Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 34

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 34
G u ð n i Tó m a s s o n 34 TMM 2015 · 2 sem þiggja fé til verka sinna af opinberum framlögum átti eftir að festa sig í sessi hvað varðar listamannalaun, en hefur aldrei náð fótfestu hvað varðar heiðurslaun listamanna. Tilkoma menntamálaráðs breytti í fyrstu litlu því að Alþingi hélt áfram að útdeila fé til listamanna af fjárlögum, rétt eins og verið hafði. Þingmenn voru því ekki lausir við að velta fyrir sér fagurfræði og gæðum listaverka eða ræða um einstaka listamenn og verk þeirra. Vera má að þeir hafi heldur ekki viljað losna undan því hlutverki þegar á hólminn var komið. Í fyrstu urðu því úthlutanir menntamálaráðs á fé til skálda og listamanna mun veigaminni þáttur í starfi ráðsins en ráðgert hafði verið.15 Tímamót urðu hins vegar við afgreiðslu fjárlaga fyrir árið 1940 þegar styrkir til listamanna voru hreinsaðir upp í lagatextanum og færðir alfarið undir menntamálaráð. Næstu þrjú árin, 1940–1943, var öll úthlutun launa til listamanna í höndum menntamálaráðs en tímabilið var jafnframt eitt það stormasamasta í menningarlífi þjóðarinnar og þá einkum í samskiptum listamanna og ríkisvaldsins, sem líkamnaðist í persónu Jónasar frá Hriflu. Frægt varð að styrkur til Halldórs Laxness var lækkaður verulega, úr 5000 kr. í 1800 kr. og skáldið brást við með því að stofna sjóð til verndar ritfrelsi í landinu.16 Hér skiptir einnig máli að styrkir til listamanna voru á þessum tíma færðir á tveimur stöðum inn á fjárlögum, á 15. og 18. greinum fjárlaga, en þegar listamenn héldu sitt fyrsta listamannaþing árið 1942, til að bregðast við menningarstjórnun Jónasar frá Hriflu, lýstu fulltrúar á þinginu meðal annars þeirri skoðun sinni að þeim listamönnum og rithöfundum sem áður hefðu notið launa af 18. grein fjárlaga hafi verið gefið „fyrirheit löggjafans um að þeir nytu þeirra launa ævilangt.“ Tiltekt Jónasar á fjárlögum fyrir árið 1940 þýddi að mati listamanna að þetta fyrirheit hefði verið rofið.17 Eftir að Jónas missti yfirburði sína í menntamálaráði og öldurnar lægði var það vilji listamanna að Alþingi veitti ákveðnum listamönnum beina styrki af fjárlögum og þegar málið var rætt tók Kristinn E. Andrésson undir þessi sjónarmið á Alþingi og sagði að það væri „mun meiri vegsauki fyrir listamenn, að Alþingi sjálft veiti þeim styrk, og það er betri auglýsing fyrir þá erlendis.“18 Gæðastimpill Alþingis var talinn veita mönnum brautargengi við að koma verkum sínum til heimsbyggðarinnar. Áðurnefnd heiðurslaun til handa Gunnari Gunnarssyni árið 1945 er nauðsynlegt að skoða í ljósi þessara deilna og þeirra miklu hræringa sem voru í íslensku menningarlífi á stríðsárunum. Lagasetning um heiðurslaun Saga heiðurslauna listamanna hefur í gegnum tíðina fléttast inn í sögu annarra listamannalauna. Oft ríkti mikil óánægja með útdeilingu lista- mannalauna og á tæplega 20 ára tímabili, 1948–1967, voru fimmtán sinnum lögð fram frumvörp um listamannalaun við þingstörfin, oft reyndar lítið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.