Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 24
24 FÓLK - VIÐTAL 23. nóvember 2018
E
yþór Ingi Gunnlaugsson
hefur ekki náð þrítugsaldri
enn þá en er þó fyrir löngu
orðinn stórt nafn í skemmt-
anabransanum. Hann á að baki
fjölbreyttan feril bæði í tónlist
og leiklist og hefur unnið hverja
keppnina á fætur annarri, jafnvel
þótt hann hafi ímugust á þeim. DV
ræddi við Eyþór um ímyndunar-
veika krakkann á Dalvík, átján ára
sjónvarpsstjörnuna, Eurovision-
-farann og eftirhermuna.
Átti ímyndaðan vin
Við hittum Eyþór fyrir á kaffihús-
inu í núverandi heimabæ hans,
Hafnarfirði. Allar hans rætur eru
þó fyrir norðan. Eyþór er fædd-
ur árið 1989 og uppalinn á Dalvík
í Eyjafirði, elstur þriggja systkina.
Móðir hans er leiðbeinandi í skóla
og faðir hans er sjómaður sem hef-
ur bæði siglt á togara og trillu. Ey-
þór var gjarnan dreginn með á sjó-
inn sem unglingur en hann sá það
ekki fyrir sér sem framtíðarstarf.
„Sjómennskan átti ekki við
mig. Ég hef alltaf verið upptek-
inn af leiklist og söng, strax á leik-
skólaaldri. Þegar ég hitti leikskóla-
kennarana sem ég var hjá rifja þeir
þetta gjarnan upp. Varla talandi
var ég búinn að ákveða hvað ég
vildi gera. Það hefur aldrei neitt
annað komið til greina.“
Eyþór fékk góðan stuðning frá
foreldrum sínum í að feta þessa
braut, en móðir hans var hrifnari
af að hann yrði söngvari.
„Henni fannst leikarar eitthvað
svo skrýtið fólk,“ segir hann og
hlær.
Hvernig krakki varst þú?
„Ég var tiltölulega rólegur og
mjög utan við mig. Alveg ofboðs-
lega ímyndunarveikur. Hafði svo
mikið ímyndunarafl að sem pjakk-
ur átti ég ósýnilegan vin sem hét
Ganga. Það mátti ekki loka dyrun-
um á Ganga. Það þurfti að leggja á
borð fyrir hann eins og aðra í fjöl-
skyldunni. Þetta var áður en ég
man eftir mér en foreldrar mínir
hafa sagt mér vel frá þessu. Eina
minningin sem ég á sjálfur var
þegar ég fór að skæla í eitt skipt-
ið þegar mamma neitaði að opna
dyrnar og Ganga komst ekki inn.“
Þó að Eyþór hætti að sjá og tala
við Ganga dvínaði ímyndunaraflið
ekki.
„Ég var alltaf að setja upp leik-
rit, „mæma“ við tónlist og fleira í
þeim dúr. Ég var með vínylplötu-
spilara heima. Þar rúlluðu til
skiptis plötur með Ladda og Elvis
Presley og ég var með sýningar
fyrir gesti og gangandi. Ég var alls
ekki ofvirkur en mér leiddist ekki
athygli.“
Skólabókin átti ekkert sérstak-
lega vel við Eyþór en félagslega
stóð hann vel og var vinmargur.
„Langt fram eftir lék ég mér
3 SKREF
BÓKHALDSÞJÓNUSTA
LÖGFRÆÐIRÁÐGJÖF
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
• Skráningartöflur
• Eignaskiptayfirlýsingar
• Eftirfylgni
EIGNASKIPTAYFIRLÝSINGAR
ÞARABAKKA 3
S. 578 6800
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
MYNDIR: HANNA