Tímarit Máls og menningar - 01.06.2015, Blaðsíða 90
E i r í k u r Ö r n N o r ð d a h l
90 TMM 2015 · 2
borða eða á markaðinn eða í „vestrænu búðina“ (þar sem er hægt að kaupa
smjör, ost og kornfleks), og ég verð var við einhver læti neðar í götunni. Við
hliðina á okkur, austanmegin, býr áburðarsali og garðyrkjubóndi og lætin
koma úr garðinum við næsta hús þar fyrir neðan. Skyndilega sprettur fram
stærðarinnar grís og tekur á rás niður götuna, hrín einsog hann eigi lífið
að leysa – sem hann á – og svigar á milli áróðurspjaldanna á gangstéttinni
(„vertu góður kommúnisti og stattu með kjarnafjölskyldunni og hernum“)
og áróðurspjaldanna á umferðareyjunni („ekki fá eyðni og hættu að reykja“)
sem skiptir götunni í tvennt. Á eftir honum koma hlaupandi fjórir ungir
karlmenn sem eru sjálfsagt samanlagt álíka þungir og grísinn, sem þeir ná
samt að snúa niður og draga á bakinu upp á gangstétt, þar sem þeir leggja
hann á bekk og skera á háls. Eða – ég held þeir hafi skorið hann á háls.
Höfuðið er inni í garðinum en skrokkurinn úti á gangstétt; í öllu falli hættir
hann að hrína, hættir að öskra, og hættir að hreyfa sig og bara liggur þarna.
15
Þann 3. febrúar heldur kommúnistaflokkurinn upp á afmælið sitt. Í Vietnam
News stendur reyndar að það verði haldið upp á afmælið þann 2. mars –
03.02 eða 02.03 það kemur út á eitt fyrir mörgum. Það er skipt um áróður-
spjöld í bænum, þeim fjölgar mikið, fánar spretta upp úti um allt, borðar
eru strengdir yfir götur og í blöðunum er fjallað um sigra flokksins, um
það hvernig þjóðin væri á vonarvöl ef Ho Chi Minh hefði aldrei lesið Marx
og Lenín, um einurð og samstöðu þjóðarinnar, fórnir hennar og baráttu. Í
félagsheimili flokksins, sem er rétt hinumegin við götuna frá heimili okkar,
eru alls kyns hátíðarhöld – kommúnistarnir sitja í kringum mikil langborð
dúkuð með hvítu, drekka bjór og hlusta á ræður. Í miðjum salnum er gull-
stytta af Ho frænda.
Í dag er 28. mars – flest öll áróðurspjöldin eru ennþá uppi og byrjað að
hengja upp ný, fjölga þeim enn frekar, því eftir mánuð verður „friðinum“
fagnað. Þá verða liðin 40 ár frá því Norður-Víetnam innlimaði Suður-
Víetnam – sem Bandaríkjamenn höfðu yfirgefið tveimur árum áður – í
alþýðulýðveldið. Þá víkja aftur fréttir um það hvernig stjórnmálaleiðtogar
nota Facebook (ég sver það, þetta er gagnslausasta bann í veröldinni) til
að eiga í samskiptum við stórfjölskylduna og kjósendur sína fyrir fréttum
um fórnir þjóðarinnar, speki Ho Chi Minh og dásemdir hinnar viðvarandi
byltingar.
16
Ég vil ekki gefa ranga mynd af fjölmiðlum hérna. Þeir eru ekki bara
jákvæðir. Í einhverjum skilningi eru þeir meira að segja oft mjög gagn-
rýnir. Í einu tölublaði Vietnam News (sem hefur nýverið hækkað í verði,