Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 116

Tímarit Máls og menningar - 01.11.2015, Page 116
S t e fá n Va l d e m a r S n æ va r r 116 TMM 2015 · 4 En Megas er ekki einhamur í tónlist fremur en öðru. Eitt er að hann hefur sungið lög í þjóðlagastíl, pönkuð og ópönkuð rokklög, djasskennd lög, auk hreinna dægurlaga á borð við Fatlafól. Annað er að hann hefur líka sungið klassísk sönglög og barnalög, öldungis án rokkkeims.48 Flutn­ ingur hans og Senuþjófanna á sígildum íslenskum sönglögum er djass aður en samt eins hefðbundinn og nokkuð getur verið.49 Þannig skautar Megas um tónlistarsöguna, slíkt atferli er harla póstmódernískt. Megas talar um áhrif frá módernistum í skáldskap, þeirra á meðal James Joyce.50 Þarna er póstmódernistinn lifandi kominn, Megas fær „póstið“ frá rokk inu, módern ismann frá Joyce og félögum. Áhrifin frá Joyce eru hvað skýr ust í prósatextum Megasar sem eru að mörgu leyti nærri nýstefnunni en söng­ textarnir. Prósarnir eru venjulega flæðiskenndir, söguþræðir slitróttir. Ein sagan fjallar um þá makalausu uppákomu þegar Hallgrímskirkja tók á rás og gekk í sjó.51 Geir Svansson bendir á tengsl við William Burroughs og áhrif frá súrrealisma í prósunum.52 Bæta má við að Megas er flökkuhirðingi í bókmenntasögunni eins og sönnum póstmódernista sæmir. Bragurinn um Eyjólf bónda er hefðgróin, rímuð frásaga um bóndann sem sér einhyrning tilsýndar. Hann verður gagntekinn af furðuskepnunni og eltir hana til handanheima og hittir Óðin sjálfan. Minnir á rómantíska stefið um leitina að bláa blóminu.53 Ljóðið er háleitt að sígildum sið, afar fallegt og lagið í stíl við það: Nótt hnígur björt og bleikra ljósa En blátt mun og daga liljumyrkrið ríkja …54 Mynstur sögunnar er díalektískt eins og oft gildir um sígildar sögur. Spenna milli þess sem þráir að finna og hins hverfula viðfangs. Synþesa í lokin­ og þó. Megas afbyggir (?) hið sígilda sagn­mynstur með óvæntri setningu í blálokin um Biblíufélagið sem gefur lúðri dómsdags gaum. Kannski það tengist hinni gömlu hugmynd um einhyrninginn sem Kriststákn, Biblíu­ félagsmenn hafa sjálfsagt áhuga á slíku. Enga slíka afbyggingu er að finna í áðurnefndum bernskuminningum sem hann samdi í félagi við Þórunni Erlu­ Valdimarsdóttur. Það er frábærlega vel skrifuð þroskasaga, fremur hefðbundin í uppbyggingu. Margvísleg átök í lífi „Píslarinnar“ leiða til þess að hún verður Megas. Andstæðurnar verða að sýnþesu. Meðal helstu and­ stæðna má nefna þjóðlega íslenska menningu og alþjóðlega poppmenningu. Sýnþesan er samruni þeirra í verkum Megasar. Reyndar efast Skafti Halldórsson um að Megas sé hreinræktaður póst­ módernisti.55 Ástæðan sé sú að hann taki siðferðilega afstöðu og glími við formið með hætti sem sé módernískur. Það síðastnefnda útskýrir Skafti ekki vel en eins og áður segir má telja eitthvað af lausamálstextum Megasar móderníska. Hvað siðferði varðar þá er mér um megn að sjá nokkra velskil­ greinda siðferðilega afstöðu í textum hans. Kannski einhverja samúð með utangarðsmönnum og andúð á valdi, þó aðallega á fyrstu plötum hans. Ef
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.