Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 92

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 92
92 MATUR 23. nóvember 2018 Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík 586 1414 stora@stora.is · stora.is facebook.com/storabilasalan ...á verði fyrir þig! kaffi á könnunni opið mán-fös 10-18 Til afgreiðslu strax Komið og reynsluakið Vel búnir *Yaris 1,0 bensín beinskiptir nýr bíll árgerð 2018 Bluetooth Hiti í sætum Akreinavari Árekstrarvari USB og Aux tengi 25 ÞÚS Á MÁNU ÐI** 80%lán AÐEINS 29 ÞÚSÁ MÁNUÐI***90%lán AÐEINS * * M ið að v ið 8 0 % lá n til 8 4 m án að a - Á rl eg V ax ta kj ör 7 ,9 5% . Á H K 9 ,6 4% ** *M ið að v ið 9 0 % lá n til 6 0 m án að a - Á rs ve xt ir e ru 8 ,1 5% . Á H K 1 0 ,0 5% VERÐ KR. ÞÚS. 1.990 NÝR TOYOTA YARIS 2018* Bílar í ábyrgð – Skoðum með uppítöku á öllum tegundum bifreiða Fyrir aðe ins 99 þ úsun d kr . auka lega færð þú 15 “ álfe lgur og fi lmað ar rúðu r. Kletthálsi 2 · 110 Reykjavík 586 1414 stora@stora.is · stora.is facebook.com/storabil s lan ...á verði fyrir þig! kaffi á könnunni opið mán-fös 10-18 Til afgreiðslu strax Komið og reynsluakið Vel búnir *Yaris 1,0 be sín beinskiptir nýr bíll árgerð 2018 Bluetooth Hiti í sætum Akreinavari Árekst arvari USB og Aux tengi 25 ÞÚS Á MÁNU ÐI** 80%lán AÐEINS 29 ÞÚSÁ MÁNUÐI **90%lán AÐEINS * * M ið að v ið 8 0 % lá n til 8 4 m án að a - Á rl eg V ax ta kj ör 7 ,9 5% . Á H K 9 ,6 4% ** *M ið að v ið 9 0 % lá n til 6 0 m án að a - Á rs ve xt ir e ru 8 ,1 5% . Á H K 1 0 ,0 5% VERÐ KR. ÞÚS. . I * „Frá því að frumburðurinn minn fallegi kom í heiminn árið 2004 hef ég séð um jólahaldið fyr- ir fjölskylduna á hverju ári, mér fannst það falleg og góð hefð, svo hef ég mikla ánægju af því að elda fallegan og góðan mat og ekki síður að dekka fallegt borð. Svo það hentar mér afar vel að fá að vera jólagestgjafinn. Í gegnum árin hef ég breytt uppskriftum, prófað nýjungar og bætt og búið til mínar eigin hefðir, samanber að gera meðlætið mikið til frá grunni. Má þar nefna jólasultu, brúnkál, rauðkál, sultaðan lauk, þeytt smjör og fleira í þeim dúr. Þrátt fyrir allt gúrmeið sem maður hleð- ur á borðið þá er alltaf eitt sem flestir Ís- lendingar gera, og þar með talin ég, og það er að opna eins og eina til tvær dósir af Ora með- læti. Sem er auðvitað svolítið sér- stök hefð svona ef maður veltir því raunverulega fyrir sér. Fyrir nokkrum árum þegar klukkan var að slá sex, gestirnir voru að renna í hlað, jólatónarn- ir ómuðu um húsið og húsmóð- irin sjaldan verið sáttari við af- raksturinn þá átti ég aðeins eitt eftir, jú, að opna grænubauna- dósina. Það gekk ekki betur en svo að ég skar mig svo hressi- lega í lófanum að allt fór á annan endann og fullkomnu jólin urðu ekki svo fullkomin eftir allt. Enda gera slysin augljóslega ekki boð á undan sér. Í dag ber ég þetta fína jólaör í lófanum sem minningu um þetta ævintýri og get hlegið að þessu.“ Kolbrún Pálína Helgadóttir, verkefnastjóri markaðsdeildar Morgunblaðsins „Á mínu æskuheimili í Vog- um á Vatnsleysuströnd var alltaf borðaður svínaham- borgarhryggur og sú hefð hélst áfram eftir að ég byrjaði að búa á Selfossi. Ég man ekki eftir því að við höfum haft neinn eftirrétt í Vogunum. Eftir að ég flutti á Selfoss hefur skapast sú hefð að kíkja alltaf til tengdafor- eldra minna hér á staðnum þegar búið er að lesa jólakortin og opna pakkana. Þar fæ ég alltaf minn uppáhaldsmat um jólin, jólabúð- ing sem tengdamamma töfrar alltaf fram. Þetta er búðingur með alls konar góðgæti í, oft bláberja- eða jarðarberjabúðingur með rjóma og súkkulaðispæni ofan á. Ég get ómöglega lýst bragðinu af búðingnum en hann er svo rosa- lega góður að orð fá því ekki lýst. Ég er strax farinn að hlakka til að fara í Stekkholtið á Selfossi næsta aðfangadagskvöld og fá búð- inginn góða.“ Magnús Hlynur Hreiðarsson, fréttamaður á Selfossi. „Á æskuheimili mínu er alltaf bökuð tólf- til átjánföld upp- skrift að jólasmákökum. Pínu- litla eldhúsið breytist í ákveðna jólasveinaverksmiðju. Kallað er í frændsystkin og vini og svo vinn- ur fólk sig upp í stöðum. Kon- unglega staðan er pabbi – sem er hrærarinn. Ég, systir mín og eldra fólkið setjum deig á plötur og þau yngstu sjá um að það lofti vel um þær þegar þær koma úr ofninum og raða þeim svo í box. Upphaf- lega ástæðan fyrir þessu magni var að við bíttuðum við aðra sem bökuðu – en í seinni tíð erum við líka að gefa þeim sem ekki hafa tök á að baka vegna aldurs. Það er mikilvægt ef fólk vill borða deig að ná því áður en hveitið fer ofan í, dýfa puttanum í og dippa hon- um svo í súkkulaðibita og hnetur. Annars verður fólk alveg agalegt í maganum daginn eftir. Sama rifr- ildið á sér stað með hverja plötu, á hverju ári – pabbi vill baka þær meira en við systurnar. Margrét Erla Maack Burlesque-drottning „Það var frekar ruglaður tími þegar ég vann sem vaktstjóri á Tíu dropum við Laugaveg, þar sem ég deildi þeirri stöðu ásamt mann- inum sem var alltaf með hatt. Eft- ir lokun og frágang, klukkan tvö á nóttunni, settumst við sem þarna unnum ásamt fastagestum og spiluðum laumu. Reyktum inni og drukkum. Í eitt af þessum skiptum gerði ég óvart samning við manninn með hattinn um að eyða með honum jólunum. Hann sagði okk- ur að hann væri ekki spenntur fyr- ir þeim þetta árið, og ætlaði ekki að halda þau. Ég kýldi hann í öxl- ina á níunda bjór og sagði hon- um að við skyldum nú bara panta okkur sóðalegan mat, horfa á Die Hard og gefa skít í jólin. Næsta dag hafði ég gleymt þessum samræðum en hann ekki. Mamma og pabbi voru mjög hissa þegar ég kvaddi þau á aðfanga- dagskvöld. EN ég sveik ekki loforð svo ég staulaðist heim til manns- ins í gegnum snjóinn á meðan jólin voru hringd inn, með stór- an kassa af bjór í einum poka og pakka í hinum. Vin- ur minn hafði stað- ið í eldhúsinu allan daginn og lagði sig fram við að gera þetta hátíðlegt. En þegar kom að því að borða bauð hann stoltur upp á for forrétt – humar- súpu. Forrétturinn sjálfur var hvítlauksristaðir humarhalar og þegar kom að aðalréttinum út- skýrði hann að honum hefði ekki dottið neitt annað í hug að elda fyrir manneskju sem borðaði ekki kjöt, en ofn- bakaður humar var það. Maðurinn með hatt- inn býr í París og ég hef ekki séð hann árum saman, en mér þykir alltaf vænt um þessa jólaminningu. En ég mun aldrei aftur borða humar.“ Júlía Margrét Einarsdóttir skáld Fullkomnu jólin urðu ekki svo fullkomin Ólýsanlegur búðingur sem er bara borðaður á jólum Sama rifrildið á hverju ári Eyddi jólunum með manninum með hattinn
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.