Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Side 64
B ö ð va r G u ð m u n d s s o n
64 TMM 2015 · 2
Eftir sameiningu þýsku smáríkjanna var ástæða til að hafa þjóðsöng.
Deutschlandlied var nú ekki lengur bannað og það var oft sungið við
hátíðleg tækifæri, skáldinu eflaust til gleði. En þjóðsöngur var það ekki enn.
Í staðinn völdu stjórnvöld Þýskalands gamla, prússneska konungssönginn,
Heil dir im Siegerkranz. Ekki þurfti annað en skipta á „König“ og „Kaiser“.
Heil dir im Siegerkranz, Heill þér með sigurkrans,
Herrscher des Vaterlands! stjórnandi föðurlandsins!
Heil, Kaiser, dir! Heill, keisari, þér!
Fühl in des Thrones Glanz Merk þú í geislagliti kórónunnar
Die hohe Wonne ganz, hina allra mestu gleði
Liebling des Volks zu sein! að vera ástmögur þjóðarinnar!
Heil Kaiser, dir! Heill, keisari, þér!
Alls sex erindi, gjörsamlega innihaldslaus þvæla. Ykkur grunar trúlega
lagið. Íslendingar mundu syngja „Eldgamla Ísafold“ og Bretar „God save
the Queen“. Það er skiljanlegt að fólk hafði meiri
ánægju af að syngja Deutschlandlied. Ekki voru þó
allir á einu máli um það eins og gengur. Til dæmis
kallaði heimspekingurinn Friederich Nietzsche
fyrsta erindið heimsins mesta heimskuraus.
Og árin liðu. Gamli Hoffmann von Fall-
ersleben lagði sig að deyja sama árið og Ísland
fékk stjórnarskrána og Bretar afhentu Þjóðverjum
Helgoland í friði og sátt. En allt í einu var komin
heimsstyrjöld og Þjóðverjar áttu í vök að verjast.
Þá var gott að eiga söng sem lofaði bróðurhug
þjóðarinnar í vörn og úthaldi. Forráðamenn þýska hersins létu hermennina
syngja Deutschlandlied áður en þeir gerðu árás á óvininn.
Eftir ósigurinn 1918 bönnuðu sigurherrar stríðsins sönginn þann. Bannið
stóð í fjögur ár, Deutschlandlied var gert að opinberum þjóðsöng Weimar-
lýðveldisins 1922 að undirlagi hins sósíaldemókratíska forseta Frederichs
Ebert. Hann áleit það nauðsyn fyrir þjóð sem var sundruð eftir innanlands-
ófrið og átök að finna sameiningartákn. Ekki voru þó allir sammála um það
og vinstrisinnaða skáldið Kurt Tucholsky kallaði fyrsta erindið „montvers í
heimskingjabrag“!
Í þetta skipti náði Deutschlandlied að vera þjóðsöngur Þjóðverja í 11 ár.
Og nú erum við komin fram til ársins 1933. Þá varð annað ljóð hinn
opinberi söngur við öll hátíðleg tækifæri. Kampflied, betur þekkt sem
„Die Fahne hoch“. Nasistar voru komnir til valda. Deutschlandlied var þó
ekki bannað. Að minnsta kosti ekki allt. Áróðursstjóri nasistanna á þriðja
áratugnum var nefnilega doktor í bókmenntafræði. Dr. Joseph Göbbels.
Fyrsta erindið, Deutschland, Deutschland über alles, über alles in der Welt,
var leyft og nú var lagður sérstakur skilningur í þessar tvær línur, fram-
Friederich Nietzsche