Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 15
TMM 2015 · 2 15
Kristín Ómarsdóttir
Ég er sjaldan sammála
sjálfri mér lengi í einu
Viðtal við Auði Jónsdóttur
Auður Jónsdóttir rithöfundur býr með fjölskyldu sinni í Berlínarborg, rétt hjá fyrr-
verandi heimili Davids Bowie sem bjó í borginni seint á áttunda áratugnum. Á lóðinni
á móti byggingunni stóð áður hús sem í bjó vændiskona og bjargaði mannslífum á
hryllingstímum. Hverfið er illa upplýst, þokublandað myrkrið gerir gönguna með son
hennar í kerru mystíska. Það dimmir snemma á þessum árstíma. Ég hugsa um atriði úr
Fassbinder kvikmynd, um atriði úr mannkynssögunni. Ætli maður sé óhultur á meðal
fólks sem margt kann að njósna? Grunsemdafull elti ég Auði inn á veitingastað með
gulum veggjum.
Auður hóf ritferil sinn tuttugu og fimm ára gömul en þá kom út skáldsagan Stjórn-
laus lukka. Nú vinnur hún að sjöundu skáldsögunni og hefur einnig gefið út fjórar
barnabækur. Auður hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrir Fólkið í kjallaranum
(2004), Fjöruverðlaunin fyrir Ósjálfrátt (2012) og báðar skáldsögurnar voru tilnefndar
til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs. Ósjálfrátt kemur út í f leiri löndum næstu
misserin. Við lestur bókarinnar – sem ég las á hvítsilfruðum vetrardögum á Seyðisfirði
– finnur Öskubuskan sem lifir í hjarta hvers manns skóinn sinn.
***
Auður, þakka þér fyrir að koma í viðtal við Tímarit Máls og menningar.
Gaman að hittast hér á veitingahúsi í gamla vestrinu í Berlín. Hvað heitir
mamma þín, hvað heitir pabbi þinn, áttu systkini og hvað heita þau?
Mamma mín heitir Sigríður Halldórsdóttir, pabbi minn heitir Jón Gunnar
Ottóson. Næstelsta systir mín heitir Rannveig (Gagga) Jónsdóttir, bróðir
minn heitir Ari Klængur Jónsson og yngsta systir mín heitir Halldóra Lena
Christians. Og takk fyrir að taka viðtal við mig.
Hvaðan af landinu eru foreldrar þínir?
Mamma pabba míns var frá Akureyri og pabbi hans var frá Dalvík.
Mamma er úr Mosfellsdal, pabbi hennar var þaðan og móðuramma mín
var Reykjavíkurstúlka með smá Eyrarbakkakryddi eða -dassi, hún var
mikil Vesturbæjarstúlka, alin upp á Bárugötu. Ég held að pabbi sé kominn
af hákarlaveiðimönnum á Dalvík, ég ímynda mér menn sem líkjast gamla
manninum í Gamli maðurinn og hafið eftir Ernest Hemingway.