Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Qupperneq 20
20 23. nóvember 2018FRÉTTIR - ERLENT
LOKAÐIR STURTUKLEFAR
MEÐ TOPPI, SPORNA
GEGN RAKA OG MYGLU
Kíktu á sturta.is og
skoðaðu úrvalið
S. 856 5566
Komst í kastljósið eftir morðtilraun á Sergej Skripal „Segðu aldrei neitt opin-
berlega sem þú vilt ekki
að Kreml heyri
Í
nýrri skýrslu frá hugveitunni
The Henry Jackson Society er
reynt að meta fjölda rússneskra
njósnara í Lundúnum og skýra
frá starfsaðferðum þeirra. Fram
kemur að mörg hundruð njósnar-
ar og upplýsingagjafar á snærum
Rússa starfi í borginni. Rússar eru
sagðir leggja mikla áherslu á að
fá fyrrverandi starfsmenn breskra
ráðuneyta til liðs við sig.
Umfang njósnastarfsemi Rússa
í Bretlandi komst í kastljósið í kjöl-
far hinnar misheppnuðu morðtil-
raunar á Sergej Skripal í Salisbury
í mars. Þá var eitrað fyrir hon-
um með hinu bráðdrepandi rúss-
neska taugaeitri Novichok. Bresku
lögreglunni tókst að rekja slóð
hinna meintu tilræðismanna í
Lundúnum og í Salisbury og kom-
ast að því hverjir þeir eru. Þar
reyndust vera tveir rússneskir
leyniþjónustumenn á ferð en
rússnesk stjórnvöld þvertóku
fyrir það. Þeir mættu í sjónvarps-
viðtal hjá rússnesku sjónvarps-
stöðinni RT, sem er fjármögnuð
af stjórnvöldum í Kreml, og stað-
hæfðu að þeir væru sárasaklaus-
ir menn sem hefðu einfaldlega
verið í skoðunarferð í Salisbury og
hefðu ekki komið nálægt morðtil-
rauninni. Þessu trúðu fáir ef nokk-
ur utan Rússlands og meira að
segja í Rússlandi hefur fólk mikl-
ar efasemdir um þessa frásögn tví-
menninganna.
Í kjölfar sjónvarpsviðtalsins
skýrði rannsóknarfjölmiðillinn
Bellingcat frá réttum nöfnum tví-
menninganna og staðfesti þar
með það sem breska lögreglan
hafði haldið fram, að mennirn-
ir væru rússneskir leyniþjónustu-
menn á vegum leyniþjónustu
hersins GRU. Þeir heita Alexander
Mishkin og Anatoliy Chepiga
en notuðu dulnefnin Alexander
Petrov og Ruslan Boshirov þegar
þeir ferðuðust til Bretlands.
Það er auðvitað ákveðinn
áfangasigur fyrir Breta að hafa
komist að hinu sanna um nöfn og
störf tvímenninganna. En enn eru
mörg hundruð rússneskir njósn-
arar, leyniþjónustumenn og upp-
lýsingagjafar við störf í Bretlandi
án þess að bresk stjórnvöld viti
hverja er um að ræða.
„Pútín sér og heyrir allt: Hvern-
ig rússnesk leyniþjónusta ógnar
Stóra-Bretlandi“
Þetta er titill skýrslu The Henry
Jackson Society en hún var skrifuð
af dr. Andrew Foxall. Samkvæmt
því sem fram kemur í skýrslunni
eru allt að 200 rússneskir leyni-
þjónustumenn í Bretlandi og stýra
þeir 500 njósnurum og upplýs-
ingagjöfum. Starfsemi Rússanna
beinist að sögn aðallega að Lund-
únum og nærliggjandi svæðum.
Þeir reyna stöðugt að afla sér upp-
lýsinga um flest það sem viðkemur
Bretlandi og breskum hagsmun-
um og taka virkan þátt í þeirri að-
gerðaáætlun Rússa að ala á sundr-
ung og óeiningu á Vesturlöndum.
Margir í útlegð
Í Lundúnum búa tugir þúsunda
Rússa sem eru margir hverjir í út-
legð, annaðhvort sjálfskipaðri eða
tilneyddir, frá Rússlandi. Sumir
þeirra starfa á vegum Pútíns og
stjórnar hans en aðrir eru harðir
andstæðingar forsetans. Rúss-
nesku útsendararnir hafa því gott
auga með þeim og stöku sinni eru
þeir myrtir að því er segir í skýrsl-
unni.
Á undanförnum árum, allt að
áratug, hafa margir andstæðingar
Pútíns látist á dularfullan hátt í
Lundúnum. Til dæmis er einn
Rússi sagður hafa framið sjálfsvíg
með því að stinga sig með tveimur
hnífum. Auk þessa
hafa leyniþjónusta
Bandaríkjanna og
Bretlands gefið til
kynna að rússnesk
stjórnvöld starfi
með skipulögðum glæpasamtök-
um á borð við rússnesku mafíuna.
Í skýrslunni er talað um 200
rússneska leyniþjónustumenn í
Lundúnum en sumir telja að þeir
séu enn fleiri. Erfitt er að leggja
mat á fjölda njósnara og upplýs-
ingagjafa Rússa í borginni enda
eru Rússar í borginni varir um
sig og í rússneska samfélaginu í
borginni ríkir nánast ofsóknar-
brjálæði. Sumir telja að allt að
annar hver Rússi í borginni sé
upplýsingagjafi á vegum rúss-
neskra stjórnvalda. Ef það er rétt
eru upplýsingagjafarnir allt að
70.000 en um 150.000 Rússar búa
í Lundúnum. Markmið rússnesku
útsendaranna með því að skapa
einhvers konar ofsóknarbrjálæði
meðal Rússa í borginni er að koma
í veg fyrir að fólk tali af sér.
„Segðu aldrei neitt um einka-
málefni sem þú myndir ekki segja
opinberlega. Segðu aldrei neitt
opinberlega sem þú vilt ekki að
Kreml heyri,“ segir í skýrslunni um
hugarfar margra Rússa í borginni.
Skýrsluhöfundurinn, Foxall,
telur að allt að 1.000 upplýsinga-
gjafar geti verið á vegum Rússa
í Lundúnum. Sumir rússnesku
njósnaranna starfa í rússneska
sendiráðinu og aðrir hjá rúss-
neska viðskiptaráðinu. Enn aðrir
nota dulnefni og eru ekki með
diplómatavegabréf. Þeir reyna að
fá stjórnmála- og embættismenn
til liðs við sig. Þeir eru duglegir að
mæta í samkvæmi og móttökur til
að komast í tæri við stjórnmála-
og embættismenn. Aðrir villa á
sér heimildir og segjast tilheyra
rússnesku stjórnarandstöðunni
og enn aðrir segjast starfa við eitt-
hvað allt annað en þeir gera í raun
og veru. n
Vladimír
Pútín Opin-
ber heimsókn
til London
árið 2012.
Rússneskir borgarar Grunaðir um
morðtilraunina á Skripal-feðginunum.
Mörg hundruð njósnarar á
vegum Pútíns í Lundúnum
Kristján Kristjánsson
ritstjorn@dv.is