Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 46
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
QUILTBÚÐIN:
Frábærar helgarferðir
fyrir handavinnuglaða
Quiltbúðin var opnuð árið 2003 á Akureyri og er verslunin nú í eigu Nancy Georgsdóttur. „Við sér-
hæfum okkur í bútasumi, prjónavörum
og ýmsu sem tengist handavinnu af því
tagi,“ segir Nancy.
Allt fyrir bútasauminn og prjóna-
vinnuna
Í búðinni kennir ýmissa grasa og er þar
gott úrval af vörum fyrir prjónaskapinn,
útsaum og bútasaum. „Við erum með
bútasaumsefni frá ýmsum framleiðend-
um sem við flytjum inn sjálf. Einnig erum
við með fjölbreytt garn í öllum regn-
bogans litum en að mestu leyti erum
við með garnið frá Katia og það flytjum
við einnig inn sjálf. Svo erum við með
mjög fallegt handlitað garn frá Dóttir
DyeWorks og Héraði. Einnig fást ýmsar
smávörur tengdar handavinnunni.
Svo erum við með handavinnuhitting
alla mánudagsmorgna og öllum frjálst
að mæta meðan pláss leyfir, konur
eru mjög duglegar að mæta á þennan
hitting,“ segir Nancy.
„Quiltbúðin er enn fremur með um-
boð frá Pfaff á saumavélum og auka-
hlutum, við sjáum auk þess um að koma
vélum sem þess þurfa suður til viðgerð-
ar,“ segir Nancy.
Orlofsferðir fyrir handlagið fólk
Quiltbúðin stendur fyrir stórskemmti-
legum prjónahelgum í mars og búta-
saumshelgum á haustin. „Þessar
helgar hafa tekist sérlega vel og hafa
verið haldnar nú í 15 ár. Þá er dvalið
yfir helgi á Löngumýri í Skagafirði og er
gisting og matur hvort tveggja innifalið
í verðinu. Það er pottur á staðnum og
eftir afkastamikinn dag getum við skellt
okkur í heita pottinn til að slaka aðeins
á og hafa það notalegt. Þessar helgar
eru fyrir alla, sama hvort þú ert byrjandi
eða lengra komin, við lærum af hver
annarri. Svo erum við með verkefni sem
við kennum og fólk ræður hvort það taki
þátt í því.
Hægt er að velja á milli þess að dvelja
helgi, frá fimmtudegi til sunnudags eða
frá föstudegi til sunnudags. Ég mæti svo
með fullt af hráefni frá Quiltbúðinni sem
fólk getur keypt ef það hefur áhuga á.
Hingað til hafa eingöngu konur mætt á
þessar helgar en að sjálfsögðu er öllum
frjálst að vera með,“ segir Nancy.
Stórsniðugar jólagjafir
Nancy bendir á að vinsælt sé að gefa
helgarferðirnar í jólagjöf. „Þetta er hin
fullkomna jólagjöf fyrir þá sem eiga allt
og eru með þessa bútapest eða prjóna-
veiki,“ segir Nancy.
„Prjónahelgarnar eru haldnar þrjár
helgar í mars.
Dagsetningar verða auglýstar á
Facebook-síðunni okkar núna fljótlega.
Bútasaumshelgarnar eru haldnar
fimm helgar á haustin og yfirleitt byrja
þær upp úr miðjum september.
Til þess að kaupa helgardvöl með
Quiltbúðinni er hægt hringja í síma
461-2241 eða hafa samband í gegnum
netpóst. Við sendum svo gjafabréf með
vefpósti eða almennum pósti.“
Nánari upplýsingar má nálgast á
Facebook-síðunni Quiltbúðin Akureyri
Verslunin er staðsett í Verslunarmið-
stöðinni Sunnuhlíð 12, Akureyri
Opið er alla virka daga: 10.00–18.00
og laugardaga: 11.00–14.00
Sími: 461-2241
Netfang: quiltbudin@quiltbudin.is n