Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 58
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ
SKÍÐAÐU JÓLASTRESSIÐ Í KAF:
Hlíðarfjall Akureyri
HANDVERKSKÚNST Á NÝJUM STAÐ:
Hraunbær 102a
Þær eru ófáar jólagjafahugmynd-irnar sem maður fær þegar maður lítur inn í ævintýraheim
Handverkskúnstar. Þar eru ógrynnin öll
af girnilegu garni, fallegum prjónaupp-
skriftabókum og mörgu fleiru. „Vin-
sælasta varan okkar er líklega Drops-
-garnið. Það kemur í ýmsum litum og
áferðum og er á einstaklega góðu verði.
Einnig erum við með fallegt, handlitað
íslenskt garn frá Dottir Dyeworks og Frá
Héraði. Við bendum líka á gjafabréfin
okkar sem eru fullkomnar jólagjafir fyrir
handóða heklara og prjónara,“ segir Elín
„Handóð“ Kristín.
Ný staðsetning: Hraunbær
Handverkskúnst flutti verslun sína
nýverið um eina hæð í verskunarkjarna
í Hraunbæ og er nú staðsett að Hraun-
bæ 102a. „Þetta er verslunarkjarni í
hjarta Árbæjar og þess má geta að 1.
desember verður Jólahátíð Árbæjar.
Hátíðin stendur frá 12.30 til 15.00 og
það verður alls konar húllumhæ, frá-
bærir afslættir og við í Handverkskúnst
ætlum að bjóða upp á afslátt af völdum
vörum,“ segir Elín.
Lágt vöruverð og frábær þjónusta
Handverkskúnst er þekkt fyrir gott vöru-
verð og frábæra þjónustu. „Það halda
margir að garnið sé ódýrara í stór-
mörkuðum og verða steinhissa þegar
þeir uppgötva að við erum oftar en ekki
ódýrari,“ segir Elín. Það er því ljóst að
það verður hægt að gera enn betri kaup
þann 1. desember.
Nánari upplýsingar má nálgast á
vefversluninni garn.is
Verslunin er staðsett að Hraunbæ
102a, 110 Reykjavík
Sími: 587-6662
Opnunartími verslunar: mánudaga–
föstudaga kl. 11–18, laugardaga kl. 11–14
n