Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Síða 22
K r i s t í n Ó m a r s d ó t t i r
22 TMM 2015 · 2
rétt, ég væri að fara að fermast daginn eftir í Mosfellskirkju hjá séra Birgi.
Mamma bauð manninum í te og hann spurði mig hvort þetta væri rétt, ég
játaði, uppfull af skömm yfir andlegu framhjáhaldinu, og sagði að ég hefði
ekki viljað missa af fræðslunni, kóki og prins pólói. Löngu síðar gúglaði ég
prestinn og frétti að hann væri strangtrúaður írskur kaþólikki og veit ekki
hvað hefði orðið um mig hefði ég farið þangað.
Kannski værirðu nunna.
Já, eða beisk húsmóðir á Írlandi. Ég trúi því að ég viti ekki allt, Guðrún
Eva [Mínervudóttir] orðaði svar við álíka spurningu svo fjarska vel í viðtali
um daginn, mig minnir í DV, ætli ég reyni ekki að svara í svipuðum anda
en þó eftir mínu nefi; ég trúi á þennan íslenska máta: á tarotspil, skynjanir,
furðurnar í lífinu, hinar ýmsu hugmyndir um drauga, hina og þessa guði,
flesta þó af þessum heimi, en engan almáttugan guð; ég trúi á náttúruna
og vísindin en líka eitthvað sem er erfitt að setja í orð, það er frekar eins og
grunur en vissa. Mér finnst ég ekkert vita og mér finnst það bara gott. Ég
hef upplifað hluti sem ég get ekki útskýrt og reyni ekki að útskýra þá nema
fyrir fólki sem er forvitið um þá líka. Afturámóti er ég hrædd við allt sem
heitir bókstafstrú og ég er hrædd þegar fólk vill að allir aðrir lifi eftir þess
hugmyndafræði, allt sem er dómhart og útilokandi trúi ég ekki á, ég trúi á
það sem er opið og er fullt af möguleikum og ég trúi á að allt sé til sem fyrir-
finnist á annað borð í huga manns. Mér finnst líka gaman að velta lífinu fyrir
mér sem einhvers konar sögu, alls konar sögum, með atburðarás og leita uppi
og finna sögurnar í lífinu, það gefur lífinu inntak og merkingu – kannski er
ég smá örlagatrúar – mér finnst fínt að nota tarotspil til að velta upp hlutum,
kveikja einhverja hugmynd sem mér annars hefði ekki dottið í hug, þetta er
ágætt hugleiðslutæki.
***
Hvað metur þú helst í fari manneskju?
Mér finnst skemmtilegt þegar fólk er umburðarlynt á mörgum sviðum
og hefur gaman af breyskleikum annarra án þess að líta niður á þá. Fólk
sem veit að það er gott að fyrirgefa þar sem aðrir þurfa líka að fyrirgefa því.
Ef fólk er með lífshúmor, mér finnst erfitt að umgangast fólk sem er sneitt
húmor. Mér finnst líka svo gaman þegar fólk þorir að skipta um skoðun og
rökræða við sjálft sig, fram og til baka, eftir hinum og þessum öngstrætum.
Hvað metur þú minnst í fari manneskju?
Nísku, hefnigirni, skort á samlíðan með öðru fólki.
Hvað finnst þér það hryllilegasta sem gerist?
Loftslagsbreytingar.