Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Side 98

Dagblaðið Vísir - DV - 23.11.2018, Side 98
98 23. nóvember 2018JÓL Síðumúla 30 - Reykjavík | Sími 533 3500 Hofsbót 4 - Akureyri | Sími 462 3504 30% AFSLÁTTUR* Tilboð gilda fimmtudag, föstudag og laugardag Rúm - Sængur - Koddar Sófar - Borð - Vefnaðarvara og margt fleira *A fs lá ttu r g ild ir ek ki u m h ar ða r g ar dí nu la us ni r, gl ös o g sm áv ör u í v ef na ða rv ör ud ei ld HÁTÍÐARHARMSÖGUR n Steinn fann enga til að reyna við n Fanney var meðvitundarlaus í Ósló Jólin snúast um gleði, notalegar stundir með okkar nánustu og taumlaust át á lúxusfæði og gotteríi. Flestir eru þó sammála um að hátíðinni fylgi einnig streita og og stress og það jafnvel þrátt fyrir að allt gangia samkvæmt áætlun. Ef eitthvað fer úrskeiðis á þessum tíma, eins og ef dekkið springur á leið í jólaboð eða það gleymist að fara með hátíðarfötin í hreinsun, þá getur streitan margfaldast. DV ákvað að rifja upp nokkrar ólíkar en dramatískar harmsögur þekktra einstaklinga um jólahátíðina. Tónlistarmaðurinn Örn Elías Guðmundsson, betur þekktur sem Mugison, komst ekki í tæka tíð í jólamatinn á aðfangadag árið 2007. Hann hafði verið að spila í höfuðborginni og ætlaði að fara heim vestur á firði og hitta konu sína og eldri soninn, en sá yngri var í borginni með föður sínum. Feðgarnir áttu pantað flug vestur til Súðavíkur þegar mikið óveður skall á. Söngvarinn sagði þessa hressilegu sögu í Séð og Heyrt árið 2011. Útlit var fyrir að ekkert yrði af fluginu. Vélin fór þó í loftið en veðrið var svo slæmt vestur á fjörðum að á endanum þurfti að snúa vélinni við. „Þá fengum við far og ætluðum að keyra vest- ur, í klikkuðu veðri,“ segir hann. Feðgarnir neyddust síðan til að stoppa á bensínstöð og kaupa sér óhefðbundna jólamáltíð. „Þegar klukkan var orðin sex, þá var ég á Hólmavík, borðandi roast- beef-samlokur og drekkandi kókómjólk með tveggja ára syni mínum. Við bjuggum bara til eitthvert sýruævintýri úr þessu.“ Árið 2014 lenti samfélags- miðlastjarnan Maggi Mix í óheppilegu atviki á versta tíma fyrir jólahátíðina, nánar til tek- ið á Þorláksmessu. Sjálfur hef- ur hann ekki sparað stóru orðin um alvarleika málsins, en þetta átti sér stað þegar hann tók upp innslag fyrir matreiðsluþátt sinn, Gott og gómsætt. Maggi ákvað að deila með áhorfendum uppskrift að pastarétti með tómatsósu, eða „kjeddaranum“ eins og hann kallar sjálfur réttinn. Það fór ekki betur en svo að þegar Maggi ætl- aði að sýna áhorfendum réttinn beint úr örbylgjuofninum rann pastað af diskinum og beint á fartölvuna. Fyrstu viðbrögð Magga fólu í sér orðin „Shit. Fokk“. Fast- lega má reikna með því að far- tölvan hafi lifað gjörninginn af í ljósi þess að hann hlóð upp myndbandi með atvikinu undir heitinu „Óhapp aldarinnar“. Fyrrverandi íþróttamaðurinn Logi Geirsson upp- lifði einu sinni sína útgáfu af jólamyndinni Aleinn heima (e. Home Alone), ef þannig má að orði kom- ast. Í viðtali við Jól.is árið 2009 sagði hann frá afar eftirminnilegri jólaminningu, en á þeim tíma var Logi á sínu fyrsta ári sem atvinnumaður í handbolta. Í ljósi þess að hann var mikið að spila yfir hátíðirnar endaði hann með því að halda einsamall upp á aðfangadag. Það væri ekki frásög- ur færandi nema vegna þess að Logi átti ekkert til af mat og var hægara sagt en gert að halda út þessa rauðu daga þar sem allt var lokað, honum til mikill- ar mæðu. „Ég hélt að þetta væri bara eins og heima á Íslandi að ég gæti bara skroppið út á bensínstöð á miðnætti á aðfangadag. En það var heldur betur ekki raunin. Það var allt lokað á Þorláksmessu, á aðfangadegi og jóladegi,“ segir hann. „Ég kunni ekki að sjóða mér egg á þessum tíma þannig að ég átti aldrei til neitt í ísskápnum. Það sem hélt mér á lífi þessa tvo eða þrjá daga voru tvær frosnar örbylgjupítsur.“ Logi viðurkennir að hann hafi logið að móður sinni á þessum tíma, en þegar hún hringdi til að óska honum gleðilegrar há- tíðar svaraði hann símanum og þóttist vera í mikilli jólaveislu hjá þjálfara sín- um. „Mamma hringir í mig klukkan sex á aðfangadag. Ég hleyp þá inn í stofu og set músík í græjurnar og spyr hún mig hvernig ég hefði það,“ segir hann. „Ég vildi ekki skemma fyr- ir þeim jólastemninguna heima, svo ég fór bara að kroppa í pít- suna. Ég held ég kunni líka að meta jólin enn meira eftir þetta.“ Jólasaga Fanneyjar Guðmunds- dóttur, landsliðskonu í skíða- íþróttum, þann 2011 er full af harmi og átakanleg. Þá slasaðist hún alvarlega þegar hún var við æfingar í Geilo í Noregi. Æfingin var á aðfangadegi og fór þannig að hún var á mikilli ferð á skíðun- um og lenti á tré með þeim af- leiðingum að hún hlaut fjölda beinbrota. Fanney missti meðvitund og andaði ekki þegar að henni var komið. Sem betur fer báru lífg- unartilraunir árangur en þá var hún flutt á Ullevål-sjúkrahúsið í Ósló. Fanney er á góðum stað í dag og varð slysið ekki til þess að hún ætti skíðaiðkuninni. Seinna meir fór hún að hreyfa sig og spreyta sig í fótbolta með Þrótti í Pepsi-deild kvenna. Einnig kláraði hún nám í hagfræði við Háskóla Íslands. Örn Árnason leikari hefur margsinnis opinberað dálæti sitt á áramótunum og má segja að hann sé þekktasti „sprengjumað- ur“ landsins. Í viðtali við Morgunblaðið árið 2005 sagði Örn áramótasögu sem þótti frekar sorgleg, en þó ekki nógu sorgleg til að draga úr áhuga hans á flugeldum til frambúðar. Leikar- inn var á þeim tíma fjórtán ára gamall og hefst sagan þegar hann útbjó þriggja þrepa rakettu. Að hans sögn var umrædd raketta afar tilkomumikil en gekk illa í flugtakinu, sem leiddi til drungalegs hvells. „Mér brá og hljóp undan henni,“ segir Örn en hann rann í hálku og braut á sér ristina. „Svo lá ég bara í gifsi yfir áramótin.“ Laug að móður sinni Í gifsi yfir áramótin Óhapp aldarinnar Missti meðvitund í Ósló Sýruævintýri og roastbeef-samlokur
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.