Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 62

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 62
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ ÁMAN: „Allir geta búið til bjór og vín ef þeir vilja og hafa áhuga“ Nafnið Áman á sér yfir 40 ára sögu, en fyrirtækið hefur verið staðsett á Tangarhöfða 2, 110 Reykjavík, síðan í byrjun árs 2016 en var áður til margra ára í húsi sem flestir þekkja, gamla Austurbæjar- apótekinu, Háteigsvegi 1 við Rauð- arárstíg, sem lengi var talað um sem „Rauða húsið,“ segir Magnús Axels- son, framkvæmda- og rekstrarstjóri Ámunnar ehf. Verslun og aðgengileg netverslun Áman flytur inn og selur vörur til bjór- og víngerðar og er með smásölu, netverslun og endursöluaðila víða um landið. Magnús segir það veru- lega til hagsbóta fyrir landsbyggð- ina, þar sem kaupandinn þarf þá ekki að greiða sendingargjald undir vöruna og varan er á svipuðu verði hjá flestum endursöluaðilum eins og í versluninni í Reykjavík. Í netverslun Ámunnar, aman.is, má finna allar vörur sem fyrirtækið flytur inn og er netverslunin mjög vel flokkuð og aðgengileg. „Við leggjum okkur fram við að þjónusta einstaklinga sem hafa áhuga á að gera eigin bjór og vín,“ segir Magnús. Bæði er hægt að kaupa tilbúin sett, sem er búið að forvinna, og svo öll efni og áhöld sem þarf til að gera bjór frá grunni. Bjór- og víngerð er áhugamál hjá stórum hópi fólks Magnús segir að síðustu ár hafi verið ákveðin vakning hjá fólki um að gera bjórinn frá grunni. „Bjórbruggun hefur verið vaxandi áhugamál hjá fólki sem er ekki að hugsa um tímann, einfaldleikann eða kostnað, en stofnkostnaður er einhver þó að hann sé ekki veruleg- ur, “ segir Magnús. Um er að ræða áhugamál hjá stórum hópi fólks, sem kemur vikulega að kaupa hráefni til bjórgerðar. Fyrir þá sem eru að gera bjór frá grunni þá eru til leiðbeinandi upplýsingar, en margir brugga bjór eftir eigin hugmynd. „Þegar þú ert farinn að gera bjór frá grunni þá verður þetta áhugamál og menn verða fljótlega sérfræðingar, sumir verða bara bjórmeistarar heima hjá sér,“ segir Magnús. „Allir geta búið til bjór og vín ef þeir vilja og hafa áhuga.“ Sá hópur sem gerir sín eigin vín uppgötvar að þau eru holl, bragðgóð og oft mildari og ferskari en verk- smiðjuframleidd vín. Þá er víngerð heillandi og skemmtilegt tóm- stundagaman. Framboð af nýjum tegundum og betri efnum eykst stöðugt og með betri hjálparefnum og tækjum er heimavín fyllilega sam- bærilegt borðvínum frá hinum frægu vínræktarlöndum. Segja má að óðum minnki bilið á milli besta heimavínsins og hinna svokölluðu eðaltegunda. Hvort sem þú ert að gera bjór eða vín þá snýst þetta um þolinmæði „Bjórbruggun frá grunni er ekki flókið mál en það þarf ákveðið bjórger, malt/korn, humla, að meskja við ákveðið hitastig og síðan sjóða virtan sem fæst úr meskingunni, kæla, gerja og svo framvegis. Þetta er ákveðið ferli, sem er ekki langt, en tíminn frá því að bjórgerð hefst og hann settur á flöskur er um tvær vikur,“ segir Magnús. Kosturinn við heimavíngerð er sá að hún er einföld og þægileg auk þess að vera ódýr kostur. Lítið pláss þarf á heimilinu fyrir víngerðina og henni fylgir nánast engin lykt. Vínið er mjög gott, þrúgurnar og víngerðarlík- in eru fyrsta flokks í dag, mjög vönduð vara. Aldurshópur viðskiptavina er breið- ur Fólk skiptist í tvo hópa, þá sem eru að leita að ódýrum lausnum fyrir til dæmis afmæli eða giftingu og svo þá sem hafa vín og bjórbruggun sem áhugamál og vilja gera góð vín og góðan bjór og leggja tíma og peninga í bruggunina. Aldurshópur viðskipta- vina Ámunnar er einnig breiður. Stofnkostnaður til bjór- og víngerð- ar er ekki verulegur Aðspurður um hver stofnkostnað- urinn sé segir Magnús að hægt sé að kaupa pakka með bjórgerðarefni inniföldu á undir níu þúsund krón- um og áhaldapakki til víngerðar, þar sem að efni er ekki innifalið, er um 14.000 krónur. Hægt sé að gera bjór frá grunni á ódýran hátt, en ef eigi að gera það af alvöru getur stofn- kostnaður hlaupið á nokkrum tugum þúsunda. Allt sem þarf til bjór- og víngerðar- innar er til sölu hjá Ámunni, efni til bjór- og víngerðarinnar sjálfrar, flöskur, tappar, og allt þar á milli. Allar nánari upplýsingar má fá hjá Ámunni, Tangarhöfða 2, í síma 533- 1020 eða á netfanginu aman@aman. is. Verslunin er opin virka daga frá kl. 10–18. n
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.