Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Blaðsíða 92
92 MATUR 23. nóvember 2018
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
586 1414
stora@stora.is · stora.is
facebook.com/storabilasalan ...á verði fyrir þig!
kaffi á könnunni
opið mán-fös 10-18
Til afgreiðslu strax
Komið og reynsluakið
Vel búnir
*Yaris 1,0 bensín beinskiptir nýr bíll árgerð 2018
Bluetooth Hiti í sætum Akreinavari
Árekstrarvari USB og Aux tengi
25 ÞÚS
Á MÁNU
ÐI**
80%lán
AÐEINS
29 ÞÚSÁ MÁNUÐI***90%lán
AÐEINS
*
*
M
ið
að
v
ið
8
0
%
lá
n
til
8
4
m
án
að
a
-
Á
rl
eg
V
ax
ta
kj
ör
7
,9
5%
.
Á
H
K
9
,6
4%
**
*M
ið
að
v
ið
9
0
%
lá
n
til
6
0
m
án
að
a
- Á
rs
ve
xt
ir
e
ru
8
,1
5%
.
Á
H
K
1
0
,0
5%
VERÐ KR.
ÞÚS.
1.990
NÝR TOYOTA
YARIS 2018*
Bílar í ábyrgð – Skoðum með uppítöku á öllum tegundum bifreiða
Fyrir
aðe
ins
99 þ
úsun
d kr
.
auka
lega
færð
þú 15
“ álfe
lgur
og fi
lmað
ar
rúðu
r.
Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík
586 1414
stora@stora.is · stora.is
facebook.com/storabil s lan ...á verði fyrir þig!
kaffi á könnunni
opið mán-fös 10-18
Til afgreiðslu strax
Komið og reynsluakið
Vel búnir
*Yaris 1,0 be sín beinskiptir nýr bíll árgerð 2018
Bluetooth Hiti í sætum Akreinavari
Árekst arvari USB og Aux tengi
25 ÞÚS
Á MÁNU
ÐI**
80%lán
AÐEINS
29 ÞÚSÁ MÁNUÐI **90%lán
AÐEINS
*
*
M
ið
að
v
ið
8
0
%
lá
n
til
8
4
m
án
að
a
-
Á
rl
eg
V
ax
ta
kj
ör
7
,9
5%
.
Á
H
K
9
,6
4%
**
*M
ið
að
v
ið
9
0
%
lá
n
til
6
0
m
án
að
a
- Á
rs
ve
xt
ir
e
ru
8
,1
5%
.
Á
H
K
1
0
,0
5%
VERÐ KR.
ÞÚS.
.
I *
„Frá því að frumburðurinn minn
fallegi kom í heiminn árið 2004
hef ég séð um jólahaldið fyr-
ir fjölskylduna á hverju ári, mér
fannst það falleg og góð hefð,
svo hef ég mikla ánægju af því
að elda fallegan og góðan mat og
ekki síður að dekka fallegt borð.
Svo það hentar mér afar vel að fá
að vera jólagestgjafinn. Í gegnum
árin hef ég breytt uppskriftum,
prófað nýjungar og bætt og búið
til mínar eigin hefðir, samanber
að gera meðlætið mikið til frá
grunni. Má þar nefna jólasultu,
brúnkál, rauðkál, sultaðan lauk,
þeytt smjör og fleira í þeim dúr.
Þrátt fyrir allt
gúrmeið sem
maður hleð-
ur á borðið
þá er alltaf
eitt sem
flestir Ís-
lendingar gera, og þar með talin
ég, og það er að opna eins og
eina til tvær dósir af Ora með-
læti. Sem er auðvitað svolítið sér-
stök hefð svona ef maður veltir
því raunverulega fyrir sér.
Fyrir nokkrum árum þegar
klukkan var að slá sex, gestirnir
voru að renna í hlað, jólatónarn-
ir ómuðu um húsið og húsmóð-
irin sjaldan verið sáttari við af-
raksturinn þá átti ég aðeins eitt
eftir, jú, að opna grænubauna-
dósina. Það gekk ekki betur en
svo að ég skar mig svo hressi-
lega í lófanum að allt fór á annan
endann og fullkomnu jólin urðu
ekki svo fullkomin eftir allt. Enda
gera slysin augljóslega ekki boð á
undan sér. Í dag ber ég þetta fína
jólaör í lófanum sem minningu
um þetta ævintýri og get hlegið
að þessu.“
Kolbrún Pálína Helgadóttir,
verkefnastjóri markaðsdeildar
Morgunblaðsins
„Á mínu æskuheimili í Vog-
um á Vatnsleysuströnd var alltaf
borðaður svínaham-
borgarhryggur og sú
hefð hélst áfram eftir
að ég byrjaði að búa
á Selfossi. Ég man ekki
eftir því að við höfum
haft neinn eftirrétt í
Vogunum. Eftir að ég
flutti á Selfoss hefur skapast sú
hefð að kíkja alltaf til tengdafor-
eldra minna hér á staðnum þegar
búið er að lesa jólakortin og opna
pakkana. Þar fæ ég alltaf minn
uppáhaldsmat um jólin, jólabúð-
ing sem tengdamamma töfrar
alltaf fram. Þetta er búðingur með
alls konar góðgæti í, oft bláberja-
eða jarðarberjabúðingur með
rjóma og súkkulaðispæni ofan á.
Ég get ómöglega lýst bragðinu af
búðingnum en hann er svo rosa-
lega góður að orð fá því ekki lýst.
Ég er strax farinn að hlakka til að
fara í Stekkholtið á Selfossi næsta
aðfangadagskvöld og fá búð-
inginn góða.“
Magnús Hlynur Hreiðarsson,
fréttamaður á Selfossi.
„Á æskuheimili mínu er alltaf
bökuð tólf- til átjánföld upp-
skrift að jólasmákökum. Pínu-
litla eldhúsið breytist í ákveðna
jólasveinaverksmiðju. Kallað er í
frændsystkin og vini og svo vinn-
ur fólk sig upp í stöðum. Kon-
unglega staðan er pabbi – sem er
hrærarinn. Ég, systir mín og eldra
fólkið setjum deig á plötur og þau
yngstu sjá um að það lofti vel um
þær þegar þær koma úr ofninum
og raða þeim svo í box. Upphaf-
lega ástæðan fyrir þessu magni
var að við bíttuðum við aðra sem
bökuðu – en í seinni tíð erum við
líka að gefa þeim sem ekki hafa
tök á að baka vegna aldurs. Það
er mikilvægt ef fólk vill borða deig
að ná því áður en hveitið fer ofan
í, dýfa puttanum í og dippa hon-
um svo í súkkulaðibita og hnetur.
Annars verður fólk alveg agalegt í
maganum daginn eftir. Sama rifr-
ildið á sér stað með hverja plötu,
á hverju ári – pabbi vill baka þær
meira en við systurnar.
Margrét Erla Maack
Burlesque-drottning
„Það var frekar ruglaður tími
þegar ég vann sem vaktstjóri á Tíu
dropum við Laugaveg, þar sem ég
deildi þeirri stöðu ásamt mann-
inum sem var alltaf með hatt. Eft-
ir lokun og frágang, klukkan tvö á
nóttunni, settumst við sem þarna
unnum ásamt fastagestum og
spiluðum laumu. Reyktum inni
og drukkum.
Í eitt af þessum skiptum gerði
ég óvart samning við manninn
með hattinn um að eyða með
honum jólunum. Hann sagði okk-
ur að hann væri ekki spenntur fyr-
ir þeim þetta árið, og ætlaði ekki
að halda þau. Ég kýldi hann í öxl-
ina á níunda bjór og sagði hon-
um að við skyldum nú bara panta
okkur sóðalegan mat, horfa á Die
Hard og gefa skít í jólin.
Næsta dag hafði ég gleymt
þessum samræðum en hann ekki.
Mamma og pabbi voru mjög hissa
þegar ég kvaddi þau á aðfanga-
dagskvöld. EN ég sveik ekki loforð
svo ég staulaðist heim til manns-
ins í gegnum snjóinn á meðan
jólin voru hringd inn, með stór-
an kassa af bjór í einum poka og
pakka í hinum. Vin-
ur minn hafði stað-
ið í eldhúsinu allan
daginn og lagði sig
fram við að gera
þetta hátíðlegt. En
þegar kom að því að
borða bauð hann stoltur
upp á for forrétt – humar-
súpu. Forrétturinn sjálfur var
hvítlauksristaðir humarhalar og
þegar kom að aðalréttinum út-
skýrði hann að honum hefði ekki
dottið neitt annað í hug að
elda fyrir manneskju sem
borðaði ekki kjöt, en ofn-
bakaður humar var það.
Maðurinn með hatt-
inn býr í París og ég
hef ekki séð hann árum
saman, en mér þykir alltaf
vænt um þessa jólaminningu. En
ég mun aldrei aftur borða humar.“
Júlía Margrét Einarsdóttir
skáld
Fullkomnu jólin urðu ekki svo fullkomin Ólýsanlegur búðingur sem er bara borðaður á jólum
Sama rifrildið á hverju ári
Eyddi jólunum með manninum með hattinn