Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Qupperneq 43
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
TPG – The Perfect Gentleman – er netverslun sem sérhæfir sig í gæðasnyrtivörum fyrir karlmenn,
nánar til tekið frá hinum vinsæla og
virta framleiðanda, Percy Nobleman.
Eigandi TPG, Ívar Smárason, kynntist
merkinu er hann var í námi erlendis.
„Ég var í námi í Danmörku þegar ég
kynntist þessum snyrtivörum, sem
raunar eru frá Bretlandi. Ég var stað-
ráðinn í að koma þeim á framfæri hér
heima og opnaði netverslunina eftir ég
kom heim úr námi,“ segir Ívar.
Percy Nobleman var stofnað árið
2013 en hefur vaxið gífurlega hratt.
Yfir 2.000 verslanir selja merkið í
Bretlandi og á meginlandi Evrópu og
fyrirtækið hefur nú einnig brotist inn á
Bandaríkjamarkað. Percy Nobleman
eru hágæða vörur sem oft er fjallað
um í virtum, sjálfstæðum fagmiðlum.
Þrátt fyrir þetta býður TPG vörurnar á
mjög sanngjörnu verði:
„Sem dæmi má nefna
skeggsnyrtisettið – Beard Grooming
Kit. Það inniheldur 30 ml skeggolíu,
30 ml skeggsápu, 20 ml skeggsmyrsl
og vasagreiðu. Þetta sett er snilldar-
gjöf og kostar aðeins 6.500 krónur. Til
samanburðar má geta þess að víða er
sambærileg skeggolía ein og sér seld
á um 6.000 kr. Að sama skapi bjóðum
við skeggolíuna einnig í 100 ml flöskum
á aðeins 4.990 kr.“
Percy Nobleman vörurnar eru ekki
bara fyrir þá sem safna skeggi held-
ur fyrir alla karlmenn sem vilja vera
snyrtilegir og vel lyktandi. Hágæða
rakspíri með sama ilmi og skeggolían
er í boði, sem og rakakrem sem nærir
húðina eftir rakstur. Einnig sjampó og
hármótunarvörur.
n Beard Conditioning Oil 100 ml
n Beard Wash 100 ml
Pearcy Nobleman skeggsápan er
unnin úr 95% lífrænum efnum og 100%
náttúrulegum efnum. Sápan hreinsar
skeggið og styrkir á sama tíma og hún
hjálpar því að halda sínum náttúrulegu
olíum.
Einfalt, þægileg og ódýrt
Lágt verð á hágæðavöru geta þeir
helst boðið sem hafa lágan rekstrar-
kostnað, eins og gildir um netverslanir.
Hjá TPG eru þessir möguleikar nýttir
til hins ýtrasta. En netverslunin hefur
fleiri kosti en sanngjarnt verð. Það er
þægilegt að gera jólagjafainnkaup á
netinu og spara sér biðraðir í verslun-
um. TPG sendir vörur hvert á land sem
er og ekkert sendingargjald er fyrir
pantanir 6.000 kr. og hærri. Fyrir lægri
en 6.000 kr. eru greiddar 790 kr. fyrir
sendinguna.
Percy Nobleman Signature Fra-
grance 50 ml. (herrailmvatn)
Það er gaman að skoða úrvalið á
vefsíðunni TPG.is og um að gera að líta
inn í netverslunina og finna fullkomna
jólagjöf fyrir herramanninn.
Face & Stubble Kit
Þetta sett er allt sem þú þarft til að
hreinsa skeggrótina og andlitið ásamt
því að gefa því góðan raka, sem heldur
húðinni ferskri yfir daginn.
Vaskið og rakakremið eru ilmbætt
með piparmintu og gúrku. n
TPG:
Hágæða snyrtivörur fyrir
herramenn frá Percy Nobleman
Rakakremsett: Skeggrótar- og andlitsvask og rakakrem sett. Í þessu setti eru 75ml af
Skeggrótar- & Andlitsvaski, 75ml af Skeggrótar- & Andlitsrakakremi og 100% bómullar
andlitshandklæði, merkt Percy Nobleman.
Beard Conditioning Oil 100 ml.: Skeggolía úr 99% náttúrulegum efnum sem gefa
skegginu silkimjúka áferð án þess að skilja eftir fituleifar. Hjálpar við skeggkláða og gefur
skegginu góðan ilm.
Í fyrstu kemur sterk og frísk sítrus lykt. Þegar efsta lagið sest, kemur grunnurinn og mið
lagið inn í með sínum “þyngri” musk og vanillu ilmum sem gefa ilmvatninu góða blöndu
af gömlu og nýju.