Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 65

Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Page 65
Ti l u r ð o g ö r l ö g t v e g g j a l j ó ð a TMM 2015 · 2 65 hald setningarinnar féll í skuggann. Annað vers, um þýskar konur og þýska tryggð, vín og söng var stimplað „óæskilegt“. Þriðja erindið um einingu, réttlæti og frelsi var bannað. Hitler var þó sjálfur efins um að rétt væri að ritskoða Deutsch land lied og kallaði það „fagurt ljóð um stóran draum“, en eins og hann sagði: „Ýmsar aðrar þjóðir, [Bretar og Frakkar], skilja það ekki. Trúlegast myndu þeir sjá í þessu ljóði merki um heimsvaldastefnu, sem þó er langt frá þeirra eigin heimsvaldastefnu.“ Dr. Joseph Göbbels þekkti vel hverjir væru þeir eiginleikar ljóðs sem hentuðu málstaðnum til framdráttar. 1: Ljóðið skyldi vera sönghæft við ljúft og vinsælt lag. 2: Ljóðið skyldi vera svo grunnt og yfirborðslegt að hver fáviti gæti skilið það. 3: Ljóðið skyldi lýsa dapurlegri fortíð og bjartri framtíð. 4: Ljóðið skyldi hvetja til hetjulundar og fórnfýsi. 5: Skáldið skyldi helst deyja fórnardauða fyrir málstaðinn á unga aldri. Joseph Göbbels var maður framkvæmdanna. Lífssýn hans var einföld: Vanti okkur eitthvað þá tökum við það. Ef það er ekki til þá búum við það til. Og nú vantaði hann ljóð og skáld sem uppfyllti þessi fimm skilyrði. Hann fann þau öll hjá ungum manni sem var nýhættur í laganámi til að geta gerst með- limur í þeim armi nasistahreyfingarinnar sem hét SA, Sturm Abteilung eða Stormsveitin. Nafn hans var Horst Wessel og hann var fæddur í Bielefeld í Westphalen 1907 en flutti ungur með foreldrum sínum til Berlínar þar sem faðir hans, dr. Ludwig Wessel, var prestur við lútersku Nikolaikirkjuna, eina af elstu kirkjunum í borginni. Móðir hans, Louise Margarethe, var einnig dóttir lútersks prests. Og trúið nú eða ekki, í Berlín bjó Wesselfjölskyldan í Judenstraße. Hvað lærir barn í lúterskri fjölskyldu sem býr í Júðastræti? Faðirinn var mikill aðdáandi trúarleiðtogans mikla, Marteins Luthers, og hafði sérstakar mætur á höfuðverki hans, „Um Gyðinginn og lygar hans“. Séra doktor Ludwig Wessel var félagi í „Þýska þjóðarflokknum“, Deutsche nationale Volkspartei, og sonurinn, Horst Wessel, gekk í æsku í ungmennafélag flokksins og varð Frederich Ebert Kurt Tucholsky Adolf Hitler
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.