Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 100
100 23. nóvember 2018JÓL
Á
flestum heimilum eru
ákveðnir jólasiðir og jóla-
venjur sem eru hafðar í
heiðri um jólin. Það sama
gildir um ríki heims, að minnsta
kosti þar sem jólum er fagnað, þar
eru ákveðnir siðir og venjur sem
fólki í öðrum ríkjum þykja jafnvel
undarlegar. Eflaust finnst mörgum
útlendingum í hæsta lagi undar-
legt að íslensku jólasveinarnir séu
þrettán talsins og komi einn af öðr-
um til byggða í aðdraganda jól-
anna og gefi börnun-
um eitthvað gott í
skóinn, nema þeim
óþekku sem fá bara
kartöflu. Ekki eykur
það á undarlegheitin
að móðir þeirra er
tröllskessa sem borðar
fólk. Síðan er það auð-
vitað jólakötturinn sem
gæðir sér á börnum.
Það er kannski engin
furða að útlendingum
þyki þetta eiginlega bara
hræðilegt. Síðan er það
skötuátið sem tengist
jólahátíðinni þrátt fyrir
að það fari fram á Þor-
láksmessu. Það er
auðvitað vel skiljanlegt
að útlendinga hrylli við
því, sérstaklega ef þeir
hafa orðið þeirrar ógæfu
aðnjótandi að finna óþef-
inn sem leggur upp úr
pottum landsmanna á
Þorláksmessu.
Í Noregi tengjast
nornir og galdrar jólum
en þetta er ævaforn sið-
ur og trú. Enn er sá sið-
ur hafður í heiðri á mörg-
um heimilum að fela alla
kústa því eins og kunnugt
er geta nornir flogið á slík-
um heimilistækjum og því
betra að fela þá.
Í Danmörku er það nánast sið-
ur á hverju heimili að dansað er í
kringum jólatré á aðfangadags-
kvöld. Danir bjóða síðan eldhætt-
unni heim því stór hluti þjóðarinn-
ar kýs að nota kerti, ekki jólaseríu,
til að lýsa jólatrén upp inni í stofu.
Danskar stórfjöl skyldur safnast oft
saman á aðfanga-
dagskvöld og ekki er óalgengt að
tengdafjölskyldur fylgi með. Það
dregur þó úr hátíðleika jólanna
að margra mati að áfengisneysla
Dana er oft og tíðum mikil um há-
tíðarnar og jólin geta því eflaust
verið erfið fyrir mörg börn.
Í Svíþjóð tíðkast
víða að vera með
hlaðborð á að-
fangadag og
inniheldur það
oft jólaskinku,
svínapylsur, egg,
síld, heimagerða
lifrarkæfu,
kartöflur
og
auðvitað hinn víðfræga lútfisk en
það er þurrkaður ufsi, langa eða
þorskur sem er látinn liggja í lút
áður en hann er soðinn. Það er þó
aðeins mismunandi á milli lands-
hluta hvaða matur er á boðstól-
um á aðfangadag. Svo má auðvitað
ekki gleyma IKEA-jólageitinni sem
setur sannarlega svip sinn á landið
í aðdraganda jólanna, svo lengi
sem skemmdarvörgum tekst ekki
að kveikja í henni.
Í Japan er það KFC sem er að-
alnúmerið á aðfangadagskvöld. Í
þessu heimalandi sushi og Kobe-
nautakjöts er það djúpsteiktur
kjúklingur frá KFC sem heillar
marga á aðfangadagskvöld. Þessi
siður er ekki ýkja gamall en hann
ruddi sér til rúms á áttunda ára-
tug síðustu aldar. Boðið er upp á
sérstakar jólamáltíðir á KFC sem
nefnast Kentucky fyrir jólin og eru
þær mjög vel úti látnar og fylgir
jólakaka og kampavín með.
Eistar vilja gjarnan eyða að-
fangadagskvöldi í gufubaði en
mörgum þykir jólin ekki vera góð
nema þeir geti setið naktir í gufu-
baði með ættingjum og vinum,
svolgrað í sig vodka, slakað á og
notið samvista við ættingja og
vini. Eflaust er þetta eitthvað sem
margir undrast en þetta er gam-
all siður þar í landi en þar er mikil
gufubaðsmenning.
Í Úkraínu tíðkast að fela köngu-
ló, jólakóngulóna, í jólatrénu. Hún
er falin vel og vandlega í greinum
þess og það er síðan mikið kapp
hjá fólki að finna hana en það þyk-
ir boða mikla gæfu fyrir viðkom-
andi.
Um jólin 2010 gripu yfirvöld í
Kólumbíu til þess ráðs að skreyta
tré í frumskógum landsins með
jólaseríum. Það kviknaði á þeim
þegar skæruliðar, hryðjuverka-
menn, gengu framhjá þeim og um
leið kviknaði á áróðursskiltum þar
sem þeir voru hvattir til að gef-
ast upp. Þetta bar árangur því 331
skæruliði gaf sig fram og gerðist
nýtur þjóðfélagsþegn.
Við gömlu höfnina
EILÍF HAMINGJA
GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT,
HUMARSÚPA & BRAUÐ
HÁDEGIS TILBOÐ
VIRKA DAGA
2.850
Sinn er í hverju landi
„Eistar vilja gjarnan
eyða aðfangadags-
kvöldi í gufubaði
siður
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is
Sauna
Ómissandi hluti
af eistnesku
jólunum.
Frelsisstytt-
an Jólagjöf frá
Frökkum.
KFC Jólahefð að borða djúp-
steiktan kjúkling í Japan.
Úkraínsk
hefð
Kónguló
falin í jólatré.
T
il að byrja með átti jólasveinninn ekki sleða, það er að segja
útlenski jólasveinninn, þeir íslensku hafa enga þörf fyrir slík
tæki, en 1819 kom jólasveinn fljúgandi í sleða fram á sjón-
arsviðið.
Frá sautjándu öld og fram á þá nítjándu var meðalhitinn í heimin-
um töluvert lægri en venjulega en þá stóð „lítil ísöld“ yfir. Hinn heims-
þekkti rithöfundur Charles Dickens ólst upp á meðan þessi litla ís-
öld réð ríkjum og fyrstu átta jólin hans voru hvít. Þetta hafði áhrif á
skrif hans síðar á lífsleiðinni og vilja margir meina að hann hafi skap-
að væntingar fólks um að fá hvít jól.
E
lsta gervijólatréð sem vitað er um kom fram á síðari hluta nítj-
ándu aldar. Það var Addis Brush Company sem framleiddi það
í vélum sem framleiddu klósettbursta. Markmiðið var að búa til
tré sem var ekki eins eldfimt og þyldi þyngri skreytingar en lif-
andi jólatré. Fyrir þá umhverfisvænu er rétt að taka fram að það þarf
að nota gervijólatré, stundum nefnd fjölær jólatré, tuttugu sinnum til
að þau séu orðin umhverfisvænni en þau vistspor sem notkun á 20
grenitrjám skilja eftir sig.
Í upphafi voru jólatré skreytt með ávöxtum, aðallega eplum, en
síðar meir fór fólk að nota kerti og síðan jólaseríur.
Leikföng eru vinsælar jólagjafir og líklegast eru LEGO-kubbar
einna vinsælastir. Í aðdraganda jólanna seljast að jafnaði 28 LEGO-
-kassar á sekúndu hverri.
Samkvæmt breskum lögum er refsivert að fara ekki í kirkju á
jóladag. Einnig kveða þau á um að ekki megi fara akandi til kirkju á
þessum degi. Það þarf varla að taka fram að þessum lögum er ekki
framfylgt.
Stærsta jólagjöfin sem Bandaríkin hafa fengið er líklegast Frelsis-
styttan en hana fengu Bandaríkin að gjöf frá Frökkum á jóladag 1886.
Hún vegur 225 tonn og því er líklegast leitun að jafn stórri og þungri
jólagjöf. n