Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 76

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 76
Á s t r á ð u r E y s t e i n s s o n 76 TMM 2015 · 4 sjálfs um táknfræði. Ég hef greinilega mænt á ýmis ummæli söguhetjunnar Vilhjálms af Baskerville, fjölfróðs, ensks fransiskanamunks og fyrrum rann­ sóknardómara, um táknheiminn og ráðningu táknanna út frá ákveðinni samhengisrýni og tilgátuferli. Ég efast um að ég hafi leitt hugann að því að þar með var ég, sem sjálfur var nemi í mínum fræðum – og í öðru riti hefur Eco einmitt líkt bandarískum háskólum við klaustur3 – um sumt í hlutverki miðaldapiltsins Adso, fylgisveins og aðstoðarmanns lærimeistarans enska, sem kominn er í keisaralegu umboði til klausturs á norðanverðri Ítalíu til að taka þar þátt í mikilvægri ráðstefnu um samskipti veraldlegra og trúarlegra valdahópa í Evrópu á því herrans ári 1327. Vilhjálmur, sem sannar glöggskyggni sína í ráðningu tákna í upphafi sögunnar, er fenginn til að kanna dauðdaga munks nokkurs í klaustrinu, og síðan fjölgar líkunum og ljóst að einhver er á staðnum sem styttir mönnum aldur af einhverjum ástæðum. Þar með er kominn kunnur glæpasagna­ bragur á verkið og sitthvað minnir á raðmorð hjá Agöthu Christie og annað á rannsóknarvinnu Sherlocks Holmes. Eco er síður en svo að fela þau tengsl, því að með heitinu „Baskerville“ minnir Vilhjálmur á skáldsögu Arthurs Conans Doyles, The Hound of the Baskervilles, þar sem Sherlock Holmes og aðstoðarmaður hans, Dr. Watson, rannsaka og leysa morðgátu. En nafnið „Vilhjálmur“ undirstrikar á hinn bóginn tengsl rannsakandans við Vilhjálm af Ockham, sem uppi var á þessum tíma og sem vitnað er til í skáldsögunni, en hann var einmitt enskur fransiskanamunkur og mikilvægur hugsuður í trúmálum, heimspeki og stjórnspeki og er kunnastur fyrir reglu sína um til­ gátur sem kennd er við hann og rakhníf, og snýst um að velja ekki flóknari útskýringar á fyrirbærum en þörf er á hverju sinni. Með því að tefla saman Vilhjálmi af Ockham og Sir Arthur Conan Doyle bregður Eco á kaldhæðnislegan leik, þarsem miðaldatrúspekingur er fulltrúi rökhyggjunnar í samfloti við nútímahöfund sem sviðsetti rökvísar lausnir í glæpasögum en var jafnframt spíritisti og ákafur leitarmaður skilaboða frá handanheimum. Hvernig sem því er varið, er ljóst að Eco kemur meðvitað í kring samslætti menningarheima, sem gjarnan hefur verið talið einkenni póstmódernisma, og hér má segja að hann geri það yfir tímans haf, með því að leggja glæpasöguna, þetta afþreyingarform nútímans, yfir söguheim mennta og hámenningar á miðöldum.4 Ekki skrýtið að Eco skyldi vera ákaft spurður um það hvort þessi skáldsaga gæti talist dæmi um „hið opna verk“, en svo heitir fræðibók sem hann hafði birt 1962 (Opera aperta), þar sem hann heldur fram hlut róttækrar, andhefðbundinnar fagurfræði og kennir við „opinn texta“ en „lokaður texti“ er þá hvers kyns formúlubókmenntir og annar texti sem fellur í fyrirfram mótaðar skorður. Þegar Eco skrifaði litla bók með athugagreinum um Nafn rósarinnar, Postille a Il nome della rosa, fáeinum misserum eftir að skáldsagan kom út, kvaðst hann ekki vilja svara þessari fáfengilegu spurningu, en ljóst er af máli hans í kverinu að hann gerir sér vonir um að hið opna form sé enn virkur
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.