Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 100

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 100
100 23. nóvember 2018JÓL Á flestum heimilum eru ákveðnir jólasiðir og jóla- venjur sem eru hafðar í heiðri um jólin. Það sama gildir um ríki heims, að minnsta kosti þar sem jólum er fagnað, þar eru ákveðnir siðir og venjur sem fólki í öðrum ríkjum þykja jafnvel undarlegar. Eflaust finnst mörgum útlendingum í hæsta lagi undar- legt að íslensku jólasveinarnir séu þrettán talsins og komi einn af öðr- um til byggða í aðdraganda jól- anna og gefi börnun- um eitthvað gott í skóinn, nema þeim óþekku sem fá bara kartöflu. Ekki eykur það á undarlegheitin að móðir þeirra er tröllskessa sem borðar fólk. Síðan er það auð- vitað jólakötturinn sem gæðir sér á börnum. Það er kannski engin furða að útlendingum þyki þetta eiginlega bara hræðilegt. Síðan er það skötuátið sem tengist jólahátíðinni þrátt fyrir að það fari fram á Þor- láksmessu. Það er auðvitað vel skiljanlegt að útlendinga hrylli við því, sérstaklega ef þeir hafa orðið þeirrar ógæfu aðnjótandi að finna óþef- inn sem leggur upp úr pottum landsmanna á Þorláksmessu. Í Noregi tengjast nornir og galdrar jólum en þetta er ævaforn sið- ur og trú. Enn er sá sið- ur hafður í heiðri á mörg- um heimilum að fela alla kústa því eins og kunnugt er geta nornir flogið á slík- um heimilistækjum og því betra að fela þá. Í Danmörku er það nánast sið- ur á hverju heimili að dansað er í kringum jólatré á aðfangadags- kvöld. Danir bjóða síðan eldhætt- unni heim því stór hluti þjóðarinn- ar kýs að nota kerti, ekki jólaseríu, til að lýsa jólatrén upp inni í stofu. Danskar stórfjöl skyldur safnast oft saman á aðfanga- dagskvöld og ekki er óalgengt að tengdafjölskyldur fylgi með. Það dregur þó úr hátíðleika jólanna að margra mati að áfengisneysla Dana er oft og tíðum mikil um há- tíðarnar og jólin geta því eflaust verið erfið fyrir mörg börn. Í Svíþjóð tíðkast víða að vera með hlaðborð á að- fangadag og inniheldur það oft jólaskinku, svínapylsur, egg, síld, heimagerða lifrarkæfu, kartöflur og auðvitað hinn víðfræga lútfisk en það er þurrkaður ufsi, langa eða þorskur sem er látinn liggja í lút áður en hann er soðinn. Það er þó aðeins mismunandi á milli lands- hluta hvaða matur er á boðstól- um á aðfangadag. Svo má auðvitað ekki gleyma IKEA-jólageitinni sem setur sannarlega svip sinn á landið í aðdraganda jólanna, svo lengi sem skemmdarvörgum tekst ekki að kveikja í henni. Í Japan er það KFC sem er að- alnúmerið á aðfangadagskvöld. Í þessu heimalandi sushi og Kobe- nautakjöts er það djúpsteiktur kjúklingur frá KFC sem heillar marga á aðfangadagskvöld. Þessi siður er ekki ýkja gamall en hann ruddi sér til rúms á áttunda ára- tug síðustu aldar. Boðið er upp á sérstakar jólamáltíðir á KFC sem nefnast Kentucky fyrir jólin og eru þær mjög vel úti látnar og fylgir jólakaka og kampavín með. Eistar vilja gjarnan eyða að- fangadagskvöldi í gufubaði en mörgum þykir jólin ekki vera góð nema þeir geti setið naktir í gufu- baði með ættingjum og vinum, svolgrað í sig vodka, slakað á og notið samvista við ættingja og vini. Eflaust er þetta eitthvað sem margir undrast en þetta er gam- all siður þar í landi en þar er mikil gufubaðsmenning. Í Úkraínu tíðkast að fela köngu- ló, jólakóngulóna, í jólatrénu. Hún er falin vel og vandlega í greinum þess og það er síðan mikið kapp hjá fólki að finna hana en það þyk- ir boða mikla gæfu fyrir viðkom- andi. Um jólin 2010 gripu yfirvöld í Kólumbíu til þess ráðs að skreyta tré í frumskógum landsins með jólaseríum. Það kviknaði á þeim þegar skæruliðar, hryðjuverka- menn, gengu framhjá þeim og um leið kviknaði á áróðursskiltum þar sem þeir voru hvattir til að gef- ast upp. Þetta bar árangur því 331 skæruliði gaf sig fram og gerðist nýtur þjóðfélagsþegn. Við gömlu höfnina EILÍF HAMINGJA GRILLAÐ ÞORSKSPJÓT, HUMARSÚPA & BRAUÐ HÁDEGIS TILBOÐ VIRKA DAGA 2.850 Sinn er í hverju landi „Eistar vilja gjarnan eyða aðfangadags- kvöldi í gufubaði siður Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Sauna Ómissandi hluti af eistnesku jólunum. Frelsisstytt- an Jólagjöf frá Frökkum. KFC Jólahefð að borða djúp- steiktan kjúkling í Japan. Úkraínsk hefð Kónguló falin í jólatré. T il að byrja með átti jólasveinninn ekki sleða, það er að segja útlenski jólasveinninn, þeir íslensku hafa enga þörf fyrir slík tæki, en 1819 kom jólasveinn fljúgandi í sleða fram á sjón- arsviðið. Frá sautjándu öld og fram á þá nítjándu var meðalhitinn í heimin- um töluvert lægri en venjulega en þá stóð „lítil ísöld“ yfir. Hinn heims- þekkti rithöfundur Charles Dickens ólst upp á meðan þessi litla ís- öld réð ríkjum og fyrstu átta jólin hans voru hvít. Þetta hafði áhrif á skrif hans síðar á lífsleiðinni og vilja margir meina að hann hafi skap- að væntingar fólks um að fá hvít jól. E lsta gervijólatréð sem vitað er um kom fram á síðari hluta nítj- ándu aldar. Það var Addis Brush Company sem framleiddi það í vélum sem framleiddu klósettbursta. Markmiðið var að búa til tré sem var ekki eins eldfimt og þyldi þyngri skreytingar en lif- andi jólatré. Fyrir þá umhverfisvænu er rétt að taka fram að það þarf að nota gervijólatré, stundum nefnd fjölær jólatré, tuttugu sinnum til að þau séu orðin umhverfisvænni en þau vistspor sem notkun á 20 grenitrjám skilja eftir sig. Í upphafi voru jólatré skreytt með ávöxtum, aðallega eplum, en síðar meir fór fólk að nota kerti og síðan jólaseríur. Leikföng eru vinsælar jólagjafir og líklegast eru LEGO-kubbar einna vinsælastir. Í aðdraganda jólanna seljast að jafnaði 28 LEGO- -kassar á sekúndu hverri. Samkvæmt breskum lögum er refsivert að fara ekki í kirkju á jóladag. Einnig kveða þau á um að ekki megi fara akandi til kirkju á þessum degi. Það þarf varla að taka fram að þessum lögum er ekki framfylgt. Stærsta jólagjöfin sem Bandaríkin hafa fengið er líklegast Frelsis- styttan en hana fengu Bandaríkin að gjöf frá Frökkum á jóladag 1886. Hún vegur 225 tonn og því er líklegast leitun að jafn stórri og þungri jólagjöf. n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.