Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 61

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 61
FÓLK - VIÐTAL 6123. nóvember 2018 Ágúst Borgþór Sverrisson agustb@dv.is Þ egar hinn vinsæli glæpa- sagnahöfundur Lilja Sig- urðardóttir er spurð út í eft- irminnilegustu jólagjöfina frá æskuárunum kemur á daginn að lítið var um jólagjafir á hennar minnisstæðustu jólum. Fjölskyldan varð fyrir nokkru áfalli en jólunum var bjargað meðal annars með skjaldböku og klassískri barnabók eftir Guðrúnu Helgadóttur. Við gef- um Lilju orðið og hún segir okkur þessa sérstæðu jólasögu: Eftirminnilegustu jól æsku minnar voru nú einmitt jólin þegar það voru eiginlega engar jólagjafir. Það voru jólin sem ég var tíu ára en þá bjuggum við í litlu þorpi á Kyrrahafsströnd Mexíkó og höfðum farið í ferðalag niður til Belís að útvega áritun í passana okkar. Þegar við komum heim tveimur dögum fyrir jól hafði aurskriða far- ið í gegnum húsið okkar svo að eftir stóðu burðarstoðirnar með þakinu á. Svo að við mokuðum alla Þor- láksmessu og fórum svo á pósthús- ið að sækja jólagjafirnar frá Íslandi en þá var búið að stela þeim öllum nema íslenskri barnabók. Stund- um kemur sér vel að tala tungu- mál sem enginn skilur. Mamma og pabbi fóru í einu búðina í þorpinu, Lúsíubúð, og keyptu sælgæti og ein- hverjar smágjafir og svo fór pabbi á stúfana að finna út úr jólamatnum. Honum leist ekki á kjötið sem var í boði í þorpinu, allt heimaslátr- að og fremur matareitrunarlegt og við krakkarnir góluðum á kjöt því við vorum orðnir leiðir á túnfiskin- um sem við höfðum aðallega lifað á þar sem hann var undirstaða að- alatvinnuvegar þorpsins. Svo að úr varð að honum var útveguð ný- veidd skjaldbaka og mamma eld- aði kjötið á sinn snilldarmáta svo að úr varð hinn besti jólamatur. Það er vert að taka það fram að þetta var fyrir tíma alfriðunar á sjóskjaldbökum og skjaldböku- kjöt var venjulegur matur í þorp- inu þar sem við bjuggum. Ég á skel- ina af skjaldbökunni ennþá og hún hangir uppi á vegg hjá mér. Eftir matinn fórum við niður á strönd og kveiktum varðeld, sungum jóla- lög og lásum upp úr barnabókinni. Þetta var bók eftir Guðrúnu Helga- dóttur sem Þráinn Bertelsson og Sólveig höfðu sent okkur. Þetta urðu hin jólalegustu jól eftir allt saman og urðu til þess að við gerð- um okkur öll grein fyrir að þótt að það sé gaman að ýmsum jólasið- um þá er enginn þeirra ómissandi nema samvera með fjölskyldunni og kannski ný bók. Svik: Pólitísk spennusaga Lilja hefur notið sívaxandi vin- sælda sem glæpasagnahöfund- ur undanfarin ár og hlotið margs konar viðurkenningar. Nýjasta sagan hennar ber heitið Svik, hröð og hörkuspennandi saga um völd og valdaleysi, ofbeldi og þöggun; um að bregðast trausti og svíkja gefin loforð. Um söguþráðinn segir í tilkynningu frá útgefanda: „Úrsúla er nýlega flutt til Íslands eftir áralöng störf á hættusvæðum heimsins. Rólegt hversdagslífið í Reykjavík hentar henni engan veg- inn, svo að hún grípur fegins hendi óvænt boð um að taka sæti í ríkis- stjórn landsins: þar getur hún aftur látið til sín taka! En stjórnmálin eru refskák og fjölmiðlar vaka yfir hverju fótmáli nýja ráðherrans. Við bætist að gamall útigangsmaður eltir hana á röndum og virðist vilja vara hana við yfirvofandi hættu. Getur verið að hann búi yfir vitneskju sem ógn- ar einhverjum í innsta hring?“ n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.