Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 58

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 58
A n d r é s E i r í k s s o n 58 TMM 2015 · 4 Fiddler of Dooney (The Wind among the Reeds) segir frá lífsglöðum fiðlara sem hleypt verður í himnaríki á undan bræðrum sínum tveimur sem báðir eru strangtrúaðir klerkar, því á himnum eru tónlist og dans í meiri metum en guðsorð. The Ballad of Father O’Hart (Crossways) segir frá presti sem elsk­ aður var af dýrum sem mönnum, svo að allir fuglar Sligo komu í jarðarför hans og grétu sáran. Ljóðið A Legend byggir á þeirri þjóðtrú að hinn upp­ runalegi Sligobær sé á botni Lough Gill. Í ljóði Yeats hverfur bærinn í tár­ dropa Guðs, sem hann felldi vegna heimsku og hroka íbúanna.57 The Hosting of the Sidhe (The Wind among the Reeds) lýsir álfareið frá Knocknarea og The Stolen Child (Crossways) lýsir því hvernig álfarnir hylla ungan dreng til sín úr mannheimum. (Það ljóð fylgir hér þýtt á íslensku með nánari skýringum.) Það eru sterk tengsl og stundum skörun milli þessara ljóða og The Celtic Twilight. Í þeirri bók er saga um unga nýgifta konu sem numin var brott af álfunum í Hjartavatni. Yeats sagðist hafa heyrt söguna „úr munni lítillar gamallar konu með hvíta húfu, sem syngur fyrir sjálfa sig á gelísku og tiplar um eins og hún sé að rifja upp dansspor úr æsku sinni.“ Hann bætti við: „Eitthvert óþekkt írskt skáld samdi um þetta ballöðu sem nú er að mestu gleymd, en gamla konan með hvítu húfuna man nokkur vers og hefur sungið þau fyrir mig.“58 Yeats sagðist hafa notað söguna og versin til að semja sína eigin ballöðu um sama efni.59 Þetta er ljóðið The Host of the Air (The Wind among the Reeds). Í þessum fyrstu ljóðabókum Yeats birtist Sligo þannig sem vettvangur álfa, alþýðufólks og atburða sem þeim tengjast. Leiti hins vegar einhver að lofgjörð um sveitina, sólina og vorið að hætti íslenskra rómantískra skálda verður sá hinn sami fyrir vonbrigðum. Hér finnst ekkert sem samsvarar „Hlíðin mín fríða“, „Vorið er komið“, „Blessuð sértu sveitin mín“ og „Fyrr var oft í koti kátt“. Þó ber þess að geta að Yeats orti nokkur slík kvæði á fyrstu árum síns skáldferils, flest á táningsaldri, en birti aðeins tvö þeirra, þar af eitt sérstaklega ort fyrir barnablað. Hann leit á þau sem bernskubrek og valdi ekkert þeirra í sín ljóðasöfn. Kannski örlar á sveitarómantík í The Lake Isle of Innisfree, sem þó fjallar frekar um tilvistarlega vansæld í stórborginni og þrá eftir einveru. Lýsing á fegurð sveitarinnar er bundin við tvær ljóðlínur: „There midnight’s all a glimmer, and noon a purple glow, / And evening full of the linnet’s wing.“ Yeats fékk fljótt mestu óbeit á skáldskap náttúru­ dýrkunar og sveitarómantíkur, líkt og öllum skáldskap með predikun, siðaboðskap og þjóðfélagslegum lausnum. Slíkt fannst honum óheilindi, markvisst daður við lesandann, beiðni um velþóknun. Af þeim sökum varð Yeats fljótlega afhuga William Wordsworth, sem hann sagði einn „þeirra óráðvöndu listamanna … sem blönduðu alþýðlegum siðaboðskap saman við verk sín.“60 „Þetta eykur vinsældir hans meðal betri tegundar blaðamanna og pólitíkusa sem hafa skrifað bækur.“61 Sjálfsagt væri að menn mærðu sveitina sína í ræðu og riti, en slíkt væri bara ekki ljóðlist, alltént ekki góð. Yeats var líka virkur írskur þjóðernissinni, en orti aldrei ættjarðarljóð og baráttu­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.