Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 20
20 23. nóvember 2018FRÉTTIR - ERLENT LOKAÐIR STURTUKLEFAR MEÐ TOPPI, SPORNA GEGN RAKA OG MYGLU Kíktu á sturta.is og skoðaðu úrvalið S. 856 5566 Komst í kastljósið eftir morðtilraun á Sergej Skripal „Segðu aldrei neitt opin- berlega sem þú vilt ekki að Kreml heyri Í nýrri skýrslu frá hugveitunni The Henry Jackson Society er reynt að meta fjölda rússneskra njósnara í Lundúnum og skýra frá starfsaðferðum þeirra. Fram kemur að mörg hundruð njósnar- ar og upplýsingagjafar á snærum Rússa starfi í borginni. Rússar eru sagðir leggja mikla áherslu á að fá fyrrverandi starfsmenn breskra ráðuneyta til liðs við sig. Umfang njósnastarfsemi Rússa í Bretlandi komst í kastljósið í kjöl- far hinnar misheppnuðu morðtil- raunar á Sergej Skripal í Salisbury í mars. Þá var eitrað fyrir hon- um með hinu bráðdrepandi rúss- neska taugaeitri Novichok. Bresku lögreglunni tókst að rekja slóð hinna meintu tilræðismanna í Lundúnum og í Salisbury og kom- ast að því hverjir þeir eru. Þar reyndust vera tveir rússneskir leyniþjónustumenn á ferð en rússnesk stjórnvöld þvertóku fyrir það. Þeir mættu í sjónvarps- viðtal hjá rússnesku sjónvarps- stöðinni RT, sem er fjármögnuð af stjórnvöldum í Kreml, og stað- hæfðu að þeir væru sárasaklaus- ir menn sem hefðu einfaldlega verið í skoðunarferð í Salisbury og hefðu ekki komið nálægt morðtil- rauninni. Þessu trúðu fáir ef nokk- ur utan Rússlands og meira að segja í Rússlandi hefur fólk mikl- ar efasemdir um þessa frásögn tví- menninganna. Í kjölfar sjónvarpsviðtalsins skýrði rannsóknarfjölmiðillinn Bellingcat frá réttum nöfnum tví- menninganna og staðfesti þar með það sem breska lögreglan hafði haldið fram, að mennirn- ir væru rússneskir leyniþjónustu- menn á vegum leyniþjónustu hersins GRU. Þeir heita Alexander Mishkin og Anatoliy Chepiga en notuðu dulnefnin Alexander Petrov og Ruslan Boshirov þegar þeir ferðuðust til Bretlands. Það er auðvitað ákveðinn áfangasigur fyrir Breta að hafa komist að hinu sanna um nöfn og störf tvímenninganna. En enn eru mörg hundruð rússneskir njósn- arar, leyniþjónustumenn og upp- lýsingagjafar við störf í Bretlandi án þess að bresk stjórnvöld viti hverja er um að ræða. „Pútín sér og heyrir allt: Hvern- ig rússnesk leyniþjónusta ógnar Stóra-Bretlandi“ Þetta er titill skýrslu The Henry Jackson Society en hún var skrifuð af dr. Andrew Foxall. Samkvæmt því sem fram kemur í skýrslunni eru allt að 200 rússneskir leyni- þjónustumenn í Bretlandi og stýra þeir 500 njósnurum og upplýs- ingagjöfum. Starfsemi Rússanna beinist að sögn aðallega að Lund- únum og nærliggjandi svæðum. Þeir reyna stöðugt að afla sér upp- lýsinga um flest það sem viðkemur Bretlandi og breskum hagsmun- um og taka virkan þátt í þeirri að- gerðaáætlun Rússa að ala á sundr- ung og óeiningu á Vesturlöndum. Margir í útlegð Í Lundúnum búa tugir þúsunda Rússa sem eru margir hverjir í út- legð, annaðhvort sjálfskipaðri eða tilneyddir, frá Rússlandi. Sumir þeirra starfa á vegum Pútíns og stjórnar hans en aðrir eru harðir andstæðingar forsetans. Rúss- nesku útsendararnir hafa því gott auga með þeim og stöku sinni eru þeir myrtir að því er segir í skýrsl- unni. Á undanförnum árum, allt að áratug, hafa margir andstæðingar Pútíns látist á dularfullan hátt í Lundúnum. Til dæmis er einn Rússi sagður hafa framið sjálfsvíg með því að stinga sig með tveimur hnífum. Auk þessa hafa leyniþjónusta Bandaríkjanna og Bretlands gefið til kynna að rússnesk stjórnvöld starfi með skipulögðum glæpasamtök- um á borð við rússnesku mafíuna. Í skýrslunni er talað um 200 rússneska leyniþjónustumenn í Lundúnum en sumir telja að þeir séu enn fleiri. Erfitt er að leggja mat á fjölda njósnara og upplýs- ingagjafa Rússa í borginni enda eru Rússar í borginni varir um sig og í rússneska samfélaginu í borginni ríkir nánast ofsóknar- brjálæði. Sumir telja að allt að annar hver Rússi í borginni sé upplýsingagjafi á vegum rúss- neskra stjórnvalda. Ef það er rétt eru upplýsingagjafarnir allt að 70.000 en um 150.000 Rússar búa í Lundúnum. Markmið rússnesku útsendaranna með því að skapa einhvers konar ofsóknarbrjálæði meðal Rússa í borginni er að koma í veg fyrir að fólk tali af sér. „Segðu aldrei neitt um einka- málefni sem þú myndir ekki segja opinberlega. Segðu aldrei neitt opinberlega sem þú vilt ekki að Kreml heyri,“ segir í skýrslunni um hugarfar margra Rússa í borginni. Skýrsluhöfundurinn, Foxall, telur að allt að 1.000 upplýsinga- gjafar geti verið á vegum Rússa í Lundúnum. Sumir rússnesku njósnaranna starfa í rússneska sendiráðinu og aðrir hjá rúss- neska viðskiptaráðinu. Enn aðrir nota dulnefni og eru ekki með diplómatavegabréf. Þeir reyna að fá stjórnmála- og embættismenn til liðs við sig. Þeir eru duglegir að mæta í samkvæmi og móttökur til að komast í tæri við stjórnmála- og embættismenn. Aðrir villa á sér heimildir og segjast tilheyra rússnesku stjórnarandstöðunni og enn aðrir segjast starfa við eitt- hvað allt annað en þeir gera í raun og veru. n Vladimír Pútín Opin- ber heimsókn til London árið 2012. Rússneskir borgarar Grunaðir um morðtilraunina á Skripal-feðginunum. Mörg hundruð njósnarar á vegum Pútíns í Lundúnum Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.