Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 66
Jólablað 23. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Fjölbreytni og gæði
á fjórum hjólum
Hjá versluninni Módjó í Mjóddinni er nánast allt til
sem flokkast sem taska
eða veski. Um er að
ræða vörur af ýmsum
toga, frá skólatöskum,
ferðatöskum, dömu-
veskjum til seðlaveskja
og fleira.
„Okkar megineinkenni er fjöl-
breytnin, bæði í töskugerðum en líka
í verði. Hér er hægt að fá mjög ódýr-
ar vörur en líka vandaðar leðurvörur
í dýrari kantinum. Langmesta salan
er hins vegar í leðurvörum á meðal-
verði,“ segir Grétar Karlsson, eigandi
verslunarinnar.
Grétar tekur fram að allar ferða-
töskur sem eru til sölu í Módjó séu á
fjórum hjólum. Mikil áhersla er lögð
á léttar töskur þannig að þunginn
liggi að mestu í farangrinum sjálfum.
Ferðatöskurnar eru í alls konar litum;
rauðum, bláum, svörtum, appel-
sínugulum og fleiri litum. Enn fremur
selur Módjó strekkibönd, vigtar og
merkispjöld, en þetta eru allt hlutir
sem koma sér vel fyrir ferðalanginn.
Það er upplifun að koma í versl-
unina í Mjóddinni og sjá allt úrvalið.
Einnig má benda á heimasíðuna
modjo.is og Módjó á Facebook.
Verslunin er opin alla virka daga
frá kl. 10 til 18 og laugardaga frá 11
til 16.n