Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 86
86 23. nóvember 2018
R
ússneska byltingin 1917
var einn merkasti pólit
íski atburður síðustu aldar
og hefur sett mark sitt á
heimsmálin síðan. Þessi blóð
uga bylting batt enda á valda
tíð Romanovfjölskyldunnar. Í
byltingunni náðu bolsévikar, und
ir forystu Vladimírs Lenín, að
komast til valda og binda enda
á valdatíð keisarans. Bolsévikar
urðu síðar Kommúnistaflokkur
Sovétríkjanna. Hér verður stikl
að á stóru um aðdraganda rúss
nesku byltingarinnar, Október
byltinguna, og hana sjálfa.
Öldum saman höfðu keisar
ar ráðið lögum og lofum í Rúss
landi en með byltingunni 1917
var endi bundinn á völd þeirra.
Byltingin hafði mikil áhrif á
stjórnmál og félagsmál og lagði
grunninn að stofnun Sovétríkj
anna. Allt gerðist þetta á skömm
um tíma en undir friðsælu yfir
borðinu hafði óánægja
Rússa kraumað öldum saman.
Í upphafi tuttugustu aldar
innar var Rússland eitt fátækasta
ríki Evrópu. Landbúnaður var
mikilvægur og kotbændur voru
fjölmargir. Stétt
fátækra verka
manna fór
sístækk
andi. Í
vestan verðri álfunni var litið á
Rússland sem vanþróað ríki.
Undir stjórn keisarans voru
bændur neyddir til að þjóna
landeigendum, aðalsmönnum,
langt fram eftir nítjándu öldinni.
Í vestanverðri Evrópu hafði þetta
fyrirkomulag lagst af við lok mið
alda. Það var ekki fyrr en 1861 sem
Rússar aflögðu þetta fyrirkomu
lag. Það hafði síðan áhrif á þá at
burðarás sem endaði með rúss
nesku byltingunni því með þessari
breytingu fengu bændur meira
frelsi til að skipuleggja sig.
Byltingin 1905
Iðnvæðingin hófst mun síðar
í Rússlandi en í vestanverðri
Evrópu og Bandaríkjunum. Þegar
hún hófst loks um aldamótin hafði
hún strax mikil félagsleg og stjórn
málaleg áhrif. Frá 1890 til 1910
tvöfaldaðist næstum því til dæm
is íbúafjöldi St. Pétursborgar og
Moskvu. Þetta hafði í för með sér
mikil þrengsli og slæm lífsskil
yrði hinnar nýju stéttar rússneskra
verkamanna. Mikil mótmæli rúss
neskra verkamanna gegn ein
veldinu enduðu með miklu blóð
baði 1905 en þá drápu hersveitir
keisarans mörg hundruð óvopn
aða mótmælendur. Fjöldamorðið
hratt af stað byltingu 1905 en reið
ir verkamenn gripu þá til um
fangsmikilla verkfalla um allt land.
Keisarinn, Nikulás II., brást við
þessu með því að heita umbótum
á þinginu til að það gæti unnið að
endurbótum.
Rússar blönduðu sér í fyrri
heimsstyrjöldina í ágúst 1914
og studdu Serba og franska og
breska bandamenn þeirra. Þátt
takan í stríðinu reyndist afdrifa
rík fyrir Rússa. Hernaðarlega séð
höfðu þeir ekki roð við hinu iðn
vædda Þýskalandi og mannfallið
var meira en hjá nokkurri annarri
þjóð í stríðum fram til þessa. Mat
ar og eldsneytisskortur herjaði á
Rússlandi og verðbólgan fór upp
úr öllu valdi. Allt var þetta til að
kynda undir óánægju þjóðarinnar.
Þetta og ýmislegt annað sem
gerðist í stjórnmálum og hjá
keisarafjölskyldunni endaði síðan
með að mótmælendur streymdu
út á götur St. Pétursborgar (sem
hét þá Petrograd) í febrúar 1917 og
kröfðust betri lífskjara. Þeim lenti
saman við lögregluna en neit
uðu að gefa sig. Í mars var her
inn kallaður út til að bæla upp
reisnina niður og voru margir
mótmælendur skotnir til bana.
En þeir gáfust ekki upp og héldu
stöðu sinni á götum borgarinnar.
Á endanum fóru hermennirnir að
hika. Þann 12. mars var mynduð
bráðabirgðaríkisstjórn á þinginu
og nokkrum dögum síðar afsal
aði keisarinn sér krúnunni og þar
með var valdatíma Romanovfjöl
skyldunnar lokið.
Leiðtogar ríkisstjórnarinnar
komu á laggirnar frjálslyndum
áætlunum um mannréttindi á
borð við málfrelsi, jafnræði fyrir
lögum og rétti til að mynda stéttar
félög og fara í verkföll. Ríkisstjórn
in var mótfallin ofbeldisfullri fé
lagslegri byltingu. En óróleikinn í
samfélaginu hélt áfram að vaxa.
Októberbyltingin
Í byrjun nóvember létu bolsévik
ar, undir forystu Leníns, til skarar
skríða og hrundu byltingu af stað.
Þeir náðu að velta ríkisstjórninni
og taka völdin. Ríkisstjórnin hafði
verið saman sett af mönnum úr
borgarastéttinni, auðvaldssinn
um. Lenín kallaði eftir ríkisstjórn
sem væri stýrt beint af ráðum her
manna, bænda og verkamanna.
Bolsévikar og bandamenn
þeirra tóku stjórnarbyggingar á
sitt vald sem og aðra mikilvæga
staði og byggingar í St. Pétursborg.
Þeir mynduðu síðan ríkisstjórn
þar sem Lenín var í forsæti og varð
hann þá fyrsti leiðtogi kommún
istaríkis.
Í kjölfar valdatöku bolsévika
braust út borgarastyrjöld í Rúss
landi en þar tókust á Rauði herinn
og Hvíti herinn. Rauði herinn barð
ist fyrir ríkisstjórn bolsévika. Hvíti
herinn var bandlag ýmissa, þar á
meðal einveldissinna, kapítal ista
og stuðningsmanna lýðræðislegs
sósíalisma. Borgarastríðið stóð til
1923 þegar Rauði her Leníns hafði
sigrað Hvíta herinn. Í framhaldi af
ósigri Hvíta hersins voru Sovét
ríkin síðan mynduð.
Sovétríkin leystust síðan upp
1991 og Rússland varð til á nýjan
leik sem og mörg önnur ríki sem
höfðu tilheyrt Sovétríkjunum. Ekki
þarf að efa að Sovétríkin og síðan
Rússland hafa leikið stórt hlutverk
á alþjóðasviðinu og mun Rússland
væntanlega gera það um ókomna
framtíð enda eitt af stórveldum
heimsins. n
TÍMAVÉLIN - ERLENT
Betri
Svefn
RÚSSNESKA BYLTINGIN
Straumhvörf í austanverðri Evrópu
„Lenín kallaði eftir ríkisstjórn
sem væri stýrt beint af ráðum
hermanna, bænda og verkamanna.
1905 Blóðug bylting í rússneska keisaradæminu.
Bolsjévíkar Trotsky, Lenín og Kamenev.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is