Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 73

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 73
Jólablað 23. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Fáir gera sér grein fyrir því að íslenskur húsgagnaiðnaður var eitt sinn blómleg atvinnugrein. Húsgagnasmíði og bólstrun voru fjölmennar iðngreinar og fáum datt í hug að flytja inn húsgögn eða heilu inn- réttingarnar. Fyrstu íslensku húsgagnaarki- tektarnir, Helgi Hallgrímsson og Skarphéðinn Jóhannsson, luku námi í listiðnaðarskólanum í Kaupmanna- höfn árið 1938 og voru þeir lengi vel einungis tveir starfandi á Íslandi, enda ómögulegt fyrir aðra Íslendinga að stunda nám í Evrópu á tímum heims- styrjaldarinnar síðari, hvað þá í Dan- mörku sem þá var hersetin af Þjóðverj- um. Fljótlega eftir stríð bættust fleiri í hópinn og voru þeir nánast allir mennt- aðir í listiðnaðarskólanum í Kaup- mannahöfn (kunsthaandværkerskolen), þ.á.m. Sveinn Kjarval (1919–1981), en þar voru kröfurnar þær að nemendur þurftu fyrst að hafa lokið sveinsprófi í húsgagnasmíði. Halldór Hjálmarsson (1927–2010), sem m.a. hannaði Skötustólinn, lauk námi í sama skóla árið 1956. Þegar þessir hönnuðir sneru heim báru þeir með sér bestu mögulegu þekkingu og færni sem völ var á á þeim tíma og við tók blómaskeið nútímalegr- ar íslenskrar húsgagnahönnunar og framleiðslu undir sterkum áhrifum frá því besta í Danmörku og víðar. Nýjar sérmerktar útgáfur framleidd- ar Skötustóllinn á 60 ára afmæli á næsta ári og af því tilefni verða framleidd- ar sérmerktar útgáfur í takmörkuðu upplagi, sem einungis verða seldar á afmælisárinu, þótt hægt sé að panta stólana fyrirfram en borga við af- hendingu á næsta ári, og því ágætis jólagjöf fyrir þá sem vilja fresta útgjöld- um yfir jólin. Saga Skötustólsins á sér rætur í námsárum Halldórs í Kaupmannahöfn. Skólinn og kennarar hans lögðu mikla áherslu á að vinna með það nýjasta og besta, út frá þeirri hugmynda- fræði að alltaf væri hægt að gera gott betra og ekkert því til fyrirstöðu að vinna með þekkt húsgögn og þróa þau áfram. Þau voru sjálf afleiðing af þróun annarra húsgagna og svo koll af kolli. Poul Kjærholm, aðalkennari og góðvinur Halldórs, hvatti beinlínis til þess að sín húsgögn yrðu þróuð áfram og einfölduð, og má t.d. greinilega sjá líkindi með fyrsta stól Halldórs, stólnum HH-1 og stólnum PK-25, sem einnig var fyrsti stóll Pouls og útskriftarverkefni úr sama skóla. Sá stóll þótti ansi flókinn í smíði og kostar enda yfir 1,5 milljónir sé hann keyptur í dag. HH-1 byggir á svip- aðri útfærslu, en er margfalt ódýrari í framleiðslu. Nokkur eintök voru nýlega framleidd til prufu. Klassískur stóll gengur í endurnýjun lífdaga Framleiðslan á Skötustólnum hófst að nýju árið 2007. Á bak við það stóð sonur Halldórs, arkitektinn Örn Þór Halldórsson, í samvinnu við Sólóhús- gögn, sem lengi vel voru einu söluað- ilar stólsins. Örn hefur nú sjálfur tekið yfir framleiðslu og sölu, en þó í góðu samstarfi við Sólóhúsgögn, en að sögn Arnar hefur það fyrirtæki stutt dyggilega á við bak margra íslenskra hönnuða og er nánast eitt íslenskra fyrirtækja sem það gerir. „Fyrir marga er þarna við ofurefli að etja í formi innflutnings og nánast einokunar eins fyrirtækis á íslenskum hönnunarmarkaði, sem einungis greiðir hönnuðum u.þ.b. 0,5–1,5% af sölu- verði, og minnir fyrirkomulagið einna helst á dönsku einokunarverslunina á sínum tíma. Íslenskir hönnuðir ættu því að taka höndum saman og reyna í sameiningu að koma sinni framleiðslu á framfæri, en það er auðveldara en margan grunar,“ segir Örn. Skötustóllinn hefur notið vaxandi vinsælda á ný, enda tímalaus hönnun. Notaðir stólar hafa gengið vel í endur- sölu og síðustu viðhafnareintök sem voru framleidd í tilefni 50 ára afmæl- isstólsins ganga nú kaupum og sölum, nánast á sama verði og nýir stólar, ef þau yfirleitt fást til sölu. Stóllinn nýtur þess einnig að vera mun ódýrari en sambærilegir stólar og er það regla að hann skuli alltaf vera a.m.k. 25% ódýrari en sambærilegar, klassískar tegundir. Viðhafnarstóllinn verður úr olíu- eða vaxborinni eða lakkaðri eik, allt gert í höndunum eins og í upphafi og verða nokkrir litir í boði. Skötustóllinn er annars til í mörgum útgáfum og nýjustu útgáfurnar er m.a. hægt að skoða og kaupa í nýrri verslun Geysis-heima að Skólavörðustíg 12 og Álfagulli við Strandgötu í Hafnarfirði. Allar útgáfurnar af Skötu og Þórs- hamri, bæði nýjar og gamlar, eiga þó enn sitt sameiginlega útlit, sem er í senn stílhreint og listrænt. Segir Örn að þetta séu ljóðrænir stólar: „Þetta ljóðræna kemur ekki síst fram í því að festingarnar undir Skötustólnum minna á „egg“, en skatan verpir einmitt eggjum.“ Fyrir áhugasama þá er best að hafa samband við Örn beint með því að senda skilaboð í gegnum heimasíð- una http://skata.is/, á netfangið info@ skata.is. eða senda skilaboð á Face- book-síðunni Skata. „Í kjölfarið kemur fólk í heimsókn á verkstæðið mitt hérna í Vesturbænum og kaupir stólana beint frá býli. Epal- -kommar eru líka velkomnir, þótt það sé skýrt tekið fram að innkaupastjórar ríkisstofnana fái engan sérstakan af- slátt,“ segir Örn og hlær. n ÍSLENSK KLASSÍK: Skata-stóllinn 60 ára á næsta ári Myndir: Silvia Gentili
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.