Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 108
108 FÓLK 23. nóvember 2018
H
ún var skírð Louise Eliza
beth Ganeshalingam og
endurnefnd Lovísa Elísa
bet Sigrúnardóttir þegar
hún var átta ára. Flestir Íslendingar
þekkja hana einfaldlega undir
listamannsnafninu Lay Low síð
an árið 2006. Þá heillaði hún þjóð
ina upp úr skónum með einlæg
um og innilegum söng og hefur
allar götur síðan fengist við tónlist.
DV ræddi við Lay Low um ferilinn,
veikindin, framtíðina og fleira.
Kirkjustarfið kveikti áhugann
Lay Low er fædd árið 1982 í suður
hluta Lundúna þar sem foreldrar
hennar kynntust. Þriggja ára flutti
hún til Íslands með móður sinni
sem kynntist öðrum manni. Sett
ust þau að í Laugarneshverfinu og
eignaðist Lay Low systkini, bæði í
Reykjavík og Lundúnum. Hún seg
ir:
„Ég var hress krakki en í kring
um unglingsárin byrjaði eitthvert
óöryggi og feimni að læðast að
mér, sem margir kannast sjálf
sagt við. Á þessum árum byrjaði
ég í kirkjustarfi þar sem ég eignað
ist frábæran vinahóp sem passaði
upp á litla unglinginn. Þar var spil
að í hljómsveit og brallað margt
skemmtilegt og þá vaknaði þessi
mikli tónlistaráhugi hjá mér. Ég
lærði á píanó sem barn en út frá
kirkjustarfinu fór ég að spila á ba
ssa og spilaði aðallega á hann þar
til að Lay Lowferilinn byrjaði árið
2006.“
Lay Low gekk í Menntaskólann
í Hamrahlíð og um tíma nam hún
geislafræði í Háskóla Íslands. Á
þeim tíma leit hún á tónlistina
sem áhugamál frekar en fram
tíðarstarfsvettvang. Loks ákvað
hún að hella sér út í tónlist af full
um krafti. Hún fór í Listaháskól
ann og lærði tónsmíðar og hóf að
semja eigin verk. Hún lauk ekki
námi en Lay Low og hljómsveitin
Benny Crespo’s Gang urðu til.
„Við spiluðum alveg gríðar
lega mikið fyrstu árin. Vorum ná
lægt því að vera vikulega með gigg
sem er ansi gott fyrir rokkband
sem spilar aðeins á Íslandi. Þá fór
ég að fá greitt fyrir gigg stundum,
var boðuð í viðtöl eða myndatökur
og sumir fóru að þekkja mig sem
Lovísu úr Benny Crespo’s Gang.“
Berskjölduð og væmin á
íslensku
Fyrsta plata Lay Low kom út árið
2006 og bar heitið Please Don’t
Hate Me. Lay Low segist þykja
vænt um þá plötu þótt hún sé
hrá og óritskoðuð. Allt fékk að
flakka. Önnur platan, Farewell
Good Night’s Sleep var tekin upp
í Lundúnum árið 2008. Sú þriðja,
Brostinn strengur, var öll sungin
á íslensku sem reyndist Lay Low
nokkuð erfitt.
„Ég verð að viðurkenna að ég
hef átt svolítið erfitt með að semja
á íslensku. Ég veit ekki af hverju
það er. Kannski finnst mér ég
verða of berskjölduð og væmin á
íslensku þar sem ég hef oft verið
að skrifa frekar persónulega texta.
Þá hefur verið fínt að fela sig á bak
við enskuna. Á þessari plötu not
aði ég mest ljóð frá öðrum konum
og samdi lög við þau. Ég tengdi
mikið við þessi ljóð og fann sjálfa
mig í þeim.“
Síðasta stúdíóplatan kom
út árið 2013, Talking About the
Weather, en Lay Low hefur einnig
gefið út tvær tónleikaplötur.
Hvað hefur þú verið að bralla
síðan þá?
„Ég tók nokkrar tónleikaferðir
erlendis til að fylgja þeirri plötu
eftir. Árið 2015 kom einn lítill
strákur í heiminn sem hefur ver
ið aðaláhugamálið mitt undanfar
in ár og kannski ein helsta ástæð
an fyrir rólegheitunum hjá mér
varðandi útgáfu og ferðalög. Við
keyptum líka gamalt hús sem hef
ur þurft mikið viðhald. Þannig
að það hefur farið dágóður tími í
framkvæmdir í húsinu, að planta
plöntum og njóta sveitasælunn
ar. Það hefur líka farið góður tími í
að klára aðra breiðskífu frá Benny
Crespo’s Gang sem kom út fyrir
nokkrum vikum og heitir Minor
Mistakes.“
Ertu að vinna að nýju efni?
„Já, ég er núna að vinna í nýjum
lögum og skoða ýmsa möguleika
í hvert ég vilji fara með þau. Ég er
mjög spennt að fara að taka þetta
upp og leyfa fólki að heyra.“
Taugasjúkdómurinn hafði áhrif
Lay Low glímdi við mjög erfið
veikindi í kringum tvítugsaldur
inn. Hún segir að sú reynsla hafi
mótað hennar tónlistarferil hvað
mest.
„Ég greindist með sjaldgæfan
taugasjúkdóm í höfði. Eftir miklar
vangaveltur um hvað væri að hrjá
mig fannst einnig æxli í heila. Ég
varð alveg afskaplega veik og hélt á
tímapunkti að ég gæti ekki meira.
Til allrar hamingju náði ég fullum
bata eftir aðgerð þar sem æxlið var
fjarlægt. Ég fékk annað tækifæri.
Eftir það hef ég reglulega minnt
mig á hvað hlutir eins og almenn
heilsa eru ekki svo sjálfsagðir.“
Hún segir að vinsældirnar sem
hún uppskar strax í byrjun ferils
ins hafi komið henni virkilega á
óvart. Hún hafði sjálf efasemdir
um sönghæfileika sína og tónlistin
var á jaðrinum.
„Ég var að vinna í Skífunni við
Laugaveg þegar platan kom út. Ég
sá það gerast fyrir framan mig að
platan mjakaðist hægt og rólega
upp metsölulistann og allt í einu
voru sölutölurnar komnar svo
langt langt fram úr þessum 100
eintökum sem ég var að vonast til
að selja. Ég held að hún hafi verið
fljót að detta í platínumsölu sem
var um 10 þúsund eintök. Ég skil
þetta ekki enn þá!“
Hvað er erfiðast við að vera
tónlistarmaður?
„Ég var lengi vel að glíma við
mikinn sviðsskrekk þegar ég var
að byrja. Það var mjög erfitt og gat
alveg skemmt fyrir mér heilu tón
leikana og heilu tónleikaferðirnar.
En með árunum og aldrinum hef
ég náð tökum á þessu. Auðvitað
kemur upp stress og óöryggi enn
þá, en ég næ yfirleitt að kippa mér
úr því ástandi og komast á betri
stað. Ég get nú notið þess að spila
fyrir aðra og vera til staðar.“
Góðir og slæmir samferðamenn
Lay Low hefur fengist við ým
islegt annað á ferlinum. Samið
tónlist fyrir leikrit, þætti og bíó
myndir, sungið og spilað inn á verk
annarra og í leikhúsi. Hún hefur
unnið með fjölda tónlistarmanna
svo sem Emilíönu Torrini og Pétri
Ben og söng eftirminnilegan dúett
með Ragga Bjarna.
„Ég er þakklát að hafa fengið
að kynnast Ragga betur í gegnum
þetta lag og hef sungið þetta með
honum annað slagið í gegnum
árin. Ég væri svo sannarlega til í að
gera eitthvað meira með honum,
hiklaust. Hann er einn af mínum
uppáhalds.“
Varðandi samferðafólk bætir
Lay Low við:
„Eini ferðafélagi sem ég hefði
viljað sleppa var Nóróveiki sem
kom eitt sinn með í hljómsveitar
rútu á tónleikaferð um Evrópu.
Það var ekki gott.“
Lay Low heldur tónleika í
Bæjarbíói þann 1. desember og
Græna hattinum á Akureyri tæpri
viku síðar. Tilefnið er að Brostinn
strengur datt nýlega í gullplötu og
var ákveðið að endurútgefa hana á
vínyl.
„Þá gat ég ekki annað en nýtt
tækifærið og hóað saman í band til
að spila plötuna í heild sinni. Þetta
er ein af mínum uppáhaldsplöt
um en ég hef ekki mikið spilað af
henni nema þegar ég er með full
skipað band. Við tökum að sjálf
sögðu þetta „gamla góða“ líka.“ n
Útifuglafóður
Mikið úrval, gott verð
Smáratorg · Bíldshöfði · Grandi · Hafnarörður
Taugasjúkdómur og heila-
æxli höfðu mótandi áhrif
n Lay Low vinnur að nýjum lögum n Feimin og óörugg sem unglingur„Eini ferðafélagi
sem ég hefði vilj-
að sleppa var Nóró-veiki
sem kom eitt sinn með í
hljómsveitarrútu á tón-
leikaferð um Evrópu. Það
var ekki gott.
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is
MYND HANNA