætisgyðj-
an yfirleitt sýnd með bundið fyrir
augun? Er hún óhlutdræg? Eða
getur hún verið blind á tilteknar
staðreyndir?
Í vinahópi nokkurra lög-
fræðinga eru skiptar skoðanir á
umdeildu dómsmáli. Lykilvitnið er
kona sem tilheyrir heimi sem virð-
ist í órafjarlægð frá lífi vinanna.
En brátt er mál þessarar ókunn-
ugu konu farið að hafa ófyrirsjá-
anlegar afleiðingar á samskipti
þeirra og ástarsambönd.
Hvernig getum við feng-
ið fullvissu um hvað er satt og
hvað logið? Hver er munurinn á
hefndarþorsta og leit að réttlæti?
Eru allir jafnir fyrir lögunum?
Fly me to the moon
Nýtt verk eftir höfund hins geysi-
vinsæla leikrits Með fulla vasa af
grjóti
Bráðskemmtilegt verk um tvær
kjarnakonur sem hafa alltaf þurft
að hafa fyrir lífinu, en standa
skyndilega frammi fyrir möguleik-
anum á að eignast svolítinn pening
með auðveldum hætti. Það þarf
kannski bara að svindla smá …
Leikkonurnar Ólafía Hrönn og
Anna Svava sameina krafta sína
og fara á kostum í þessum nýja
tvíleik eftir Marie Jones.
Loddarinn Tartuffe – Hárbeitt verk
eftir meistara gamanleikjanna
Molière er sannkallaður meistari
gamanleikjanna og leikrit hans um
loddarann Tartuffe er eitt hans allra
vinsælasta verk.
Hræsnaranum Tartuffe hefur
tekist að ávinna sér traust og aðdá-
un heimilisföðurins Orgons og vefja
honum um fingur sér, fjölskyldu hans
til óbærilegrar hrellingar. Smám
saman er Tartuffe farinn að stjórna
lífi heimilisfólksins. Þegar Orgon fær
þá flugu í höfuðið að gifta dóttur
sína Tartuffe eru góð ráð dýr.
Leikstjóri sýningarinnar, Stefan
Metz, er íslenskum leikhúsunnendum
að góðu kunnur fyrir sýningar á borð
við Eldraunina og Horft frá brúnni.
Þitt eigið leikrit
Bækur Ævars Þórs Benedikts-
sonar, þar sem lesandinn ræður
því hvað gerist næst, hafa notið
gífurlegra vinsælda meðal yngri
lesenda. Nú er komið að þér að
stjórna framvindunni í þínu eigin
leikriti!
Söguheimurinn er norræna
goðafræðin, full af hrikaleg-
um hetjum og stórhættulegum
skrímslum. Engar tvær sýningar
verða eins, því áhorfendur ráða
því hvað gerist! Muntu sigra
Miðgarðsorminn eða gleypir
hinn hræðilegi Fenrisúlfur þig?
Ætlarðu að gerast barnapía fyrir
Loka eða líst þér betur á að verja
sjálfa Valhöll fyrir jötnum og
hrímþursum?
Ævintýraleg og spennandi sýn-
ing, þar sem allt getur gerst!
Klókur ertu, Einar Áskell
Við fylgjumst með degi í lífi feðganna
Einars Áskels og pabba hans, þar
sem daglegt líf fær á sig ljóma ævin-
týrs, eins og tilvera okkar allra getur
gert í einu vetfangi, ef við opnum fyrir
leikinn, sköpunina og ímyndunaraflið.
Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en
þegar pabbi hans tekur sér tíma og
leikur við hann. Það næstskemmti-
legasta er að fá að leika sér með
verkfærakassann, en það er strang-
lega bannað og stórhættulegt að
leika sér með sögina!
Súper – þar sem kjöt snýst um fólk
Súper – þar sem kjöt snýst um
fólk er nýtt og bráðfyndið leikrit
eftir Jón Gnarr, fullt af „gnar-
rískum“ húmor og pælingum, í
leikstjórn Benedikts Erlingssonar.
Fólk hittist í stórmarkaði og á
í einlægum samræðum – eða er
það bara að tala við sjálft sig?
Fólk finnur vörur sem næra ekki
bara skrokkinn heldur andann
líka og finnur hluti sem gera það
heilsteyptara.
„Þú þekkir fólk á vörunum sem
það kaupir“, segir ekkert máltæki.
Fjölbreytt samstarfsverkefni
Þjóðleikhúsið er í samstarfi við ólíka
leikhópa, Leiktóna með sýninguna
Ég heiti Guðrún. Stertabenda með
sýninguna Insomnia. Leikkonur 50+
með sýningarnar Fjallkonan fríð
og Dansandi ljóð. Trigger Warning
með sýninguna Velkomin heim og
sviðslistahópinn Marble Crowd
með sýninguna Moving mountains.
ÍTARLEGAR UPPLÝSINGAR UM ALLAR
SÝNINGAR ÞJÓÐLEIKHÚSSINS ER AÐ
FINNA Á LEIKHUSID.IS.
Einræðisherrann
Meistaraverk Charlies Chaplins á leik-
sviði, í bráðskemmtilegri, nýrri gerð.
Leikgerð Nikolajs Cederholms af
kvikmyndinni Einræðisherranum sló
rækilega í gegn hjá Nørrebro-leikhús-
inu í Kaupmannahöfn á liðnu leikári,
og gagnrýnendur hlóðu lofi á sýn-
inguna!
Nú gefst íslenskum leikhúsgestum
kostur á að sjá Sigga Sigurjóns stíga á
svið í hlutverki flækingsins sem verður
einræðisherra fyrir röð mistaka.
Heillandi, bráðskemmtileg og
frumleg leiksýn-
ing um valdasýki,
möguleika mennsk-
unnar í trylltri veröld
og baráttuna fyrir
friði í heiminum.