Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 39

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 39
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ SETTU GLEÐISTUND Í JÓLAPAKKANN: Gjafakort í Þjóðleikhúsið er tilvalin jólagjöf Aðsókn að leiksýningum Þjóð-leikhússins hefur verið með eindæmum góð á leikárinu og vinsælar sýningar verða áfram á fjölunum eftir áramót, auk þess sem nýjar og spennandi sýningar verða frumsýndar á næstunni. Gjafakort í Þjóðleikhúsið er því kærkomin jóla- gjöf fyrir marga en kortið er hægt að kaupa á vef Þjóðleikhússins, leikhusid.is, eða í afgreiðslunni við Hverfisgötu. Hér er yfirlit yfir helstu verkefni leikhússins í vetur: n Ronja ræningjadóttir – Uppselt út 2018 Stórskemmtilegur og æsispennandi söngleikur fyrir alla fjölskylduna! Ronja ræningjadóttir er einstök saga um óvenjulega vináttu, heitar tilfinningar, hættuleg ævintýri, sorg og gleði. Salka Sól fer með hlutverk Ronju og Sigurður Þór Óskars- son leikur vin hennar, Birki. Meðal annarra leikara eru Örn Árnason, Vigdís Hrefna Pálsdóttir og Edda Björgvinsdóttir, en stór hópur leikara, dansara, barna og tónlist- arfólks tekur þátt í þessari fjörugu og fallegu sýningu. Sýningin hefur hlotið einróma lof áhorfenda og gagnrýnenda enda er aðsókn með því mesta sem sést hefur í leikhús- inu. Ronja ræningjadóttir verður áfram á fjölunum eftir áramót. Samþykki – Spennuþrungið leik- rit um völundarhús sannleikans. Kristín Jóhannesdóttir, sem leik- stýrði hinni geysivinsælu sýningu Föðurnum, snýr aftur með magn- aða leiksýningu. Kraftmikið, splunkunýtt verk sem sló í gegn í Breska þjóðleik- húsinu á liðnu leikári, og hefur nú verið flutt yfir á West End. Hvers vegna er réttlætisgyðj- an yfirleitt sýnd með bundið fyrir augun? Er hún óhlutdræg? Eða getur hún verið blind á tilteknar staðreyndir? Í vinahópi nokkurra lög- fræðinga eru skiptar skoðanir á umdeildu dómsmáli. Lykilvitnið er kona sem tilheyrir heimi sem virð- ist í órafjarlægð frá lífi vinanna. En brátt er mál þessarar ókunn- ugu konu farið að hafa ófyrirsjá- anlegar afleiðingar á samskipti þeirra og ástarsambönd. Hvernig getum við feng- ið fullvissu um hvað er satt og hvað logið? Hver er munurinn á hefndarþorsta og leit að réttlæti? Eru allir jafnir fyrir lögunum? Fly me to the moon Nýtt verk eftir höfund hins geysi- vinsæla leikrits Með fulla vasa af grjóti Bráðskemmtilegt verk um tvær kjarnakonur sem hafa alltaf þurft að hafa fyrir lífinu, en standa skyndilega frammi fyrir möguleik- anum á að eignast svolítinn pening með auðveldum hætti. Það þarf kannski bara að svindla smá … Leikkonurnar Ólafía Hrönn og Anna Svava sameina krafta sína og fara á kostum í þessum nýja tvíleik eftir Marie Jones. Loddarinn Tartuffe – Hárbeitt verk eftir meistara gamanleikjanna Molière er sannkallaður meistari gamanleikjanna og leikrit hans um loddarann Tartuffe er eitt hans allra vinsælasta verk. Hræsnaranum Tartuffe hefur tekist að ávinna sér traust og aðdá- un heimilisföðurins Orgons og vefja honum um fingur sér, fjölskyldu hans til óbærilegrar hrellingar. Smám saman er Tartuffe farinn að stjórna lífi heimilisfólksins. Þegar Orgon fær þá flugu í höfuðið að gifta dóttur sína Tartuffe eru góð ráð dýr. Leikstjóri sýningarinnar, Stefan Metz, er íslenskum leikhúsunnendum að góðu kunnur fyrir sýningar á borð við Eldraunina og Horft frá brúnni. Þitt eigið leikrit Bækur Ævars Þórs Benedikts- sonar, þar sem lesandinn ræður því hvað gerist næst, hafa notið gífurlegra vinsælda meðal yngri lesenda. Nú er komið að þér að stjórna framvindunni í þínu eigin leikriti! Söguheimurinn er norræna goðafræðin, full af hrikaleg- um hetjum og stórhættulegum skrímslum. Engar tvær sýningar verða eins, því áhorfendur ráða því hvað gerist! Muntu sigra Miðgarðsorminn eða gleypir hinn hræðilegi Fenrisúlfur þig? Ætlarðu að gerast barnapía fyrir Loka eða líst þér betur á að verja sjálfa Valhöll fyrir jötnum og hrímþursum? Ævintýraleg og spennandi sýn- ing, þar sem allt getur gerst! Klókur ertu, Einar Áskell Við fylgjumst með degi í lífi feðganna Einars Áskels og pabba hans, þar sem daglegt líf fær á sig ljóma ævin- týrs, eins og tilvera okkar allra getur gert í einu vetfangi, ef við opnum fyrir leikinn, sköpunina og ímyndunaraflið. Einar Áskell veit fátt skemmtilegra en þegar pabbi hans tekur sér tíma og leikur við hann. Það næstskemmti- legasta er að fá að leika sér með verkfærakassann, en það er strang- lega bannað og stórhættulegt að leika sér með sögina! Súper – þar sem kjöt snýst um fólk Súper – þar sem kjöt snýst um fólk er nýtt og bráðfyndið leikrit eftir Jón Gnarr, fullt af „gnar- rískum“ húmor og pælingum, í leikstjórn Benedikts Erlingssonar. Fólk hittist í stórmarkaði og á í einlægum samræðum – eða er það bara að tala við sjálft sig? Fólk finnur vörur sem næra ekki bara skrokkinn heldur andann líka og finnur hluti sem gera það heilsteyptara. „Þú þekkir fólk á vörunum sem það kaupir“, segir ekkert máltæki. Fjölbreytt samstarfsverkefni Þjóðleikhúsið er í samstarfi við ólíka leikhópa, Leiktóna með sýninguna Ég heiti Guðrún. Stertabenda með sýninguna Insomnia. Leikkonur 50+ með sýningarnar Fjallkonan fríð og Dansandi ljóð. Trigger Warning með sýninguna Velkomin heim og sviðslistahópinn Marble Crowd með sýninguna Moving mountains. ÍTARLEGAR UPPLÝSINGAR UM ALLAR SÝNINGAR ÞJÓÐLEIKHÚSSINS ER AÐ FINNA Á LEIKHUSID.IS. Einræðisherrann Meistaraverk Charlies Chaplins á leik- sviði, í bráðskemmtilegri, nýrri gerð. Leikgerð Nikolajs Cederholms af kvikmyndinni Einræðisherranum sló rækilega í gegn hjá Nørrebro-leikhús- inu í Kaupmannahöfn á liðnu leikári, og gagnrýnendur hlóðu lofi á sýn- inguna! Nú gefst íslenskum leikhúsgestum kostur á að sjá Sigga Sigurjóns stíga á svið í hlutverki flækingsins sem verður einræðisherra fyrir röð mistaka. Heillandi, bráðskemmtileg og frumleg leiksýn- ing um valdasýki, möguleika mennsk- unnar í trylltri veröld og baráttuna fyrir friði í heiminum.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.