Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 35
Þ e t t a á a ð v e r a F Ó T B O LT A B Ó K !
TMM 2015 · 4 35
í fótbolta í Svíþjóð. Rósa, kærasta Jóns, og aðrar kvenpersónur sem koma
við sögu eru góðar í fótbolta og raunar er ekki að finna eina einustu stelpu í
öllum bókunum sem er áhugalaus um íþróttina.
Síðast en ekki síst má minna á að helsta hetja Jóns og vina hans í fótbolt
anum allt frá fyrstu bók, Vítaspyrnu í Vestmannaeyjum, er einmitt ung
kona, eldri systir Jóns, Eivör, sem skorar mark í sínum fyrsta landsleik í
Aukaspyrnu á Akureyri og er komin til Svíþjóðar í atvinnumennsku í Rang
stæður í Reykjavík þar sem hún spilar líka landsleik. Þannig hefur hún látið
sameiginlegan draum þeirra systkina rætast og draumur Jóns er að feta í
fótspor hennar.
Þótt kynjajafnvægið í fótboltabókum Gunnars Helgasonar sé meira en í
flestum sambærilegum barnabókum er aðalpersónan samt sem áður strákur
og sagan er næstum öll sögð frá hans sjónarhorni. Athyglin er meiri á strák
unum. Sem er ekki tilviljun. Það er yfirlýst markmið höfundar með ritun
bókanna að fá stráka til að halda áfram að lesa á þeim krítíska aldri þegar
margir þeirra hætta því alveg. Við vitum að strákar lesa minna en stelpur og
að þeir eiga það til að heltast úr lestrarlestinni í upphafi gelgjuskeiðsins.4 Við
þurfum bækur fyrir þessa stráka, meðal annars bækur sem fjalla um fótbolta
sem er aðaláhugamál þeirra margra. Fótbolti hefur reynst mjög góð beita
til að fá krakka til að lesa, bæði stráka og stelpur. Gunnar Helgason er ekki
einn um að hafa uppgötvað þetta. Bókaflokkur Helenu Pielichaty, Girls FC,
er ágætt dæmi um hliðstæðan bókaflokk þar sem fjallað er um stelpnalið.5
Í Fótboltasögunni miklu eru stelpur miklu sýnilegri og miklu virkari en í
eldri fótboltabókum, en kynjavíddirnar í bókunum eru fleiri. Í Rangstæður
í Reykjavík eru strákarnir orðnir 13 ára og komnir með hvolpavit. Í lok sögu
hafa þeir flestir eignast kærustur, þótt það tildragelsi sé allt mjög saklaust.
Einu undantekningarnar eru annars vegar Ívar, besti vinur sögumanns, og
hins vegar varnarjaxlinn og átvaglið Bjössi. Undir lok sögunnar rennur þó
upp ljós fyrir aðalpersónunni og sögumanninum Jóni Jónssyni:
Ég leit á stelpurnar sem stóðu þrjár saman með Jason á milli sín. Kærusturnar okkar.
Og þá rann það upp fyrir mér. Bjössi og Jason! Þeir voru líka kærustupar! Auðvitað.
Kannski hefði ég gert eitthvað mál úr því að uppgötva þetta ef það hefði ekki gengið
svona mikið á. En ég var bara ánægður. Ég leit á hann og hina
Þarna voru þeir. Ívar, Skúli, Davíð og Bjössi. Og ég. Fimm bestu vinir. Ekki fjórir
heldur fimm. Ég sagði ykkur að við yrðum ekki fjórir lengi. Og allir áttum við kæró.
Nema Ívar.6
Samkynhneigð Bjössa verður aldrei neitt mál og með þeim Jason verða fagn
aðarfundir í síðustu bókinni, Gula spjaldinu í Gautaborg. Einhver myndi
kannski gagnrýna það að viðbrögð strákanna eða viðbragðaleysi séu ekki
alveg raunsæ en ef við lítum svo á að barnabækur MEGI líka hafa uppeldis
legt gildi og sýna okkur ekki bara einstaklinga sem eru fyrirmyndir heldur
líka hegðun sem er til fyrirmyndar er auðvelt að fallast á viðbrögð strákanna