Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Page 88
88 FERÐALÖG 23. nóvember 2018
EIGUM MARGA
LITI Á LAGER
Nánari upplýsingar á
mt.is og í s: 580 4500
HANNAÐ FYRIR
ÍSLENSKT VEÐURFAR
ÁLKLÆÐNINGAR &
UNDIRKERFI
Það er fátt skemmtilegra en að skella sér í stutta
ferð til útlanda á aðventunni og fá jólastemmingu
annarra landa beint í æð. Best er að eiga bara
eftir örfáar jólagjafir og rölta um að kvöldi til með
áfengt jólaglögg í belgnum og sykraða möndlu-
mylsnu á kinnunum. DV tók saman hvar bestu
jólamarkaði Evrópu er að finna.
Bestu jólamarkaðir Evrópu
Jólamarkaður Dresden-borgar, Striezelmarkt, er elsti jólamarkaður Þýskalands og líklega einn sá elsti í heimi. Hans er fyrst getið árið
1434 og fagnar því í ár 584 ára afmæli sínu. Jólamarkaðurinn tók upphaflega aðeins einn dag og var aðaltilgangurinn sá að skaffa
Dresden-búum kjötmeti fyrir hátíðarnar. Í ár hefst markaðurinn þann 29. nóvember og stendur hann til aðfangadags. Markaðurinn er
áberandi í miðborg Dresden en alls eru um 250 sölubásar opnir með alls konar jólavöru og góðgæti. Þá er ekki útilokað að rekast á bása
sem selja Glühwein.
Það væri dauðasynd að hafa ekki fyrrverandi höfuðborg landsins með í upptalningunni
en það væri líka heimskulegt því fátt er jólalegra en að rölta um Kaupmannahöfn yfir
aðventuna. Í 25 skipti verður starfræktur jólamarkaður í Tívolíinu heimsfræga. Þar verða
sextíu sölubásar með alls konar vörum auk þess sem skreytingarnar í skemmtigarðinum
munu engan svíkja. Jólamarkaðurinn var opnaður með pomp og prakt þann 17. nóvem-
ber síðastliðinn og verður opinn til 31. desember.
Það þarf lítið til að gera höfuðborg Austurríkis jólalega en borgarbúar taka verkefnið alla
leið. Eins konar jólasturlun brestur á í borginni og alls eru starfræktir 25 jólamarkaðir í
miðborginni. Að sjálfsögðu er svo komið upp glæsilegu skautasvelli til þess að kóróna
stemminguna. Af öðrum ólöstuðum er besti jólamarkaður borgarinnar líklega Altwiener
Christkindlmarkt sem er starfræktur í hjarta borgarinnar, á svæði sem nefnist Freyung.
Um er að ræða bændamarkað sem tekur á sig jólalegan blæ frá og með 17. nóvember til
23. desember ár hvert. Þar er boðið upp á vín, jólavín.
Í hjarta Prag fer fram hinn árlegi jólamarkaður á Staromestske namesti–torgi, og er hann orðinn heimsfrægur. Þar má upplifa stórkost-
lega jólastemmingu og mikið úrval af fallegum jólavörum sem eru til sölu á básum sem dreifast um allt torgið. Ilminn af jólaglöggi og
medovina, sem er eins konar hunangsvín, leggur yfir markaðinn. Markaðurinn verður opnaður þann 1. desember og stendur til 6. janúar ár
hvert.
Einn elsti og hefðbundnasti
jólamarkaður í Evrópu er í hjarta
Búdapest, nánar tiltekið á
Vorosmarty-torgi. Þar má búast
við margs konar jólavarningi, oftar
en ekki haganlegum smíðuðum úr
tré. Algjör skylda er að gæða sér á
„strompkökum“ (kurtoskalacs) en
þær eru bakaðar þannig að deigi
er vafið í kringum prik og síðan er
kanil og sykri stráð yfir. Ungverjarn-
ir kunna greinilega að meta jólin
því markaðurinn stendur yfir frá 9.
nóvember til 1. janúar ár hvert.
Portúgalar eru sjúkir í jólakökur sem nefnast Bolo Rei, það eru dúnmjúkar kökur fullar
af ávöxtum. Það er nóg af slíkum kökum í boði á hinum árlega jólamarkaði í Lissabon,
Natal E Na Fil, sem er haldinn í Parque das Nacoes. Markaðurinn er yfirleitt haldinn
innandyra (og því ekki eins jólalegur og aðrir markaðir) en þar mikið úrval af hvers konar
handverki og jólavörum í boði. Portúgalarnir taka þetta með trompi því markaðurinn er
aðeins opinn í nokkra daga í desember á hverju ári, þetta árið dagana 5.–9. desember.
Aðalástæðan er samt sú að Lissabon er frábær borg.
Dresden
Prag
Kaupmannahöfn
Vín Búdapest
Lissabon
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is